Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 82

Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 82
24. mars 2012 LAUGARDAGUR46 BAKÞANKAR Atla Fannars Bjarkasonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. glansa, 6. gjaldmiðill, 8. sjór, 9. farvegur, 11. í röð, 12. kappsemi, 14. teygjudýr, 16. rás, 17. fjallaskarð, 18. fát, 20. kvað, 21. handa. LÓÐRÉTT 1. listi, 3. í röð, 4. asfalt, 5. tímabils, 7. röndóttur, 10. er, 13. iðn, 15. síll, 16. iðka, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. gljá, 6. kr, 8. mar, 9. rás, 11. rs, 12. ákefð, 14. amaba, 16. æð, 17. gil, 18. fum, 20. ku, 21. arma. LÓÐRÉTT: 1. skrá, 3. lm, 4. jarðbik, 5. árs, 7. rákaður, 10. sem, 13. fag, 15. alur, 16. æfa, 19. mm. Þú heimska be*bíp*! Hættiði stelpur! Í sitthvort hornið með ykkur! Haldiði fjarlægð! Í ALLT KVÖLD! Maður þarf bara að vera ákveðinn! Ég hélt að Palli og Halli væru svangir. Neibb. Þú misskildir. En þeir töluðu um mat alla leiðina hingað. Að skoða „sætabrauðið“ og „melónurnar“ hefur ekkert að gera með mat. **belja **skækja Þú ódýra skæ*bíp*! Mér þykir það leitt, vinur... Engin ábyrgð á regnhlífum! Regn- hlífar til sölu Heim- urinn endar í dag! Þegar þú segir: Þau hljóta að heyra: Nú skulu allir hreyfa sig mjög hægt! Drífa sig! Við erum orðin allt of sein! Ummæli sem frú Vigdís Finnbogadóttir lét hafa eftir sér í vikublaðinu Moni- tor á fimmtudaginn hafa farið öfugt ofan í marga. Spurning um öfgafemínisma vakti hörðustu viðbrögðin, þó Vigdís hafi svarað henni á mjög yfirvegaðan hátt. Hún varar við öfgum, sem hún segir geta eyðilagt góðan málstað. Það er hárrétt hjá Vigdísi, þó hvergi hafi verið gerð tilraun til að útskýra meintar öfgar. ÖFGAR eru oft skilgreindar sem eitthvað sem fer út fyrir skynsamleg mörk. Jafn- rétti í eðli sínu fer aldrei út fyrir skyn- samleg mörk. Þess vegna er beinlínis hlægilegt að tala um öfgafemínisma. Fólk getur líka alveg verið ósammála, notað gífuryrði og viðrað skoðanir sem stangast á við almennt viðhorf, án þess að öfgar einkenni málflutninginn. Einu sinni þótti eflaust öfgafullt að skrifa um sjálfsfróun, kvenna- knattspyrnu og kynlíf samkyn- hneigðra í víðlesnasta dagblað landsins. En ekki í dag. Þess vegna er furðulegt að sjá hversu auðvelt það er að raska ró fólks og fá það til að hrópa: „Öfgar!“ ÖFGAHÓPAR eru þekktir fyrir flest annað en að senda frá sér ályktanir og ræða málin á netinu. Fólk sem tilheyrir öfga- hópum býr ekki heldur til myndaalbúm sem bendir fólki á það sem fólk segir á opinberum vettvangi. Loks þurfa rifrildi á netinu ekki að vera öfgafull. Það á að vera hægt að segja skoðanir sínar án þess að fá á sig stimpil. ÞEGAR Femínistafélag Íslands stofnar vélhjólasamtökin Vagínur MC og byrjar að hafa í hótunum, stunda innbrot og fremja aðra glæpi í þágu málstaðarins, þá verð- ur starfsemin komin út fyrir skynsam- leg mörk. Þegar þekkt reðurtákn eins og Smáralind og tittlingurinn sem umlykur Fjölbrautaskólann í Breiðholti (skoðið á korti) verða sprengd í loft upp, þá getum við talað um öfgar. Og þegar þekktum körlum, sem hafa viðrað skoðanir sem hugnast ekki meðlimum Femínistafélags- ins, verður rænt og þeir pyntaðir með dynjandi upplestri úr Píkusögum á meðan Run the World (Girls) með Beyoncé ómar úr öflugum hljómflutningstækjum, þá getum við bendlað samtökin við öfgar, þó hugtakið öfgafemínismi verði aldrei til. FÓLK ruglar stundum saman því að vera öfgafullur og einfaldlega róttækur. Rót- tækt fólk vill komast að rót vandans. Það getur verið vont — prófið bara að fara í íþróttanudd. En öfgafullt fólk hlýtur að berjast fyrir öðru en jafnrétti, sem er mögulega skynsamlegasta hugtak sem ég þekki. Öfgafemínismi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.