Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 72
24. mars 2012 LAUGARDAGUR36
Skilgreiningar: ástarsaga eða
skvísubók?
Ástarsögur hafa notið ómældra
vinsælda allt frá því að Samu-
el Richardsson sendi frá sér sög-
una Pamela eða Laun dyggð-
arinnar árið 1740. Sú bók olli
straum hvörfum í sagnagerð þar
sem sagan var alfarið sögð út frá
sjónar horni kvenhetjunnar og
hverfðist um ástarsamband. Á
nítjándu öld tók Jane Austen við
boltanum og þróaði ástarsöguna á
svo meistaralegan hátt að enn í dag
eru sögur hennar ein helsta fyrir-
mynd bæði ástarsagnahöfunda og
skvísubókahöfundanna sem komu
fram á sjónarsviðið á tíunda ára-
tug síðustu aldar í kjölfar hinnar
óborganlegu Bridgetar Jones.
Samkvæmt skilgreiningu er
ástar saga saga þar sem megin-
áherslan liggur á að lýsa ástar-
sambandi tveggja persóna og
„verður að hafa tilfinningalega
full nægjandi endi á bjartsýnum
nótum“. Skilgreiningin á skvísu-
bókmenntum er dálítið þoku-
kenndari en á vefsíðunni chick-
lit.com eru þær skilgreindar sem
bækur um konur eftir konur sem
fjalli um hið daglega líf nútíma-
kvenna, svo sem ástarsambönd,
hjónabönd, vináttu, atvinnulífið,
áhyggjur af líkamsþyngd, fíkn og
fleira, oftast í gamansömum tón.
Tekið er fram að skvísubækur
geti ekki flokkast sem ástarsögur
þar sem áherslan á sambönd sögu-
hetjunnar við vini, fjölskyldu og
vinnufélaga hafi oft alveg jafn-
mikla vigt og ástarsamböndin.
Ástarsögur skiptast reyndar í
margar undirgreinar: ást og saka-
mál, örlagasögur, sjúkrahússögur,
sagnfræðilegar sögur og svo fram-
vegis, en ástin er þungamiðjan í
þeim öllum og óhugsandi að kven-
hetjan öðlist hamingju eftir öðrum
leiðum en hjónabandi með hinum
útvalda. Sú niðurstaða er yfirleitt
ekki sett fram með jafn afgerandi
hætti í skvísubókunum en leitin að
maka er þó ansi áberandi í þeim
flestum og oftar en ekki lýkur
þeim á því að söguhetjan er komin í
örugga höfn í faðmi hins eina rétta.
Skurðlæknir eða Colin Firth?
Flestallar hefðbundnar ástarsögur
sem koma út hérlendis eru banda-
rískar að uppruna og bera þess ótví-
ræð merki. Eins og við þekkjum
úr ótal bíómyndum og sjónvarps-
þáttum virðist hjónabandið vera
hið endanlega markmið allra banda-
rískra kvenna undir þrítugu og
söguhetjurnar í Rauðu seríunni
eru engin undantekning frá þeirri
reglu. Hjónaband eða dauði virð-
ist vera mantra sem hömruð hefur
verið inn í þær frá unga aldri. Þess-
ar sögur hafa þó að sjálfsögðu þró-
ast í takt við tíðarandann. Unga,
saklausa, óflekkaða stúlkan er nán-
ast dottin út sem söguhetja og í stað
hennar eru komnar karríerkonur á
milli tvítugs og þrítugs, sumar frá-
skildar og ótrúlega margar þeirra
eru einstæðar mæður, sem segir
sína sögu um markhópinn sem þessi
bókaflokkur vill höfða til. Þær eru
í meira og minna klúðri með líf
sitt, oft ofsóttar af fyrri maka eða
á flótta undan gömlu leyndarmáli
sem enginn má komast að. Lausn-
in er aðeins ein: hái, myndarlegi,
maðurinn sem oftar en ekki er frá-
hrindandi við fyrstu kynni og býr
kannski sjálfur yfir ógnvænlegum
leyndarmálum. Hann er í langflest-
um tilfellum læknir, lögreglumað-
ur, auðmaður frá Texas eða traustur
smábæjargæi með allt sitt á þurru.
