Fréttablaðið - 24.03.2012, Qupperneq 32
24. mars 2012 LAUGARDAGUR32
Ég er sjóðandi ill nú þegar búið er að þrífa og mála skólavegginn
fjórum sinnum til að losna við veggjakrot. Sköpunargleði er aðdáunar-
verð en fólk ætti að finna leiðir til að tjá sig sem íþyngja ekki þjóð-
félaginu með aukakostnaði. Til hvers að skemma orðstír unga fólksins
með því að krota á veggi þar sem það er bannað? Atvinnulistamenn
hengja ekki málverkin sín upp úti á götu, eða hvað? Þess í stað leita
þeir fjármögnunar og verða frægir með því að sýna á löglegan hátt. Að mínu mati eru hús, grindverk og garðbekkir listmunir í sjálfu sér. Það
er ömurlegt að skemma þessa byggingarlist með veggjakroti og það
sem meira er; aðferðin eyðir ósónlaginu. Ég skil ekki af hverju þessir
brotlegu listamenn eru að hafa fyrir þessu þar sem „listaverk” þeirra
eru bara fjarlægð aftur og aftur.
Helga
■ ALMAR M. HALLDÓRSSON
■ VEGGJAKROT
Lestu bréfin og svaraðu svo spurningunum.
Taktu litla PISA-prófið
Þekkir þú námsefnið úr grunnskóla nægilega vel til að það nýtist þér í daglegu lífi? Taktu þetta litla
próf og kannaðu málið. Hafðu samt í huga að hið raunverulega PISA-próf samanstendur af 100 spurn-
ingum og það tekur 2 klukkustundir að svara því.
■ HVERNIG GEKK ÞÉR?
EINBEITT Í PRÓFI Þessir nemendur spreyttu sig á Pisa-prófinu í Hólabrekkuskóla á fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
V ið höfum mýmörg dæmi um að niðurstöðurnar úr PISA-könnuninni hafi nýst beint í skóla-
starfinu, bæði við stefnumótun og til upplýsinga,“
segir Almar M. Halldórsson, verkefnastjóri hjá
Námsmatsstofnun, sem hefur meðal annars PISA-
könnunina á sinni könnu. Hann segir könnunina
hafa mikið gildi fyrir íslenskt samfélag. Hann
nefnir sem dæmi umræðuna um að fjórðungur
íslenskra drengja geti ekki lesið sér til gagns. Þær
niðurstöður hafi einmitt verið fengnar úr PISA-
könnun ársins 2009. „Eftir að þessar niðurstöður
birtust spratt hópur rithöfunda fram á völlinn og
bjó til hópinn „Alvara málsins“ til að vekja athygli
á ástandinu. Það er gott dæmi um hvernig upplýs-
ingar úr PISA-prófinu hafa verið nýttar.“
Hann segir að nú starfi um 12 faggreinakenn-
arar úr grunnskólum í Reykjavík með Menntavís-
indasviði Háskóla Íslands að því að gera breyt-
ingar á kennslu sinni, í anda kenningaramma
OECD um lesskilning og læsi, sem prófað er út
frá í Pisa-prófinu. Þetta segir hann ekki gert
til að samræma kennsluaðferðir á milli landa,
heldur að skapa kennsluaðferðir sem nýtist nem-
endum best í undirbúningi fyrir lífið. „Markmið
PISA er alls ekki að vera stýrandi, heldur að taka
stöðuna á lesskilningi og læsi eftir grunnskóla
til að meta hvort nemendur geti nýtt sér það sem
þau hafa lært til að leysa verkefni daglegs lífs
sem hugsandi og virkur borgari þarf að takast á
við.“
PISA-prófið er nú lagt fyrir íslensk ungmenni í
fimmta sinn. Niðurstöðurnar hafa hingað til verið
misjafnlega góðar, eftir því í hverju er prófað.
Lesskilningur íslenskra barna er þannig yfir með-
altali OECD og einungis 10 lönd skora hærra en
Ísland þar. Ungmenni í fimmtán löndum eru hins
vegar betur læs á stærðfræði og í 23 löndum eru
þau betur læs á náttúrufræði, samkvæmt niður-
stöðum ársins 2009. „Í náttúrufræðikennslunni
höfum við að hluta eða algjörlega hunsað þessa
færni, að geta skilið út á hvað námið gengur.
Utanbókarlærdómur fyrir próf er ekki nóg, held-
ur þurfa nemendur að átta sig á því hvað hugtök í
náttúrufræði þýða í raun og veru,“ segir Almar.
Slakar niðurstöður hafa ekkert með það að
gera að hér hafi nemendur ekki tekið könnuninni
alvarlega, eins og stundum hefur verið nefnt,
segir Almar. „Ég get staðfest að svo er ekki, ekki
frekar en í öðrum löndum. Jú, við myndum hækka
ef fleiri tækju prófið alvarlega en árið 2009 sýndu
kannanir að 3 af hverjum fjórum nemendum sögð-
ust sjálfir hafa lagt sig álíka vel fram og í öðrum
prófum í skólanum. Það er hærra hlutfall en á
heimsvísu.“
Niðurstöðurnar nýtast beint í skólastarfi
þjóðir leggja Pisa-
prófið fyrir 15 ára
nemendur í ár. Þar af
eru öll lönd í Evrópu og
Norður-Ameríku, flest lönd í
Suður-Ameríku, mörg lönd í Asíu,
Ástralía og Nýja-Sjáland.
er prófað í PISA – lesskiln-
ingur, læsi á stærðfræði og
læsi á náttúrufræði.
íslenskir nem-
endur taka
PISA-prófið
í ár.
sinnum hefur Pisa-könn-
unin verið gerð að þessu
ári meðtöldu, en hún var
lögð fyrir árið 2000, 2003,
2006 og 2009.
þjóðir sem tóku þátt í
PISA árið 2009 voru
með betri árangur í
heild í prófinu en Ísland.
Þetta voru Ástralía, Belgía, Finn-
land, Hong Kong, Japan, Kanada,
Kórea, Nýja-Sjáland, Singapúr og
Sjanghæ.
lönd mældust með
marktækt betri árangur
í lesskilningi en Ísland
árið 2009. Hér er les-
skilningur íslenskra barna betri
en meðaltal OECD-landanna.
lönd voru marktækt
hærri en Ísland í stærð-
fræðilæsi árið 2009.
lönd voru marktækt
hærri en Ísland í nátt-
úrufræðilæsi árið 2009.
Í öllum þátttöku-
löndum er les-
skilningur stúlkna
betri en drengja.
Um þessar mundir þreyta grunnskólanemar hið
alþjóðlega PISA-próf, sem lagt
er fyrir fimmtán ára nemend-
ur fjölda þjóðlanda á þriggja
ára fresti. Prófað er í lesskiln-
ingi, læsi á stærðfræði og læsi
á náttúrufræði. Prófið er til
þess gert að meta hversu vel
skólakerfið hefur undirbúið
nemendur sína fyrir lífið og
hversu vel þeim muni takast að
nýta þekkingu sína og reynslu
úr grunnskóla til að leysa úr
verkefnum daglegs lífs þegar
skyldunámi lýkur. PISA-prófið
er ekki einstaklingspróf, nem-
endur fá ekki einkunn úr því
og niðurstöður þess eru ekki
rekjanlegar til þeirra sjálfra.
Niðurstöðurnar eru eingöngu
notaðar til að meta hversu vel
nemendur eru almennt undir-
búnir og hvernig þeir standast
samanburð við önnur lönd.
