Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 82
24. mars 2012 LAUGARDAGUR46
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. glansa, 6. gjaldmiðill, 8. sjór, 9.
farvegur, 11. í röð, 12. kappsemi, 14.
teygjudýr, 16. rás, 17. fjallaskarð, 18.
fát, 20. kvað, 21. handa.
LÓÐRÉTT
1. listi, 3. í röð, 4. asfalt, 5. tímabils, 7.
röndóttur, 10. er, 13. iðn, 15. síll, 16.
iðka, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gljá, 6. kr, 8. mar, 9. rás,
11. rs, 12. ákefð, 14. amaba, 16. æð,
17. gil, 18. fum, 20. ku, 21. arma.
LÓÐRÉTT: 1. skrá, 3. lm, 4. jarðbik, 5.
árs, 7. rákaður, 10. sem, 13. fag, 15.
alur, 16. æfa, 19. mm.
Þú
heimska
be*bíp*!
Hættiði
stelpur!
Í sitthvort hornið
með ykkur! Haldiði
fjarlægð!
Í ALLT
KVÖLD!
Maður þarf
bara að vera
ákveðinn!
Ég hélt að
Palli og Halli
væru svangir.
Neibb.
Þú
misskildir.
En þeir töluðu um
mat alla leiðina
hingað.
Að skoða
„sætabrauðið“ og
„melónurnar“
hefur ekkert að gera
með mat.
**belja **skækja
Þú ódýra
skæ*bíp*!
Mér þykir það
leitt, vinur...
Engin ábyrgð á
regnhlífum!
Regn-
hlífar til
sölu
Heim-
urinn
endar í
dag!
Þegar þú segir: Þau hljóta að heyra:
Nú skulu allir
hreyfa sig
mjög hægt!
Drífa sig!
Við erum
orðin allt of
sein!
Ummæli sem frú Vigdís Finnbogadóttir lét hafa eftir sér í vikublaðinu Moni-
tor á fimmtudaginn hafa farið öfugt ofan í
marga. Spurning um öfgafemínisma vakti
hörðustu viðbrögðin, þó Vigdís hafi svarað
henni á mjög yfirvegaðan hátt. Hún varar
við öfgum, sem hún segir geta eyðilagt
góðan málstað. Það er hárrétt hjá Vigdísi,
þó hvergi hafi verið gerð tilraun til að
útskýra meintar öfgar.
ÖFGAR eru oft skilgreindar sem eitthvað
sem fer út fyrir skynsamleg mörk. Jafn-
rétti í eðli sínu fer aldrei út fyrir skyn-
samleg mörk. Þess vegna er beinlínis
hlægilegt að tala um öfgafemínisma.
Fólk getur líka alveg verið ósammála,
notað gífuryrði og viðrað skoðanir
sem stangast á við almennt viðhorf, án
þess að öfgar einkenni málflutninginn.
Einu sinni þótti eflaust öfgafullt að
skrifa um sjálfsfróun, kvenna-
knattspyrnu og kynlíf samkyn-
hneigðra í víðlesnasta dagblað
landsins. En ekki í dag. Þess
vegna er furðulegt að sjá
hversu auðvelt það er að raska
ró fólks og fá það til að hrópa:
„Öfgar!“
ÖFGAHÓPAR eru þekktir
fyrir flest annað en að senda
frá sér ályktanir og ræða málin
á netinu. Fólk sem tilheyrir öfga-
hópum býr ekki heldur til myndaalbúm
sem bendir fólki á það sem fólk segir á
opinberum vettvangi. Loks þurfa rifrildi á
netinu ekki að vera öfgafull. Það á að vera
hægt að segja skoðanir sínar án þess að fá
á sig stimpil.
ÞEGAR Femínistafélag Íslands stofnar
vélhjólasamtökin Vagínur MC og byrjar að
hafa í hótunum, stunda innbrot og fremja
aðra glæpi í þágu málstaðarins, þá verð-
ur starfsemin komin út fyrir skynsam-
leg mörk. Þegar þekkt reðurtákn eins og
Smáralind og tittlingurinn sem umlykur
Fjölbrautaskólann í Breiðholti (skoðið á
korti) verða sprengd í loft upp, þá getum
við talað um öfgar. Og þegar þekktum
körlum, sem hafa viðrað skoðanir sem
hugnast ekki meðlimum Femínistafélags-
ins, verður rænt og þeir pyntaðir með
dynjandi upplestri úr Píkusögum á meðan
Run the World (Girls) með Beyoncé ómar
úr öflugum hljómflutningstækjum, þá
getum við bendlað samtökin við öfgar, þó
hugtakið öfgafemínismi verði aldrei til.
FÓLK ruglar stundum saman því að vera
öfgafullur og einfaldlega róttækur. Rót-
tækt fólk vill komast að rót vandans. Það
getur verið vont — prófið bara að fara í
íþróttanudd. En öfgafullt fólk hlýtur að
berjast fyrir öðru en jafnrétti, sem er
mögulega skynsamlegasta hugtak sem ég
þekki.
Öfgafemínismi