Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 20
20 24. mars 2012 LAUGARDAGUR
Tíðni fóstureyðinga í hópi stúlkna 15-19 ára var hæst
hér á landi árið 2000 miðað við
önnur norræn ríki en verulega
hefur dregið úr þeim á síðustu
árum. Árið 2000 var tíðni fæddra
barna 15-19 ára íslenskra stúlkna
mun hærri en hjá öðrum norræn-
um þjóðum en bilið hefur minnk-
að töluvert. Þrátt fyrir það er
tíðni fæddra barna ennþá hæst
hérlendis. Lægst var tíðnin árið
2004 þegar 134 börn fæddust, en
hæst árið 2000 þegar 244 börn
fæddust. Á árinu 2010 fæddust
149 börn 14-19 ára mæðra en það
eru um 3% af heildarfjölda fæð-
inga það ár.
Þrátt fyrir að dregið hafi veru-
lega úr fóstureyðingum í hópi
15-19 ára stúlkna hérlendis á und-
anförnum árum þarf að hafa í
huga að ennþá fer stór hópur þessa
aldurshóps í fóstureyðingu árlega.
Samkvæmt tölum landlæknis
hefur að meðaltali um 191 stúlka
á ári undir 19 ára aldri farið í
fóstureyðingu hér á landi undan-
farin 10 ár, þ.e.a.s. að á hverju ein-
asta ári hafa að meðaltali um 350
ungar stúlkur undir 19 ára aldri
þurft að taka þessa þungu ákvörð-
un að annað hvort láta eyða fóstri
eða fæða barn með því hugarangri
sem slíkri ákvörðun fylgir.
Áhyggjur af fjölda þungana og
fóstureyðinga unglingsstúlkna
Með nýju frumvarpi velferðarráð-
herra er verið að bregðast við til-
mælum frá Sameinuðu þjóðunum,
nánar tiltekið barnaréttarnefnd
þeirrar stofnunar. Þar hafa menn
haft áhyggjur af fjölda þungana og
fóstureyðinga ungra stúlkna hér
á landi. Í skýrslu nefndarinnar
er bent á að mögulegar ástæður
fyrir þessum háu tölum séu ein-
mitt lélegt aðgengi að getnaðar-
vörnum á Íslandi. Einnig hefur
skortur á þekkingu um kynheil-
brigði hjá ungu fólki verið nefnd-
ur sem möguleg ástæða sem og
skortur á ráðgjafaþjónustu. Þegar
kannaður hefur verið hugur ungs
fólks kemur fram að það vill geta
leitað á sérhæfða móttöku fyrir
ungt fólk, móttöku sem einblín-
ir á fræðslu og ráðgjöf, m.a. um
getnaðarvarnir. Langflestir sem
skrifa um þessi mál, bæði erlend-
is og hérlendis, eru sammála um
að gott aðgengi að getnaðarvörn-
um sé eitt af því sem skiptir höf-
uðmáli í að fækka unglingsþung-
unum.
Bágborin þjónusta við unglinga
Í dag bjóða aðeins tvær heilsu-
gæslur á Íslandi upp á unglinga-
móttökur, á Selfossi og á Akureyri.
Markmið þeirra er meðal annars
að draga úr ótímabærum þung-
unum ungra stúlkna með fræðslu
og gera aðgengi að getnaðarvörn-
um greiðara. Mikilvægt er að líta
til þeirra landa sem standa hvað
best að þessum málaflokki, þar
er aðgengi að getnaðarvörnum
gott og mikil áhersla lögð á kyn-
fræðslu.
Í stað þess að fækka unglinga-
móttökum, eins og gert hefur
verið, þarf að efla þær og eins að
efla kynheilbrigðisþjónustu við
unglinga í heild sinni. Kynheil-
brigðisþjónustan þarf að miða við
þarfir þessa aldurshóps. Við, sem
samfélag, verðum að leitast við
að standa saman um að styðja við
og fræða unglingana um hversu
mikil ábyrgð því fylgir að stunda
kynlíf. Við eigum að vera tilbúin
að ræða við unglinga á heiðvirðan
hátt um kynlíf hvort sem við erum
í hlutverki foreldra, kennara eða
heilbrigðisstarfsmanna sem vinna
með unglingum. Því er brýn nauð-
syn að bæta þjónustu við þennan
hóp og eðlilegt væri að sem flestar
heilsugæslustöðvar á landinu byðu
upp á unglingamóttöku.
Ljósmæður og hjúkrunarfræð-
ingar eru faghópar sem hafa
mikla reynslu og þekkingu á sviði
kynheilbrigðisþjónustu. Ábyrgð
þeirra er að veita bestu mögulegu
heilbrigðisþjónustu sem völ er á.
Eflum kynheilbrigðisþjónustu við
unglinga okkar. Þeir eiga það svo
sannarlega skilið.
Mamma ég er ólétt!
