Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.03.2012, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 24.03.2012, Qupperneq 12
12 24. mars 2012 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Formenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins not-uðu nýafstaðna flokksráðs-fundi til að lýsa yfir því að kosningabaráttan væri hafin þó að meir en ár lifi af kjörtímabilinu. Forsætisráðherrann hóf barátt- una með því að kalla eftir þjóðar- sátt um upptöku evru og inngöngu í Evrópusambandið. Enginn annar forsætisráðherra hefur jafn oft og á jafn skömmum tíma kallað eftir þjóðarsátt um öll möguleg mál. Að sama skapi hefur enginn staðið jafn lengi í sömu sporum og talað upp í vindinn. Formaður Sjálfstæðisflokks- ins hóf baráttuna á hinn bóginn með afgerandi yfirlýsingu um að flokkurinn ætli að standa vörð um krónuna. Að hans mati á efnahagsstjórnin að byggjast á sveigjanleika hennar enda hafi það reynst vel nema þegar illa var stjórnað. Með þessu stað- setur Sjálfstæðisflokkurinn sig við hliðina á VG og núverandi efna- hagsráðherra að því er tekur til peningamálanna. Öfugmælin í þessu öllu eru þau að forsætisráðherrann kemur fram með ákall um þjóðarsátt gegn stefnu samstarfsflokksins í pen- ingamálum sem ræður þó för rík- isstjórnarinnar á því sviði og ber stjórnskipulega ábyrgð á mála- flokknum. Varla er unnt að hugsa upp dæmi um meiri pólitíska sjálf- heldu en þessa enda eru peninga- málin sá öxull sem allt annað snýst um. Það athygliverða er að engin við- brögð eru við þjóðarsáttarákallinu nú fremur en í fyrri tilvikum. For- sætisráðherra hlýtur að velta því fyrir sér hvers vegna enginn hefur nokkru sinni tekið mark á áköllum hans um þjóðarsátt; ekki samherj- ar í þingflokknum, ekki samstarfs- flokkurinn, ekki hagsmunasamtök- in og ekki stjórnarandstaðan. Talað upp í vindinn ÞORSTEINN PÁLSSON Eina rökræna skýring-in er sú að hugur hafi aldrei fylgt máli. Ef svo hefði verið hefði forsæt- isráðherra sýnt þjóðinni fram á að það hefði pólitískar afleiðingar að hunsa ákall um þjóðarsátt, því það er stórt orð Hákot. Þess í stað er ákallið orðið eins og kækur sem enginn tekur eftir lengur. Að því er peningamálin varð- ar hefur tvískinnungurinn gagn- vart inngöngu í Evrópusamband- ið og myntbandalagið komið fram með margvíslegu móti. Forsæt- isráðherra notaði til að mynda þriggja ára afmæli ríkisstjórnar- innar til að senda þau skilaboð að þrátt fyrir ákvörðun Alþingis um aðildarumsókn væri ríkisstjórn- in aðeins að skoða kosti og galla aðildar. Aðild að Evrópska myntbanda- laginu krefst samhæfðrar og aðhaldssamrar stefnu í ríkisfjár- málum og peningamálum. For- sætisráðherra hefur á hinn bóginn verið helsti talsmaður þess að láta undan þrýstingi um aukin útgjöld. Á síðasta ári var ákveðið að slá á frest markmiðinu um jöfnuð í rík- isfjármálum sem upphaflega var sett í efnahagsáætlun fyrri rík- isstjórnar og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Þá hefur flokkur forsætisráð- herrans tekið virkan þátt í því með VG að halda fjármögnun á margvíslegum stórum opinberum framkvæmdum og viðfangsefnum utan við efnahagsreikning ríkis- sjóðs. Þó að þetta sé gert fyrir opnum tjöldum eru efnahagsleg áhrif slíkra bókhaldsbragða svip- uð og menn þekkja frá Grikklandi. Þetta sýnir að ríkisstjórn forsætis- ráðherra er á leiðinni frá evrunni en ekki til hennar. Hugur þarf að fylgja máli Verðmætasköpun er önnur forsenda þess að unnt sé að taka upp evru. Forsætisráð - herra hefur hins vegar staðið þétt með VG í að leggja steina í götu orkunýtingar. Mikilvægasta stefnumálið er síðan að draga úr þjóðhagslegri hagkvæmni í sjáv- arútvegi. Á öllum þessum sviðum geng- ur forsætisráðherra þvert gegn þeim efnahagslegu markmiðum sem þjóðin þarf að nálgast eigi hún að geta uppfyllt þau skilyrði sem aðild að alþjóðlegu myntsam- starfi krefst. Frjálslyndari armi Samfylkingarinnar, sem vill laga efnahagsstefnuna að markmiðinu um Evrópusambandsaðild, hefur verið ýtt til hliðar. Forystumenn hans eru nú að mestu áhrifalausir. Hugmyndin um þjóðarsátt er sannarlega góðra gjalda verð. Í öllum þróuðum ríkjum hefði ákall forsætisráðherra um þjóðarsátt í svo stóru máli snúið stjórnmála- umræðunni við. Um annað hefði ekki verið talað. Hér ríkir graf- arþögn. Hefði hugur fylgt máli hefðu málamiðlanir á sviði ríkis- fjármála, orkumála og sjávarút- vegsmála fylgt þjóðarsáttarákall- inu. Þá hefði enginn getað skellt við skollaeyrum. Að þessu virtu er ljóst að for- sætisráðherra ber pólitíska ábyrgð á þeirri erfiðu stöðu sem aðildarumsóknin er komin í. Nái frjálslyndari armur Samfylk- ingarinnar ekki vopnum sínum missir flokkurinn einfaldlega allan trúverðugleika sem forystu- flokkur fyrir nýrri peningapólitík og Evrópusambandsaðild. Verk- urinn er sá að ekki er ljóst hver gæti tekið við því kefli að kosn- ingum loknum. Enginn trúverðugleiki F yrr í vikunni afhenti Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra fyrir hönd Íslendinga nýjan spítala í Monkey Bay í Malaví. Spítalinn hefur verið meira en áratug í byggingu og hefur þegar breytt heilbrigðisástandi til hins betra í 125.000 manna héraði sem hann þjónar. Meðal annars hefur dregið talsvert úr mæðra- og ungbarnadauða. Fréttin af afhendingu spítalans var varla komin í loftið þegar Guðmundur Franklín Jónsson, formaður stjórnmálaflokksins Hægri grænna, skrifaði á vef DV: „Við erum að loka heilsu- gæslustöðvum, elliheimilum og sjúkrahúsum um allt land. Læknar og hjúkrunarfólk flýr í stórum stíl, og á meðan erum við að reisa spítala í Malaví – Þvílíkt rugl, en mjög passandi að þetta sé í Monkey Bay og Össur ætti að halda sig þar.“ Já, hversu apalegt ætli ástandið sé á heilbrigðiskerfinu í Malaví? Það er eitt fátækasta ríki heims, númer 171 af 187 á þróunarlista Sameinuðu þjóðanna. Lífslíkur eru 43 ár. Mæðradauði er þúsund konur á hverjar 100.000 fæðingar. Áttunda hvert barn deyr áður en það nær fimm ára aldri. Meðal dánarorsaka eru vannæring, malaría og niðurgangur sem orsakast af lélegu drykkjarvatni. Fjórðungur þjóðarinnar hefur ekki aðgang að hreinu vatni. Æpandi skortur er á heilbrigðisstarfsfólki, heilsugæzlustöðvum og spítölum. Í menntakerfinu er ástandið ekki mikið skárra. Fimmta hvert barn fær aldrei að fara í skóla. Helmingur kvenna og fjórðungur karla kann ekki að lesa. Skólana og kennarana vantar. Sum þorp búa svo vel að hafa kennara en af því að enginn er skólinn er kennt undir tré. Ísland hefur vissulega þurft að draga saman seglin í einu dýr- asta heilbrigðiskerfi í heimi. Þjónustan er samt áfram með því bezta sem gerist. Hér deyr heldur enginn af því að hann hefur ekki aðgang að hreinu vatni. Mæðra- og ungbarnadauði þekk- ist varla. Við sem búum í landi númer fjórtán á áðurnefndum þróunarlista höfum það svo margfalt betra en fólkið í Malaví að við höfum vel efni á að hjálpa því, þótt í litlu sé. Við þurfum ekki bara að glápa á naflann á sjálfum okkur. Á vegum Þróunarsamvinnustofnunar hafa verið reistir spít- alar og heilsugæzlustöðvar í Malaví, skólar byggðir og brunnar grafnir. Allt er þetta í smáum stíl, en hefur engu að síður bætt lífsgæði hundraða þúsunda manna og bjargað ófáum mannslífum. Þakklætið fyrir þessa aðstoð er ósvikið. Það er rétt, sem djúphugull leiðtogi Hægri grænna segir, að Ísland getur ekki bjargað heiminum. En við getum lagt okkar af mörkum í viðleitni ríku landanna til að hjálpa þeim fátæku. Þar stöndum við okkur raunar miklu verr en flest nágrannalönd okkar, sem leggja áfram sitt af mörkum til þróunaraðstoðar þrátt fyrir niðurskurð útgjalda heima fyrir. Okkur ber ekki eingöngu siðferðileg skylda til að hjálpa fátæk- ustu ríkjum heims til sjálfshjálpar. Það eru beinharðir hagsmunir þróaðra ríkja að draga úr fátækt í þriðja heiminum og stuðla þannig að friði og stöðugleika, hefta uppgang öfgahreyfinga og koma í veg fyrir flóttamannavandamál. Þróunarsamvinna er þess vegna ekkert rugl, þótt slíkur málflutningur henti stundum til atkvæðaveiða. Hafa Íslendingar efni á þróunaraðstoð? Númer 14 og 171 Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.