Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 80
24. mars 2012 LAUGARDAGUR44
Hvaðan ert þú? „Ég er nú hvorki
meira né minna en þýskur barón
og heiti fullu nafni Karl Fried-
rich Hírónýmus Fræherr Von
Múnkhásen. Að vísu kallar
Tyrkjasoldán mig þýska Rússa-
skítinn en hann er sjálfur alveg
kolruglaður þannig að þið skuluð
ekki taka mark á honum.“
Hvað heitir hesturinn þinn?
„Ef ég á að segja alveg satt frá
þá hef ég aldrei spurt hann að
nafni. Hann er frá Litháen og ég
kalla hann aldrei annað en lithá-
íska gæðinginn minn. En ég verð
að muna að spyrja hann að nafni
næst þegar ég hitti hann.“
Hvernig er tunglið á litinn? „Á
tunglinu glitrar allt eins og silf-
ur. Einu sinni týndi ég silfur-
öxinni minni á tunglinu og það
var sko enginn hægðarleikur að
finna hana. Loks fann ég hana
samt í bing af sinu og söxuðum
hálmi.“
Var þér ekkert illt í höfðinu eftir
að þú togaðir þig upp á hárinu?
„Alls ekki. Mér hefur aldrei
verið illt í höfðinu. Hins vegar
var mér einu sinni illt í magan-
um. Þá hafði ég gleypt vekjara-
klukku og magapínan versnaði
þegar klukkan fór að hringja.
En ég bjargaði málunum með því
að kyngja kirsuberjasteini sem
ég skaut með kyngingarvöðv-
unum beint í takkann sem drap
á klukkunni. Þá leið mér miklu
betur.“
Finnst þér þjónustustúlkan þín
sætust af öllum í heiminum?
„Sko – málið er að ég er ástfang-
inn af gúrkuprinsessunni en er
samt alveg voðalega skotinn í
skjaldsveininum mínum. Finnst
ykkur það vera flókið? Já, mér
líka, ég skil bara ekkert í þessu.“
Sagði mamma þín þér aldrei að
það væri ljótt að skrökva? „Jú,
hún sagði á hverjum degi við mig
og ég er alveg sammála henni.
Enda segi ég alltaf satt! Í alvör-
unni! Alveg hreina satt. Þið getið
bara spurt eldfjallaguðinn.“
Var úlfurinn sem þú snerir á
rönguna grimmur? „Hann var
svo blóðþyrstur og grimmur að
eina ráðið var að stinga hönd-
unum upp í hann og hreinlega
snúa honum við eins og upp-
þvottahanska. Þið skuluð samt
ekki prófa það heima hjá ykkur
– nema með uppþvottahanska.“
Varstu í alvörunni hermaður
eða er það allt plat? „Plat!!??
Hvurslags dómadags dónaskap-
ur er þetta. Ég fer alltaf rétt með
staðreyndir! Ég var vissulega
hugrakkur hermaður og barðist
með Rússum á móti Tyrkjum.
Hefurðu kannski ekki heyrt af
því þegar ég fékk mér far með
fallbyssukúlunni? Það er alveg
heimsfrægt!“
Hvert var skemmtilegasta ævin-
týrið sem þú lentir í? „Það er
erfitt að velja á milli allra ævin-
týranna. Þó verð ég að segja að
ferðin á Gúrkueyjuna þar sem ég
hitti elsku bestu gúrkuprinsess-
una mína er í algjöru uppáhaldi.
Við fórum í Bimmbamm Bimm-
bamm og allt.“
Hvernig lentirðu í Gaf lara-
leikhúsinu? „Það er stórundar-
legt en mér skilst að íslenskir
krakkar hafi ekki heyrt mikið
um mig svo mér fannst kominn
tími á að koma hingað og segja
öllum Íslendingum frá sögunum
mínum og ævintýrum. Gaflara-
leikhúsið er besta og mikilvæg-
asta leikhús í öllum heiminum
svo mér fannst tilvalið að segja
sögurnar mínar þar. Og það eru
allir velkomnir til mín!“
krakkar@frettabladid.is
44
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Einu sinni kom Jói
rennandi blautur
heim. Þegar hann
kom inn spurði
mamma hans: „Af
hverju ertu svona
blautur, Jói minn?“
Jói: „Við vorum í
hundaleik!“ Mamma
Jóa: „Og hvað?“ Jói:
„Og ég var ljósa-
staur.“
Lítill strákur er á biðstofu læknis
þegar hann sér ólétta konu. Hann
horfir á hana í smá stund, þegar
mamma hans spyr hann hvað séð að.
„Af hverju er konan með svona stóra
bumbu?“ spyr strákurinn. „Af því að
hún er með barn í bumbunni,“ svarar
mamman.
„Er þetta gott barn?“ spyr strákurinn.
Mamman jánkar því.
„Af hverju borðaði hún þá barnið
sitt?“
ÞIÐ GETIÐ BARA SPURT
ELDFJALLAGUÐINN
Barón Múnkhásen er mættur í Gaflaraleikhúsið og þar segir hann krökkum og
fullorðnum frá öllum ævintýrunum sem hann hefur lent í. Það eru sko engin smá
ævintýri. Hann hefur til dæmis farið til tunglsins og snúið úlfi á rönguna.
MÚNKHÁSEN Í GAFLARALEIKHÚSINU FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Yfir fer þannig fram að kosið er
í tvö lið sem raða sér síðan upp
sitt hvoru megin við hús sem
auðvelt er að henda bolta yfir.
Kastað er upp á hvort liðið eigi
að byrja og þegar boltanum er
kastað þá er hrópað hátt og
snjallt „yfir!“. Liðsmenn hinum
megin við húsið reyna að grípa
boltann og ef það tekst þá hróp-
ar sá „gripið!“ og hleypur af stað
eins hratt og hann getur í aðra
hvora áttina í kringum húsið og
reynir að hitta liðsmann úr hinu
liðinu með því að kasta boltan-
um í hann.
Leikmenn hins liðsins hlaupa á
flótta og harðaspretti um leið
og þeir heyra hrópað „gripið“ og
gera tilraun til að ná í kringum
húsið án þess að fá boltann í sig.
Sá sem fær boltann í sig neyð-
ist til að ganga til liðs við lið
leikmannsins sem skaut bolt-
anum í hann. Flóttahlaupararnir
vita aldrei í hvora áttina sá sem
greip hleypur og geta því óafvit-
andi og frávita hlaupið beinustu
leið í fang hans. Þannig gengur
leikurinn þar til annað liðið hefur
tapað öllum sínum leikmönnum
yfir til liðs „óvinarins“.
Boltaleikurinn Yfir er skemmtilegur
Á VEFSÍÐUNNI BIBLEFORCHILDREN.ORG ER
hægt að hlaða niður sögum úr Biblíunni á íslensku. Sögurnar
eru hugsaðar fyrir börn á aldrinum sex til tólf ára.
www.facebook.com/drdenimiceland
LAUGAVEGI 7 & SMÁRALIND
Ég fer alltaf rétt
með staðreynd-
ir! Ég var vissulega
kjarkaður hermaður
og barðist með Rúss-
um á móti Tyrkjum.