Nú geisa sem oft áður ýmis mold-viðri um hið pólitíska landslag
og fer slíkt fram hjá fáum. Hætt
er við að þegar mökkurinn er sem
mestur sjáist lítið úr augum og
menn láti þá mikilvæg kennileiti
fram hjá sér fara. Eitt það mikil-
vægasta sem stjórnmál snúast um
er setning laga, sem við gildistöku
verða hinn eiginlegi grunnur sem
samfélag okkar byggir á. Ein slík
lög eru nú um stundir í undirbún-
ingi og gætu farið fram hjá þeim
sem ekki vita – en vildu vita. Lög
um dýravelferð.
Ný lög um málefni dýra hafa lengi
verið í smíðum og hefur mikið verið
til þeirra vandað. Lokadrög laganna
fóru inn í ráðuneyti í maí á síðasta
ári og eru nú komin þaðan inn á borð
stjórnarflokkanna, en fara síðan í
nefnd, væntanlega umhverfisnefnd,
áður en þau koma formlega á borð
Alþingis. Drögin sem fóru inn í
ráðuneytið taka til margra þátta
um velferð dýra sem ekki er víst
að hagsmunaaðilar sætti sig að öllu
leyti við, enda gæti þar verið þrengt
að beinum hagnaði þeirra og gerð
krafa til vandaðri umsýslu um með-
ferð dýranna en nú er. Í vinnu við
lög sem þessi eru drög iðulega send
til umsagnar og frekari úrvinnslu
þeirra sem hagsmuna hafa að gæta í
þeim málaflokki sem við á. Þótt það
virðist ef til vill sérstakt að að tala
um dýr sem beina hagsmunaaðila, í
hvaða samhengi sem er, þá blasir þó
við að í þessu máli eru dýrin einmitt
beinir hagsmunaaðilar. Dýr hafa
auðvitað ekki rödd til að koma fram
með sín málefni; ekki nema í gegn-
um okkur, menn og konur sem láta
sig aðbúnað og málefni dýra varða.
Velbú eru íslensk félagasamtök
um velferð búfjár. Við teljum mik-
ilvægt að vernda hinn hefðbundna
íslenska fjölskyldubúskap, þar sem,
þegar forsendur eru eðlilegar, er
almennt farið vel með dýr - og við
viljum sporna af krafti gegn því
sem nú er kallað verksmiðjufram-
leiðsla, þar sem hagsmunir dýr-
anna eru iðulega fyrir borð bornir.
Það síðarnefnda er nokkuð vel falið
fyrir almenningi og margir gera
því miður ekki greinarmun á þessu
tvennu, hefðbundnum búskap og
verksmiðjuframleiðslu dýra.
Við biðjum þá sem ekki er sama
um hag dýranna um að fylgjast með
þessum lögum og kynna sér drög-
in að þeim. Drögin má finna (eftir
nokkra leit) inni á vef landbúnað-
arráðuneytisins, en einnig sendum
við í Velbú þau til þeirra sem þess
óska. Sérstaklega er mikilvægt að
skima þann mun sem er á drögunum
og þeim lögum sem lögð verða fyrir
Alþingi. Hér þarf að hafa hagsmuni
dýranna í huga. Með því að taka þátt
í samtali samfélagsins um þessi mál
er hægt að færa þau til betri vegar
og verður hver að hafa trú á að hans
framlag skipti máli. Sérhver Íslend-
ingur sem sendir kurteisa fyrir-
spurn um þessi mál til ráðuneytis,
nefndar, alþingismanna eða lætur á
annan hátt í sér heyra á málefnaleg-
an máta, leggur þannig á vogarskál-
arnar þá vigt sem að lokum verður
nógu þung til að skipta máli. Van-
metum það ekki. Verum til staðar
fyrir dýrin.
Velviljaðir dýrum,
vinsamlega athugiðSamfélagsmál
Esther Ósk
Ármannsdóttir
formaður
Ljósmæðrafélagsins
Dýravernd
Hallgerður
Hauksdóttir
stjórnarmaður í Velbú,
félagasamtökum um
velferð búdýra
Í stað þess að fækka unglingamót-
tökum, eins og gert hefur verið, þarf að
efla þær og eins að efla kynheilbrigðis-
þjónustu við unglinga í heild sinni. Kynheilbrigðis-
þjónustan þarf að miða við þarfir þessa aldurshóps.
LÍFIÐ ER FERÐALAG
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
U
TI
5
90
49
0
3/
12
TILBOÐ 16.990 KR.
HIGH PEAK NEVADA
Þriggja manna tjald með fortjaldi.
Vatnsheldni: 2.000 mm.
Þyngd: 3.980 g.
Verð áður: 19.990 kr.
TILBOÐ 14.990 KR.
TNF ALEUTIAN
Hentugur til notkunar sumar, vor
og haust.
Þyngd 1.545 g.
Þolmörk -5°C.
Verð áður: 19.990 kr.
ÚRVAL FERMINGARGJAFA Á FRÁBÆRU VERÐI
TILBOÐ 18.990 KR.
HIGH PEAK TRANGO 65
Vandaður og traustur bakpoki
með góðu burðarkerfi.
Þyngd: 1.850 g.
Verð áður: 23.990 kr.
TILBOÐ 29.990 KR.
HIGH PEAK VIPER 1400
Vandaður léttur dúnsvefnpoki.
Þolmörk: -6°C.
Þyngd: 1.275 g.
Þriggja árstíða.
Verð áður: 39.990 kr.
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS