Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 102

Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 102
24. mars 2012 LAUGARDAGUR66 PERSÓNAN „Hann er ótrúlega góður og hljómar alveg eins og þeir,“ segir Kristján I. Gunnarsson sem stjórnar nýjum útvarpsþætti, Félagarnir, á FM 957 ásamt Ásgrími Guðnasyni. Darren Farley, sem hermir eftir leikmönnum og þjálfurum úr enska boltanum, er fastur gestur í þættinum, sem er á dagskrá á laugardögum. Farley setti myndband á Youtube sem hátt í þrjár milljónir hafa séð þar sem hann hermir eftir Rafa Benitez, fyrrum stjóra Liverpool, og fótboltaköppunum Steven Gerrard, Jamie Carragher, Michael Owen og Peter Crouch. Farley hefur verið gestur í flestum af vinsælustu fótboltaþáttum Bretlands eins og Soccer AM, Match of the day á BBC og á ITV og er núna í vinnu hjá Liverpool með sitt uppistand. „Hann er frá Liver- pool þessi strákur og tekur svolítið Liverpool-tengt efni en hann hefur samt tekið Rooney og Beckham líka,“ segir Kristján, sem komst í samband við hann í gegnum Facebook. „Þessi þáttur er öðruvísi en hinn hefðbundni FM-hlustandi á að venjast. Við vilj- um prófa að hafa meiri fjölbreytni á stöðinni,“ bætir hann við um Félagana. - fb Hermir eftir fótboltaköppum EFTIRHERMA Darren Farley með fótboltakappanum Steven Gerrard sem hann hefur hermt eftir með góðum árangri. „Þetta eru blöðin sem bóksalar byggja á þegar þeir panta sínar bækur. Þetta hjálpar rosalega mikið til við forsöluna á bókinni,“ segir Pétur Már Ólafsson hjá Bjarti og Veröld. Spennusagan Aska, eða Ashes to Dust, eftir Yrsu Sigurðardóttur kemur út í Bandaríkjunum á þriðjudag hjá risafor- laginu Macmillan, sem er einnig búið að tryggja sér útgáfuréttinn á þremur öðrum bókum Yrsu, Horfðu á mig, Ég man þig og Brakið. Dómar eru farnir að birtast í fagtíma- ritum bóksala og eru þeir á eina lund. Gagnrýnandi Publishers Weekly segir að bókin sé frábær og ætti að afla Yrsu nýrra aðdáenda. „Jafnvel þeir sem vita ekkert um þessa eldfjallaeyju munu heillast.“ Í umsögn Kirkus Review segir: „Undir eldfjallaösku, villusporum og ásökunum liggur ráðgáta sem Stieg Larsson væri fullsæmdur af vægðarlausri lausninni á.“ Þá sagði Fresh Fiction um Ösku að bókin væri uppfull af óvenjulegum persónum og fléttan kæmi stöðugt á óvart. Ekki skemmir fyrir að á kápu bókarinnar eru ummæli frá metsöluhöfundinum James Patterson þar sem hann hrósar Yrsu. Yrsa verður í New York þegar bókin kemur út og verður útgáfuhóf haldið í norrænu miðstöðinni Scandinavian House þar í borg. Aska er þriðja bók Yrsu sem kemur út í Bandaríkjunum. Áður komu þar út Sér grefur gröf og Þriðja tákn- ið sem fengu fína dóma og seldust þokkalega. „Þetta er hrikalega erf- iður markaður. Það sem hefur gerst í millitíðinni er að Stieg Larsson hefur verið að ryðja brautina. Núna er jarðvegurinn mjög frjór og við erum mjög bjartsýn á þetta,“ segir Pétur. - fb Aska fær góða dóma vestanhafs GÓÐIR DÓMAR Aska eftir Yrsu Sigurðar- dóttur hefur fengið mjög góða dóma í Bandaríkjunum. Fo Tatt Fest fer fram í fyrsta