Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 48
24. mars 2012 LAUGARDAGUR6
Hæfniskröfur:
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Fullt starf (100%) sérfræðilæknis er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. yfirlýsingu
LSH vegna kjarasamnings sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002, sbr.breytingu 5. mars 2006. Sótt er um starf rafrænt á heimasíðu Landspítala, www.landspitali.is, undir
„laus störf“. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2012.
» Starfshlutfall er 100% en varðandi sérfræðilæknastarf þá kemur hlutastarf til álita.
» Störfin veitast frá og með 1. september 2012 eða eftir samkomulagi.
» Umsókn um starf sérfræðilæknis fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat stöðunefndar læknaráðs Landspítala byggist á
innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim.
» Umsókn um starf deildarlæknis fylgi náms- og starfsferilskrá.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast, í tvíriti, til Pálma V. Jónssonar, yfirlæknis, K4 öldrunarlækningar Landakoti.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Sérhæfð geðlæknisþjónusta við eldra fólk, sem flest hefur
líkamlega sjúkdóma jafnframt
» Göngudeildarþjónusta eftir tilvísun frá læknum eða öðru
heilbrigðisstarfsfólki, þar sem unnið er í teymisvinnu með
hjúkrunarfræðingi og sálfræðingi
» Ráðgjafaþjónusta fyrir inniliggjandi sjúklinga á
öldrunarlækningadeild
Hæfnikröfur
» Sérfræðiviðurkenning í geðlækningum
» Áhugi á öldrunargeðlækningum
» Hæfni og lipurð í samskiptum
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið á deildunum felur m.a. í sér teymisvinnu með öðrum
starfstéttum og sérgreinum spítalans. Leitast er við að hafa samfellu í
meðferð sjúklinga.
Hæfnikröfur
» Sérfræðiviðurkenning í lyflækningum en læknir með mikla
reynslu í lyflækningum eða skyldum greinum kemur einnig til
greina
» Hæfni og lipurð í samskiptum
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarlæknir hlýtur þjálfun og reynslu á öllum sviðum
öldrunarlækninga, við greiningu og meðferð á hinum ýmsu
öldrunarlækningadeildum, svo sem bráðaöldrunarlækningadeild,
öldrunarlækningadeildum með áherslu á endurhæfingu, auk
dagdeildar, göngudeildar og starfi á hjúkrunarheimilum.
Hæfnikröfur
» Almennt lækningaleyfi
» Íslenskukunnátta
» Hæfni og lipurð í samskiptum
Öldrunarlækningar
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í geðlækningum með aðsetur á Landakoti. Um er að ræða uppbyggingar- og þróunarstarf í
öldrunargeðlækningum. Náin samvinna er við öldrunarlækna.
Laust er til umsóknar afleysingastarf sérfræðilæknis í lyflækningum á öldrunarlækningadeildum. Starfið veitist til eins árs eða skemur með
möguleika á framlengingu. Starfsvettvangur er á Landakoti og eru vaktir þar.
Laust er til umsóknar starf deildarlæknis í öldrunarlækningum. Um er að ræða námsstöðu sem veitist til eins árs en möguleiki er á skemmri
ráðningu. Starfið er kjörið til sérnáms í öldrunarlækningum, heimilislækningum, lyflækningum og fleiri greinum. Starfsvettvangur er á
Landakoti og í Fossvogi. Vaktir eru á Landakoti. Einnig getur staðan verið góð endurmenntunarstaða fyrir starfandi heimilislækna.
Sérfræðilæknir í geðlækningum
Sérfræðilæknir í lyflækningum
Deildarlæknir í öldrunarlækningum
Starfssvið
• Stýra upplýsingatækni, gæðamálum og vefmálum LÍN.
• Umsjón með rekstri tölvukerfa sjóðsins, virkni upplýsingavinnslna
og úrvinnslu úr gagnagrunni sjóðsins.
• Samþætting tölvukerfa sjóðsins og gæðastjórnunar.
Eiginleikar umsækjanda
• Góðir samskiptahæfileikar.
• Skipulögð vinnubrögð.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólapróf í tölvunarfræði, viðskiptafræði, verkfræði eða
sambærilegt.
• Þekking og reynsla af verkefnastjórnun nauðsynleg.
• Æskilegt væri að hafa reynslu af stýringu upplýsingatækni-
verkefna.
• Þekking og reynsla af gæðamálum mikilvæg.
• Reynsla af forritun, SQL og rekstri kerfa æskileg.
Verkefnastjóri í upplýsingatækni hjá LÍN
Lánasjóður íslenskra námsmanna óskar eftir að ráða verkefnastjóra (deildarstjóra) í upplýsingatækni (UT) sjóðsins. Hugbúnaðarþróun og stórum
hluta rekstrar á kerfum sjóðsins er úthýst. UT annast verkefnastjórnun upplýsingatæknimála, gæðamál, tækniþjónustu við starfsmenn og ýmis dagleg
rekstrarmál.
Í boði er lifandi og krefjandi starfsumhverfi þar sem starfsþróun og uppbygging öflugrar þjónustu haldast í hendur.
Umsóknir skulu sendar á gudrun@lin.is, merktar „Verkefnastjóri í UT LÍN“. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2012.