Fréttablaðið - 24.03.2012, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 24.03.2012, Blaðsíða 72
24. mars 2012 LAUGARDAGUR36 Skilgreiningar: ástarsaga eða skvísubók? Ástarsögur hafa notið ómældra vinsælda allt frá því að Samu- el Richardsson sendi frá sér sög- una Pamela eða Laun dyggð- arinnar árið 1740. Sú bók olli straum hvörfum í sagnagerð þar sem sagan var alfarið sögð út frá sjónar horni kvenhetjunnar og hverfðist um ástarsamband. Á nítjándu öld tók Jane Austen við boltanum og þróaði ástarsöguna á svo meistaralegan hátt að enn í dag eru sögur hennar ein helsta fyrir- mynd bæði ástarsagnahöfunda og skvísubókahöfundanna sem komu fram á sjónarsviðið á tíunda ára- tug síðustu aldar í kjölfar hinnar óborganlegu Bridgetar Jones. Samkvæmt skilgreiningu er ástar saga saga þar sem megin- áherslan liggur á að lýsa ástar- sambandi tveggja persóna og „verður að hafa tilfinningalega full nægjandi endi á bjartsýnum nótum“. Skilgreiningin á skvísu- bókmenntum er dálítið þoku- kenndari en á vefsíðunni chick- lit.com eru þær skilgreindar sem bækur um konur eftir konur sem fjalli um hið daglega líf nútíma- kvenna, svo sem ástarsambönd, hjónabönd, vináttu, atvinnulífið, áhyggjur af líkamsþyngd, fíkn og fleira, oftast í gamansömum tón. Tekið er fram að skvísubækur geti ekki flokkast sem ástarsögur þar sem áherslan á sambönd sögu- hetjunnar við vini, fjölskyldu og vinnufélaga hafi oft alveg jafn- mikla vigt og ástarsamböndin. Ástarsögur skiptast reyndar í margar undirgreinar: ást og saka- mál, örlagasögur, sjúkrahússögur, sagnfræðilegar sögur og svo fram- vegis, en ástin er þungamiðjan í þeim öllum og óhugsandi að kven- hetjan öðlist hamingju eftir öðrum leiðum en hjónabandi með hinum útvalda. Sú niðurstaða er yfirleitt ekki sett fram með jafn afgerandi hætti í skvísubókunum en leitin að maka er þó ansi áberandi í þeim flestum og oftar en ekki lýkur þeim á því að söguhetjan er komin í örugga höfn í faðmi hins eina rétta. Skurðlæknir eða Colin Firth? Flestallar hefðbundnar ástarsögur sem koma út hérlendis eru banda- rískar að uppruna og bera þess ótví- ræð merki. Eins og við þekkjum úr ótal bíómyndum og sjónvarps- þáttum virðist hjónabandið vera hið endanlega markmið allra banda- rískra kvenna undir þrítugu og söguhetjurnar í Rauðu seríunni eru engin undantekning frá þeirri reglu. Hjónaband eða dauði virð- ist vera mantra sem hömruð hefur verið inn í þær frá unga aldri. Þess- ar sögur hafa þó að sjálfsögðu þró- ast í takt við tíðarandann. Unga, saklausa, óflekkaða stúlkan er nán- ast dottin út sem söguhetja og í stað hennar eru komnar karríerkonur á milli tvítugs og þrítugs, sumar frá- skildar og ótrúlega margar þeirra eru einstæðar mæður, sem segir sína sögu um markhópinn sem þessi bókaflokkur vill höfða til. Þær eru í meira og minna klúðri með líf sitt, oft ofsóttar af fyrri maka eða á flótta undan gömlu leyndarmáli sem enginn má komast að. Lausn- in er aðeins ein: hái, myndarlegi, maðurinn sem oftar en ekki er frá- hrindandi við fyrstu kynni og býr kannski sjálfur yfir ógnvænlegum leyndarmálum. Hann er í langflest- um tilfellum læknir, lögreglumað- ur, auðmaður frá Texas eða traustur smábæjargæi með allt sitt á þurru. Eftir hefðbundið vesen, misskiln- ing og árekstra ná þau tvö saman og leiðast inn í huglægt sólarlag. Söguhetjur skvísubókanna eru líka undantekningarlítið karríerkon- ur, oft reka þær eigið fyrirtæki sem tengist kvenlegum dyggðum. Þær baka, prjóna, búa til blómaskreyt- ingar og svo framvegis, ævinlega með ótrúlegum árangri og við mikla hrifningu allra sem komast í kynni við framleiðslu þeirra. Vandamál þeirra eru yfirleitt ekki eins ógn- vekjandi og ástarsagnakvennanna, en nóg er af vandamálunum samt og á seinni árum hefur verið ótvíræð tilhneiging til að láta þær einmitt eiga óuppgerð vandamál úr fortíð- inni sem, merkilegt nokk, drauma- prinsinn hjálpar þeim að leysa. Þær hafa þó haft frelsi til að gamna sér með öðrum mönnum á leiðinni í hjónasængina, ólíkt ástarsagna- konunum, þannig að í því tilliti eru skvísubækurnar tengdari raunveru- leikanum. Draumaprinsinn er hins vegar ósköp svipaður; í góðri stöðu, traustur og stabíll, kannski ekkert óskaplega spennandi (samanber Darcy í Bridget Jones) en hefur til að bera akkúrat þá eiginleika sem kvenhetjan þarf á að halda til að koma skikki á líf sitt. Auglýsingadúkkur og draugar Það sem kannski aðskilur ástarsög- ur og skvísubækur mest