Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 96
24. mars 2012 LAUGARDAGUR60
sport@frettabladid.is
GUNNAR NELSON verður á ferðinni í Mjölniskastalanum í dag þegar glímumótið Mjölnir Open fer
fram. Mótið hefst klukkan 11.00. Íslandsmótið í júdó fer einnig fram í dag og hefst keppni klukkan 10.00 og
stendur fram yfir kaffi. Söngvarinn Geir Ólafsson mun taka á honum stóra sínum eftir klukkan 13.00.
Maður nánast sigldi
inn í helgina með
bros á vör því tilboðið frá
þeim var svo hlægilegt.
KRISTINN KJÆRNESTED
FORMAÐUR KND. KR
ÍSLAND– SVISS
GRÍÐARLEGA MIKILVÆGUR LEIKUR Í UNDANKEPPNI EM
Sunnudag Kl. 16.00
Miðasala á staðnum
Vodafonehöllin
FÓTBOLTI Það virðist vera orðin
lenska hjá norskum knattspyrnu-
félögum að vilja fá bestu leik-
menn Pepsi-deildarinnar lánaða.
Nú þegar er norska liðið Start búið
að fá Matthías Vilhjálmsson frá
FH og Guðmund Kristjánsson frá
Breiðabliki að láni. Þeir eru tveir
af betri mönnum deildarinnar.
Nú síðast sendi norska úrvals-
deildarliðið Sogndal lánstilboð til
KR vegna varnarmannsins Skúla
Jóns Friðgeirssonar.
„Tilboðið frá þeim var brandari.
Maður nánast sigldi inn í helgina
með bros á vör því það var svo
hlægilegt,“ sagði Kristinn Kjær-
nested, formaður knattspyrnu-
deildar KR, en KR-ingar sendu
Sogndal gagntilboð sem var á allt
öðrum nótum.
Kristni líst ekki á þessa þróun
sem er að verða að Norðmenn vilji
fá bestu menn landsins að láni.
„Ég hef ákveðnar áhyggjur af
þessu án þess að ég viti hvað FH
og Blikar fengu. Við erum ekki
að fara að taka þátt í þessum leik.
Þetta er bara brandari. Það er ekki
hægt að orða það öðruvísi. Níu ára
sonur minn hefði getað svarað því
til baka mjög pent,“ sagði Kristinn
og bætti við: „Ef þetta er nýjasta
útspilið þeirra að nálgast íslensk
lið með það að leiðarljósi að fá
leikmenn leigða þá tel ég þá vera
á rangri leið. Þetta pirrar mann.“
Hafi FH og Blikar leigt sína
menn á frekar lága upphæð og ætli
svo að taka útlendinga til að fylla
þeirra skarð má gera ráð fyrir að
ágóðinn á endanum sé lítill eða
enginn.
„Sogndal vildi líka fá mögu-
legan forkaupsrétt. Þá er ákveðin
tala negld niður. Segjum að leik-
maður slái svo í gegn að fleiri lið
komi inn og eru til í að borga mun
meira. Þá lenda íslensku liðin í því
að vera föst í minni upphæð sem
áður var búið að semja um. Ef leik-
maður getur ekkert þá kemur við-
komandi heim og lítið sem íslensku
liðin græða á því. Þetta er ekki
mjög spennandi að mínu mati.“
Kristinn segir að þess utan hafi
KR ekki neinn áhuga á að missa
Skúla sem sé lykilmaður í þeirra
liði.
„Við höfum ekki áhuga á að lána
eða leigja hann. Auðvitað erum við
samt til í að skoða ef það kemur
áhugavert tilboð. Engu að síður
er spennandi tímabil fram undan
hjá okkur. Þurfum að verja titla
og erum í Evrópukeppni. Eðlilega
viljum við hafa okkar bestu menn
í því verkefni.“
henry@frettabladid.is
Þetta tilboð var brandari
Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, segir lánstilboð Sogndal
í Skúla Jón Friðgeirsson hafa verið hlægilegt. Honum líst mjög illa á þá þróun
að norsk lið vilji fá bestu íslensku strákana lánaða fyrir litlar upphæðir.
SKÚLI JÓN FAGNAR Í LEIK MEÐ KR Hann hefur vakið áhuga erlendis en fer ekki á
gjafverði til Noregs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Stelpurnar okkar
mæta Sviss öðru sinni á nokkrum
dögum á morgun. Leikurinn er
liður í undankeppni EM og þarf
íslenska liðið sárlega á sigri að
halda.
Stelpurnar töpuðu fyrstu tveim-
ur leikjum sínum í riðlinum en
komust á sigurbraut fyrir helgi er
þær lögðu svissneska liðið ytra.
Til þess að eygja raunhæfan
möguleika á að komast í loka-
keppni EM þurfa þær að vinna
leikinn í Vodafone-höllinni á
morgun.
„Þessi leikur er afar mikil-
vægur og það skiptir okkur miklu
máli að finna fyrir góðum stuðn-
ingi. Það hjálpar liðinu mikið,“
sagði Ágúst Þór Jóhannsson
landsliðsþjálfari.
„Það hafa verið að mæta 700-
800 manns á þessa leiki hjá okkur
en nú vil ég sjá fullt hús. Ég tel að
stelpurnar eigi það skilið að fólk
fjölmenni og fylli húsið. Ég get
alveg lofað góðri skemmtun fyrir
þá sem mæta á leikinn.“
Stelpunum okkar gekk illa að
hrista af sér svissneska liðið í síð-
asta leik en hafði að lokum örugg-
an sigur. Þær mega því ekki gefa
nein færi á sér í leiknum.
Ágúst Þór Jóhannsson:
Vil sjá fullt hús
á leiknum
ÁGÚST ÞÓR Segir að stelpurnar eigi
skilið að fá góðan stuðning.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Leikir helgarinnar
Laugardagur:
Chelsea - Tottenham Sport 2 og HD
Arsenal - Aston Villa Sport 3
Bolton - Blackburn Sport 5
Liverpool - Wigan Sport 2 og HD
Norwich - Wolves
Sunderland - QPR Sport 6
Swansea - Everton Sport 4
Stoke - Man. City Sport 2 og HD
Sunnudagur:
WBA - Newcastle Sport 2 og HD
FÓTBOLTI Man. City getur endur-
heimt toppsætið í enska boltan-
um í dag er það sækir Stoke City
heim.
City er einu stigi á eftir Man.
Utd sem spilar ekki fyrr en á
mánudaginn. Þá mætir United
liði Fulham á Old Trafford.
Rimma Lundúnaliðanna Chel-
sea og Tottenham verður ekki
síður áhugaverð. Spurs er í fjórða
sæti en hefur gefið mikið eftir
upp á síðkastið.
Chelsea í fimmta sæti, einum
fimm stigum á eftir Spurs, og
þarf nauðsynlega á sigri að halda
til þess að halda lífi í vonum
sínum um að komast í Meistara-
deildina á næsta tímabili.
Chelsea hefur leikið vel eftir að
Andre Villas-Boas hvarf á braut
og liðið þarf að gera meira af því
í dag. - hbg
Man. Utd hvílir um helgina:
City getur kom-
ist á toppinn
HART OG LAMPARD Man. City og
Chelsea spila bæði í dag.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES