Fréttablaðið - 24.03.2012, Síða 38
KYNNING − AUGLÝSINGBrúðkaup LAUGARDAGUR 24. MARS 20124
Með hamingjuóskum!
Það er fagurt veganesti að hugsa til örþreyttra og hamingjusamra brúðhjóna við
heimkomu eftir langan og spennuþrunginn brúðkaupsdag. Fá lánaðan lykil að heimili
þeirra og gera sitthvað sætt til að setja kærkominn endapunkt á einn af stærstu dögum
lífsins. Slík umhyggja er ógleymanleg og vekur ljúfar minningar ævina út.
Kertaljós í hjónaherberginu tryggir
rómantíska brúðkaupsnótt og að það hitni
eftirminnilega í kolum hjónanna.
Eftir heilan dag ástarævintýris frammi fyrir Guði og mönnum er dásamlegt að fara
úr brúðarklæðunum og slaka á saman nakin í heitu freyðibaði. Hafið innan seilingar
kampavín í flöskukæli, exótíska ávexti á bakka, kertaljós, dúnmjúk handklæði og rósir til
að skapa fullkomið andrúmsloft.
Telja má öruggt að brúðhjónin finni til svengdar eftir annasaman brúðkaupsdag. Því er
vafalaust fátt kærkomnara en rósum stráð borðhald fyrir tvo á brúðkaupsnóttu, með
freistandi réttum sem seðja bæði svanga maga og ástfangin hjörtu.
Sætt kex, kryddað brauð og ástarrauð
jarðarber í heitu súkkulaði-fondue er
unaðslegt nætursnarl fyrir nýgiftar, sam-
einaðar sálir.
DROTTNING BRÚÐARKJÓLANNA
Oft er talað um tískuhönnuðinn Veru Wang sem
drottninguna í brúðarkjólatískunni. Hún hefur hannað
brúðarkjóla í meira en tuttugu ár og haft mikil áhrif á
tískuna. Sjálf segist Vera hafa farið að hugsa
um brúðarkjóla þegar hún gifti sig árið 1989.
Henni leist ekki á pífukjóla í anda brúðarkjóls-
ins sem Díana prinsessa klæddist þegar hún
giftist Karli. Hún tók því málin í eigin hendur
og hannaði kjól með einföldum og nútíma-
legum línum. Vera hikar ekki við að hafa
stórar svartar slaufur á brúðarkjólum.
Kjólar hennar hafa slegið í gegn, enda hefur
Vera Wang verið eftirsótt hjá fræga og auð-
uga fólkinu. Má þar nefna Chelsea Clinton,
Ivanka Trump, Campbell Brown, Alicia
Keys, Mariah Carey, Victoria Beckham,
Jennifer Lopez, Avril Lavigne og
Sharon Stone svo einhverjar séu
nefndar.
Vera Wang er af kínverskum
ættum en fædd í Banda-
ríkjunum árið 1949. Hægt er að
skoða brúðarkjóla á heimasíðunni hennar
verawang.com og hjá stórversluninni David‘s
Bridal, davidbridals.com, en Vera hefur hannað
kjóla fyrir þá verslun að undanförnu.
Vera
Wang er af
kínverskum
ættum.
Í morgunmat er sniðugt að hafa hugsað fyrir útskornum
brauðhjörtum í brauðristina, harðsoðnum eggjum með
álímdum hjörtum, súkkulaðihjörtum og eðalkaffisopa
fyrir fyrsta morgunverð nýgiftra hjóna saman.
www.bluelagoon.is www. hreyfing.is www.bluelagoonspa.is
Gefðu ávísun á vellíðan og betri heilsu
hjá Bláa Lóninu, Hreyfingu og Blue Lagoon Spa