Fréttablaðið - 24.03.2012, Blaðsíða 35
BRÚÐKAUP
LAUGARDAGUR 24. MARS 2012
Kynningarblað
Morgungjafir
Brúðarskart
Dekur
Matur og gisting
Ólíkir giftingasiðir
Fróðleikur
Við dekrum vel við brúð-hjón hér hjá Laugum Spa og bjóðum upp á sérstakt
Brúðhjónadekur,“ segir Aðalheið-
ur Ýr Ólafsdóttir snyrti fræðingur
hjá Laugum Spa. Brúðhjóna dekrið
er hálfur dagur sem tilvonandi
brúðhjón geta eytt saman fyrir
stóra daginn eða farið í eftir að
veisluhöldum er lokið.
„Dagurinn byrjar með tyrk-
nesku baði. Eftir það tekur við
para nudd. Svo fá þau létta mál-
tíð inni í Baðstofunni og léttvíns-
glas með og borða bara saman á
sloppunum, mjög afslappað og
kósý,“ segir Aðalheiður. „Eftir
matinn fara þau saman í andlits-
bað og fótsnyrtingu og geta látið
fara vel um sig í lazyboy-stólum á
meðan. Þau geta líka fengið hand-
snyrtingu meðan þau liggja í stól-
unum.“
Aðalheiður segir Brúðhjóna-
dekur mjög vinsælt í brúðargjaf-
ir. Þá koma brúðhjónin saman á
hveitibrauðsdögunum og slaka á,
sem er vel þegin gjöf eftir langan
og strangan brúðkaupsundirbún-
ing. Mörg brúðhjón kaupi sér líka
Brúðkaupsdekurdag sjálf og skelli
sér saman til að fríska sig upp fyrir
athöfnina.
„Það er líka hægt að koma
saman í einstakar nudd meðferðir
í paraherbergið. Við erum til
dæmis með súkkulaðinudd sem er
mjög vinsælt í kringum brúðkaup
og fyrir Valentínusardaginn. Þau
eru þá nudduð upp úr ekta súkkul-
aði sem blandað er ilmolíum. Við
höfum boðið upp á þessa meðferð
í nokkur ár og hún er mjög vinsæl
hjá okkur,“ segir Aðalheiður.
Aðspurð hvort brúðgumarnir
séu viljugir að mæta í dekur segir
Aðalheiður þá oft halda að dekur
sé bara fyrir konur til að byrja með
en svo snúist þeim hugur.
„Þeir verða mjög hrifnir þegar
þeir mæta og koma svo aftur og
aftur og leyfa sér jafnvel meira
dekur en konurnar. Þeir fara mikið
í fótsnyrtingu og handsnyrtingu
eða andlitsbað og nudd fyrir brúð-
kaupsdaginn, en konurnar koma í
gelneglur, andlitsbað eða litun og
plokkun fyrir stóra daginn. Það
er líka vinsælt að koma í airbrush
daginn fyrir brúðkaupið.“
Í Baðstofunni í Laugum Spa
eru sex misheitar blautgufur og
þurrgufur með mismunandi ilmi,
nuddpottur með jarðsjó, heit og
köld sjóböð og sérstakar fótalaug-
ar. Þar er sex metra breiður foss
sem hægt er að baða sig undir,
matsölustaður og slökunarher-
bergi með arineldi. Þá er einnig
aðgangur að sundlauginni í Laug-
ardal. Allir sem koma í Baðstofuna
fá slopp og handklæði og segir Að-
alheiður vinsælt að mæta með vini
og ættingja fyrir brúðkaup.
„Hópurinn getur þá borðað þar
saman og farið í laugarnar. Gæsa-
og steggjahópar nýta sér einnig
Baðstofuna mikið. Þá eru verðandi
brúðir sendar í nudd meðan vin-
konurnar eru í pottunum. Strák-
arnir eru meira í því að senda
stegginn í vax og stríða honum
svolítið en svo taka bara við nota-
legheit í Baðstofunni á eftir,“ segir
hún.
Dekrað við turtildúfur í Laugum Spa
Tyrkneskt bað, súkkulaðinudd og heitir pottar er bara brot af því sem brúðhjónum býðst í Baðstofunni í Laugum Spa. Starfsfólkið leggur sig fram svo
að hin verðandi hjón eigi sem notalegasta stund saman.
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir snyrtifræðingur og samstarfsfólk hennar hjá Laugum Spa taka vel á móti brúðhjónum í dekur. MYND/GVA