Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 8

Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 8
24. mars 2012 LAUGARDAGUR8 D vítamín dropar fyrir börn Þú getur nálgast LIVOL D-vítmín bækling á næstu heilsugæslu. Icepharm a Okkur vantar hreint og beint fólk ISS óskar eftir flokkstjórum og almennu starfsfólki í ræstingar Flokkstjóra á heilbrigðisstofnun vinnutími 8-16 Flokkstjóra vinnutími 8-16 Flokkstjóra vinnutími 8-13 Almenna starfsmenn á hótel 50-100% vinnu Almenna starfsmenn dagvinna 60-100% vinna Almenna starfsmenn kvöldin 25-75% vinna Umsækjendur verða að vera íslenskumælandi. Vinsamlegast athugið að skila þarf inn ljósriti af sakavottorði frá heimalandi með umsóknum. Umsókn er hægt að fylla út á heimasíðu ISS, www.iss.is eða á skrifstofu ISS að Austurhrauni 7, 210 Garðabæ. Nánari upplýsingar gefur starfsmannstjóri, siggah@iss.is lifandi fyrirtæki Sameinaði lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum sínum til kynningarfunda í Reykjavík og á Akureyri um upphaf lífeyristöku. Fundunum er ætlað að gefa svör við helstu spurningum sem vakna um lífeyrismál þegar starfslok nálgast. KYNNINGARFUNDIR FYRIR VÆNTANLEGA LÍFEYRISÞEGA Til umfjöllunar verða: • Ákvæði samþykkta sjóðsins um lífeyristöku. • Atriði sem mestu ráða um hvenær sjóðfélagar ákveða að hefja töku lífeyris. • Tengsl lífeyris frá sjóðnum við lífeyri almannatrygginga. • Aðrar hagnýtar upplýsingar sem tengjast þessum tímamótum. Borgartún 30, 105 Reykjavík Sími 510 5000 mottaka@lifeyrir.is lifeyrir.is E N N E M M / S ÍA / N M 51 33 3 Fundarstaðir og tími REYKJAVÍK: 27. mars, kl. 17.00 í Borgartúni 30. AKUREYRI: 11. apríl, kl. 16.00 að Skipagötu 14, 4. hæð. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á fundinn í Reykjavík eigi síðar en mánudaginn 26. mars, í síma 510 5000 eða með því að senda tölvupóst á mottaka@lifeyrir.is, með upplýsingum um nafn, kennitölu og símanúmer. Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12 Sprengisandur kraftmikill þjóðmálaþáttur FRAKKLAND Franska lögreglan seg- ist ekki hafa neina ástæðu til að halda að Mohammed Merah hafi verið í sambandi við hryðjuverka- samtökin al Kaída, hvað þá feng- ið skipanir frá þeim, jafnvel þótt hann hafi fullyrt það sjálfur. Hinn 23 ára gamli Merah féll fyrir byssukúlu leyniskyttu á fimmtudag, þegar sérsveit lögregl- unnar réðst inn í íbúð hans í Tou- louse í Frakklandi eftir meira en þrjátíu tíma umsátur. Hann hafði myrt sjö manns, þar af þrjú börn, í samtals þremur skotárásum á rúmlega viku. Rannsókn lögreglunnar beinist meðal annars að því hvort hann hafi verið einn að verki. Helst beinist athyglin að eldri bróður hans, Abdelkader, sem er 29 ára, og svo að Olivier Corel, sem jafn- an er nefndur „hvíti emírinn“ og er grunaður um að hafa reynt að fá unga múslima í Frakklandi til liðs við málstað hryðjuverkamanna. Abdelkader er í haldi lögregl- unnar ásamt kærustu sinni. Móðir þeirra bræðra er einnig í gæslu- varðhaldi. Þeir bræður eru fransk- ir ríkisborgarar, ættaðir frá Alsír, en foreldrar þeirra skildu fyrir nærri tuttugu árum. Lögreglan útilokar ekki að Abdelkader hafi verið vitorðsmað- ur eða jafnvel sá sem atti yngri bróðurnum út í ódæðin. Í bifreið hans fundust vopn og sprengiefni. Að sögn franskra fjölmiðla neit- ar hans hins vegar allri aðild að morðunum og haft er eftir rann- sóknarmönnum að hann sé engan veginn jafn líklegur eða fús til ofbeldisverka og yngri bróðirinn. Báðir tilheyrðu bræðurnir hreyfingu salafista, sem er strang- trúarhreyfing súnní-múslima, með mikla útbreiðslu á Arabíuskaga og víðar. Lögreglan hefur verið gagn- rýnd fyrir að hafa ekki áttað sig á því sem Merah var með í undir- búningi þrátt fyrir að hafa fylgst lauslega með bræðrunum árum saman. „Það telst ekkert lögbrot í sjálfu sér að vera í salafistahreyfingu,“ sagði Francois Fillon, forsætisráð- herra Frakklands, og tók fram að lögreglan hefði ekki fundið neinar beinar vísbendingar um að hætta stafaði af Merah: „Við höfum engan rétt til þess að fylgjast stöð- ugt með einhverjum sem hefur enn ekki framið neinn glæp.“ Rob Wainwright, yfirmaður Evrópulögreglunnar Europol, segir hins vegar ljóst að hvort sem Merah hafi verið í beinum tengslum við al Kaída eða ekki, þá hafi verk hans greinilega sótt inn- blástur til al Kaída. gudsteinn@frettabladid.is Lögreglan efast um tengsl við al Kaída Forsætisráðherra Frakklands kemur lögreglunni til varnar. Engar vísbendingar um að Merah hafi fengið skipanir frá al Kaída. Fjölskylda tilræðismannsins höfð í gæsluvarðhaldi. Grunur beinist meðal annars að bróður hans. SÁRT SAKNAÐ Mæðgur leggja blóm við barnaskóla í Toulouse, þar sem þrjú börn og einn kennari létu lífið fyrr í mánuðinum. NORDICPHOTOS/AFP
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.