sinn í Færeyjum dagana 18. til 20. maí. Fjölnir Geir Bragason húðflúrlista- maður stendur fyrir hátíðinni og hyggst gera hana að árlegum við- burði. „Ég hef heimsótt Færeyjar reglu- lega frá árinu 1998 og finnst Fær- eyingar afskaplega indælt og gott fólk með mikinn áhuga á húðflúri. Mig langaði að vekja athygli Fær- eyinga á því sem er að gerast í húðflúrheiminum og ákvað því að bjóða nokkrum af bestu húðflúr- listamönnum Skandinavíu, sem eru jafnframt meðal þeirra fremstu í heiminum, til landsins. Ég fékk hið stórkostlega Norðurlandahús í Þórshöfn undir batteríið en þar er líka ákaflega fallegur tónleikasalur þannig ég ákvað að beina um leið sviðsljósinu á það flotta tónlistar- líf sem ríkir í Færeyjum,“ útskýrir Fjölnir Geir og bætir við að tónlist- armennirnir Krummi Björgvinsson í Legend og Barði í Bang Gang hafi báðir sýnt því áhuga að koma fram á hátíðinni. Inntur eftir því hvort einhver munur sé á flúrvali Íslendinga og Færeyinga svarar Fjölnir játandi. „Færeyingar eru mjög trúaðir og það hefur áhrif á flúrvalið. Fólk fær sér gjarnan nöfn systkina eða húðflúr til að minnast látinna ætt- ingja. Maður finnur svolítið fyrir fordómum gangvart húðflúri meðal öfgafyllri málsvara kristinnar trúar en unga fólkið spyrnir við fótum af miklum krafti og það má vel greina miklar breytingar í sam- félaginu.“ Fjölnir ætlar sér að taka upp heimildarmynd á meðan á hátíð- inni stendur en hann gerði ein- mitt heimildarmyndina Flúreyjar um heimsókn sína og Jóns Páls til Færeyja árið 2009. „Mig langar að gera þetta að árlegri vorhátíð. Hugmyndinni hefur verið vel tekið í Færeyjum og mér finnst þess virði að prófa þetta,“ segir hann að lokum. Áhugasamir geta fylgst með fréttum af hátíðinni á samskipta- síðunni Facebook undir nafninu Fo Tatt Fest. - sm FJÖLNIR TATTÚ: FÆREYINGAR HAFA MIKINN ÁHUGA Á HÚÐFLÚRI Heldur hátíð í Færeyjum SKIPULEGGUR HÁTÍÐ Fjölnir Geir Bragason skipuleggur húðflúrhátíð í Færeyjum. Hátíðin kallast Fo Tatt Fest og fer fram 18. til 20. maí. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON Ásgeir Börkur Ásgeirsson Aldur: 24 ára. Starf: Var að klára seinasta daginn minn á leikskóla og er að fara að vinna við útkeyrslu. Fjölskylda: Laus og liðugur. Foreldrar: Björg Kristjáns- dóttir námsráð- gjafi og Ásgeir Theodórs læknir. Stjörnumerki: Hrútur. Ásgeir Börkur er fótboltamaður í Fylki og söngvari Mercy Buckets. Hvaða Spirulina ert þú að taka? Árangur fer eftir gæðum Lífrænt fjölvitamín fyrir allan aldur Spirulina inniheldur mikið af blaðgrænu og glyccogen. Blaðgræna eykur súrefnisflutning í blóðinu. Ef Spirulina er tekið inn fyrir æfingar eða annað álag gefur það aukið þrek, úthald og einbeitingu. Dregur úr pirringi, sleni og sætindaþörf, truflar ekki svefn. Góð vörn gegn kvefi og flensu Hreinsar líkamann af eiturefnum og geislun úr matvælum. Gæðastaðall ISO9001, ISO1401. 13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup og Fríhöfninni Næring, orka og einbeiting Árangur strax! www.celsus.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.