er að enn sem komið er standa raunverulegir höfundar að baki skvísubókunum, konur sem geta komið fram undir nafni, mætt í sjónvarpsviðtöl og upplestratúra, verið gangandi aug- lýsing fyrir karríerkonuna sem þær skrifa um. Raunar hafa þær raddir orðið æ háværari í seinni tíð að rit- stjórnarstefna forlaganna sé sú að steypa allar þessar sögur í sama mótið og að höfundarnir þekki tæp- ast eigin verk þegar þau birtast á prenti, þannig að höfundurinn er kannski á leið með að verða auglýs- ingabrella sem á lítið af textanum í bókinni sem við hann er kennd. Ástarsögurnar sem hér koma út í Rauðu seríunni koma allar frá bandaríska bókaforlaginu Harle- quin sem hefur á sínum snærum fjölda draugapenna sem framleiða ástarsögur eftir fyrirfram gefinni formúlu í massavís. Uppdiktuð, grípandi nöfn eru síðan sett á kápur bókanna þar sem bók verður að eiga sér höfund, hvort sem hann er raun- verulegur eða ekki. Aldrei mæta þó höfundar slíkra sagna í viðtöl eða upplestra eins og gefur að skilja. Þeir eru ekki til. Ástin blívur Endalaust er hægt að velta því fyrir sér hvað valdi því að þessir tveir bókaflokkar einoka nánast markað- inn í því sem útgefið er fyrir konur. Eitt er þó alveg á hreinu: Hvort sem konur velja sér hefðbundnar ástarsögur eða harðsoðnar skvísu- bækur til að örva drauma sína og flýja veruleikann þá er ljóst að stór hópur kvenna vill bækur sem fjalla um leitina að ástinni. Það mun vart breytast í bráð, enda eins gott fyrir viðhald mannkynsins að konur ímyndi sér að ást og hjónaband sé leiðin að hamingjunni. H reinræktaðar ástar sögur voru alvöru bækur þegar ég var að alast upp. Komu út í löngum röðum, innbundnar með tælandi kápumyndum fyrir hver jól og var flíkað í bókahillum þjóðarinnar rétt eins og öðrum bókum. Ther- esa Charles, Ib Cavling, Barbara Cartland, Victoria Holt og Bodil Fossberg áttu skáldsögur í hverju jólabókaflóði og voru meðal mest lesnu höfundanna, þótt þau kæm- ust kannski ekki í sömu hæðir og Alistair MacLean og Ken Foll- et. Ástarsögurnar gegndu hlut- verki sápuóperanna áður en sjón- varpsútsendingar hófust og ekki fór mikið fyrir því í umræðunni að konur skömmuðust sín fyrir að lesa þess konar bókmenntir. Á níunda áratugnum hafði kvennabaráttunni vaxið það sprettharður fiskur um hrygg að bóla fór á skömmustu hjá aðdá- endum ástarsagna. Auðvitað gat ekki nokkur meðvituð kona verið þekkt fyrir að lesa slíkan þvætt- ing, sem gerði konur að kynferð- islegum viðföngum sem þurftu að reiða sig á einhvern karlpung til að komast áfram í lífinu. Ást- arsögurnar urðu æ sjaldséðari á útgáfulistum stóru forlaganna og upp spruttu lítil forlög sem gáfu slíkar bækur út í ódýrum kilju- útgáfum. Ástar sagan var orðin nokkurs konar neðanjarðarvarn- ingur sem konur stálust til að kaupa og lesa í laumi eins og karl- ar klámblöð. Markaðurinn þurfti þó auðvit-að enn að svala þörfum þeirra kvenna sem langaði að lesa létt- meti um eigið líf og drauma. Útkoma Dagbókar Bridget Jones árið 1996 hrinti af stað flóðbylgju bóka um líf ungra kvenna í maka- leit, sem markaðssettar voru með því fororði að þetta væru sko alls ekki ástarsögur heldur skemmti- bækur um vandamál hins dag- lega lífs. Ekki sér fyrir endann á skvísubókabylgjunni en á seinni árum hefur sú tilfinning orðið áleitnari að skilin á milli ástar- sagna og skvísubóka hafi orðið þynnri og séu kannski um það bil að mást út. Kannski sé ég draumaprinsinn Eru ástarsögur ómerkilegt rusl en skvísubækur raunsönn lýsing á lífi nútímakvenna? Er mikill munur á kvenhetjum í þessum bókmenntagreinum eða er þetta allt sama tóbakið? Friðrika Benónýsdóttir rýndi í bækur um konur og ástina. ÁSTIN SIGRAR Gamli ævintýraendirinn: „Þau lifðu hamingjusöm upp frá því“ lifir góðu lífi í ólíkum bókum ætluðum konum. Yfirskvísa skvísubókanna, Carrie Bradshaw úr Sex and the City, verður ástfangin af Mr. Big í bókinni og þar af leiðandi í fyrstu seríu sjónvarpsþáttanna sem á henni byggja. Mr. Big fylgir nákvæmlega for- skrift ástarsagnanna um það hvernig draumaprins skuli vera: Hávaxinn, dökkhærður og hættulegur auðkýfingur og kvennagull sem Carrie á í mesta basli við að koma böndum á. Dínamík þáttanna byggist að miklu leyti á sundur/saman sambandi þeirra og ást Carrie virðist ekki endurgoldin. Auð- vitað ná þau þó saman á endanum. Annað væri brot á öllum náttúrulögmálum ástarsagna. UPPSKRIFT AÐ DRAUMAPRINSINUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.