Eftir hefðbundið vesen, misskiln-
ing og árekstra ná þau tvö saman
og leiðast inn í huglægt sólarlag.
Söguhetjur skvísubókanna eru
líka undantekningarlítið karríerkon-
ur, oft reka þær eigið fyrirtæki sem
tengist kvenlegum dyggðum. Þær
baka, prjóna, búa til blómaskreyt-
ingar og svo framvegis, ævinlega
með ótrúlegum árangri og við mikla
hrifningu allra sem komast í kynni
við framleiðslu þeirra. Vandamál
þeirra eru yfirleitt ekki eins ógn-
vekjandi og ástarsagnakvennanna,
en nóg er af vandamálunum samt og
á seinni árum hefur verið ótvíræð
tilhneiging til að láta þær einmitt
eiga óuppgerð vandamál úr fortíð-
inni sem, merkilegt nokk, drauma-
prinsinn hjálpar þeim að leysa. Þær
hafa þó haft frelsi til að gamna sér
með öðrum mönnum á leiðinni í
hjónasængina, ólíkt ástarsagna-
konunum, þannig að í því tilliti eru
skvísubækurnar tengdari raunveru-
leikanum. Draumaprinsinn er hins
vegar ósköp svipaður; í góðri stöðu,
traustur og stabíll, kannski ekkert
óskaplega spennandi (samanber
Darcy í Bridget Jones) en hefur til
að bera akkúrat þá eiginleika sem
kvenhetjan þarf á að halda til að
koma skikki á líf sitt.
Auglýsingadúkkur og draugar
Það sem kannski aðskilur ástarsög-
ur og skvísubækur mest er að enn
sem komið er standa raunverulegir
höfundar að baki skvísubókunum,
konur sem geta komið fram undir
nafni, mætt í sjónvarpsviðtöl og
upplestratúra, verið gangandi aug-
lýsing fyrir karríerkonuna sem þær
skrifa um. Raunar hafa þær raddir
orðið æ háværari í seinni tíð að rit-
stjórnarstefna forlaganna sé sú að
steypa allar þessar sögur í sama
mótið og að höfundarnir þekki tæp-
ast eigin verk þegar þau birtast á
prenti, þannig að höfundurinn er
kannski á leið með að verða auglýs-
ingabrella sem á lítið af textanum í
bókinni sem við hann er kennd.
Ástarsögurnar sem hér koma
út í Rauðu seríunni koma allar frá
bandaríska bókaforlaginu Harle-
quin sem hefur á sínum snærum
fjölda draugapenna sem framleiða
ástarsögur eftir fyrirfram gefinni
formúlu í massavís. Uppdiktuð,
grípandi nöfn eru síðan sett á kápur
bókanna þar sem bók verður að eiga
sér höfund, hvort sem hann er raun-
verulegur eða ekki. Aldrei mæta þó
höfundar slíkra sagna í viðtöl eða
upplestra eins og gefur að skilja.
Þeir eru ekki til.
Ástin blívur
Endalaust er hægt að velta því fyrir
sér hvað valdi því að þessir tveir
bókaflokkar einoka nánast markað-
inn í því sem útgefið er fyrir konur.
Eitt er þó alveg á hreinu: Hvort
sem konur velja sér hefðbundnar
ástarsögur eða harðsoðnar skvísu-
bækur til að örva drauma sína og
flýja veruleikann þá er ljóst að stór
hópur kvenna vill bækur sem fjalla
um leitina að ástinni. Það mun vart
breytast í bráð, enda eins gott fyrir
viðhald mannkynsins að konur
ímyndi sér að ást og hjónaband sé
leiðin að hamingjunni.
H
reinræktaðar
ástar sögur voru
alvöru bækur
þegar ég var að
alast upp. Komu
út í löngum
röðum, innbundnar með tælandi
kápumyndum fyrir hver jól og var
flíkað í bókahillum þjóðarinnar
rétt eins og öðrum bókum. Ther-
esa Charles, Ib Cavling, Barbara
Cartland, Victoria Holt og Bodil
Fossberg áttu skáldsögur í hverju
jólabókaflóði og voru meðal mest
lesnu höfundanna, þótt þau kæm-
ust kannski ekki í sömu hæðir og
Alistair MacLean og Ken Foll-
et. Ástarsögurnar gegndu hlut-
verki sápuóperanna áður en sjón-
varpsútsendingar hófust og ekki
fór mikið fyrir því í umræðunni
að konur skömmuðust sín fyrir að
lesa þess konar bókmenntir.
Á níunda áratugnum hafði
kvennabaráttunni vaxið það
sprettharður fiskur um hrygg að
bóla fór á skömmustu hjá aðdá-
endum ástarsagna. Auðvitað gat
ekki nokkur meðvituð kona verið
þekkt fyrir að lesa slíkan þvætt-
ing, sem gerði konur að kynferð-
islegum viðföngum sem þurftu
að reiða sig á einhvern karlpung
til að komast áfram í lífinu. Ást-
arsögurnar urðu æ sjaldséðari á
útgáfulistum stóru forlaganna og
upp spruttu lítil forlög sem gáfu
slíkar bækur út í ódýrum kilju-
útgáfum. Ástar sagan var orðin
nokkurs konar neðanjarðarvarn-
ingur sem konur stálust til að
kaupa og lesa í laumi eins og karl-
ar klámblöð.
Markaðurinn þurfti þó auðvit-að
enn að svala þörfum þeirra
kvenna sem langaði að lesa létt-
meti um eigið líf og drauma.
Útkoma Dagbókar Bridget Jones
árið 1996 hrinti af stað flóðbylgju
bóka um líf ungra kvenna í maka-
leit, sem markaðssettar voru með
því fororði að þetta væru sko alls
ekki ástarsögur heldur skemmti-
bækur um vandamál hins dag-
lega lífs. Ekki sér fyrir endann á
skvísubókabylgjunni en á seinni
árum hefur sú tilfinning orðið
áleitnari að skilin á milli ástar-
sagna og skvísubóka hafi orðið
þynnri og séu kannski um það bil
að mást út.
Kannski sé ég draumaprinsinn
Eru ástarsögur ómerkilegt rusl en skvísubækur raunsönn lýsing á lífi nútímakvenna? Er mikill munur á kvenhetjum í þessum
bókmenntagreinum eða er þetta allt sama tóbakið? Friðrika Benónýsdóttir rýndi í bækur um konur og ástina.
ÁSTIN SIGRAR Gamli ævintýraendirinn: „Þau lifðu hamingjusöm upp frá því“ lifir góðu lífi í ólíkum bókum ætluðum konum.
Yfirskvísa skvísubókanna, Carrie Bradshaw úr Sex
and the City, verður ástfangin af Mr. Big í bókinni
og þar af leiðandi í fyrstu seríu sjónvarpsþáttanna
sem á henni byggja. Mr. Big fylgir nákvæmlega for-
skrift ástarsagnanna um það hvernig draumaprins
skuli vera: Hávaxinn, dökkhærður og hættulegur
auðkýfingur og kvennagull sem Carrie á í mesta
basli við að koma böndum á. Dínamík þáttanna
byggist að miklu leyti á sundur/saman sambandi
þeirra og ást Carrie virðist ekki endurgoldin. Auð-
vitað ná þau þó saman á endanum. Annað væri
brot á öllum náttúrulögmálum ástarsagna.
UPPSKRIFT AÐ DRAUMAPRINSINUM