PISA? Hvað er það
og af hverju skiptir
það mig máli? Það er ekki hægt a
ð útskýra smekk manna. Samfélagið er fullt af
boðskiptum og auglýsingum. Fyrirtækjamerki, nöfn á verslunum. Stór
yfirþyrmandi plaköt við vegkantana. Er þetta ásættanlegt? Já, í flestum
tilfellum. Er veggjakrot ásættanlegt? Sumir segja já, aðrir nei. Hver er
það sem geldur fyrir veggjakrotið? Hver er það sem borgar fyrir aug-
lýsingarnar á endanum? Alveg rétt. Neytandinn. Hafa þeir sem settu
upp auglýsingaskiltin beðið þig um leyfi? Nei. Eiga þá þeir sem stunda
veggjakrot að gera það? Er þetta ekki allt bara spurning um boðskipti
— þitt eigið nafn, nöfnin á klíkum og stór listaverk á götunum? Hugsaðu
um röndóttu og köflóttu fötin sem komu í búðir fyrir nokkrum árum. Og
skíðafötin. Mynstrin og litirnir voru stolin beint af flúruðum steinveggj-
um. Það er bráðfyndið að þessi mynstur og litir hljóta viðurkenningu og
aðdáun en veggjakrot sem gert er í sama stíl þykir hræðilegt. Þetta eru
erfiðir tímar fyrir listina.
Soffía
1a. Tilgangur þessara bréfa er að:
A útskýra hvað veggjakrot er.
B setja fram skoðun á veggjakroti.
C sýna fram á vinsældir veggjakrots.
D segja fólki hve miklu er eytt í að fjarlægja veggjakrot.
1b. Af hverju minnist Soffía á auglýsingar?
1c. Helga nefnir kostnað við að fjarlægja veggjakrot af veggjum og
grindverkum. Hvaða annars konar „kostnað” nefnir Helga?
■ NIRFILLINN OG GULLIÐ HANS
Dæmisaga eftir Esóp
Nirfill nokkur seldi allt sem hann átti og keypti gullklump sem hann gróf
ofan í holu í jörðina við hliðina á gömlum vegg. Hann fór daglega að skoða
hann. Einn af vinnumönnum hans tók eftir tíðum ferðum nirfilsins á staðinn og
ákvað að fylgjast með ferðum hans. Vinnumaðurinn uppgötvaði fljótt leyndar-
málið um falda fjársjóðinn og þegar hann gróf niður rakst hann á gullklump-
inn og stal honum. Í næstu heimsókn sinni kom nirfillinn að holunni tómri og
hóf að reyta hár sitt og kveina hástöfum. Þegar nágranni hans sá hann svona
yfirbugaðan af sorg og heyrði ástæðuna sagði hann: „Ég bið þig að syrgja
ekki svona; farðu heldur og náðu í stein, settu hann í holuna og ímyndaðu
þér að gullið liggi þar enn. Það kemur þér að jafn miklu gagni; því að meðan
gullið var þar, þá áttir þú það ekki þar sem þú notaðir það alls ekki neitt.“
2a. Lestu setningarnar hér fyrir neðan og númeraðu þær í samræmi við
röð atburðanna í textanum.
Nirfillinn ákvað að skipta öllum peningunum sínum í gullklump.
Maður stal gulli nirfilsins.
Nirfillinn gróf holu og faldi fjársjóð sinn í henni.
Nágranni nirfilsins sagði honum að setja stein í stað gullsins.
2b. Hvernig eignaðist nirfillinn gullklump?
1a. Rétt svar er B. 1 stig fæst fyrir það.
1b. 1 stig fæst fyrir að nefna tengsl milli veggjakrots og auglýsinga, t.d.
að auglýsingar séu jafn yfirgnæfandi og veggjakrot, eða að sumum
þyki auglýsingar jafn ljótar og málverk gerð með úðabrúsum.
1c. 1 stig gefst fyrir að benda á einhvern kostnað sem nefndur er í text-
anum, til dæmis umhverfiskostnað eða að veggjakrotið kosti ungt
fólk orðstírinn.
2a. 1 stig fæst fyrir að merkja setningarnar í þessari röð: 1,3,2,4.
2b. 1 stig fæst fyrir að tilgreina að nirfillinn hafi selt allt sem hann átti.
Leggðu saman stigin þín og berðu saman við töfluna hér fyrir neðan.
0 stig Þú getur ekki lesið þér til gagns.
1-2 stig Lesskilningur þinn er bágborinn. Þú hefðir gott af því að dusta rykið
af grunnskólabókunum.
3-4 stig Lesskilningur þinn er prýðilegur, þó þér veitti ekki af smávegis upp-
rifjun á námsefni þínu úr grunnskóla.
5 stig Lesskilningur þinn er mjög góður.