Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 53
LAUGARDAGUR 24. mars 2012 11
Forseti Heilbrigðisvísindasviðs HÍ
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
120
942
Háskóli Íslands leitar að öflugum stjórnanda og leiðtoga fyrir Heilbrigðisvísindasvið,
sem er eitt af fimm fræðasviðum skólans.
Forseti Heilbrigðisvísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er æðsti yfirmaður og akademískur
leiðtogi fræðasviðsins og stjórnar daglegri starfsemi þess. Með forseta fræðasviðs starfar öflugt
teymi stjórnenda og sérfræðinga.
Forseti fræðasviðs ber m.a. ábyrgð á:
útfærslu stefnu Háskóla Íslands á vettvangi fræðasviðs.
fjármálum og rekstri fræðasviðs og stofnana sem undir það heyra.
gæðum kennslu, rannsókna og þjónustu.
starfsmannamálum.
öflugri liðsheild og faglegu samstarfi.
tengslum við innlenda og erlenda samstarfsaðila.
stjórnsýslu og stoðþjónustu fræðasviðsins.
Hæfniskröfur:
akademískt hæfi sem og þekking og reynsla af háskóla- og/eða rannsóknaumhverfi.
leiðtogahæfileikar.
metnaðarfull og skýr framtíðarsýn.
rík samskiptahæfni.
víðtæk reynsla af stjórnun og stefnumótun.
þekking á og reynsla af störfum við háskólasjúkrahús er æskileg.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl nk.
Nánari upplýsingar um umsóknargögn, starfið og ráðningar-
ferlið er að finna á slóðinni:
http://www.hi.is/skolinn/forseti_heilbrigdisvisindasvids.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Jóhanna
Guðmundsdóttir, sviðsstjóri starfsmannasviðs Háskóla Íslands,
netfang gjg@hi.is, sími 525-4355.
Vodafone leitar að
markaðsmanneskjum
framtíðarinnar
Þín ánægja er okkar markmið
Líttu í spegil. Sérðu framsýna og reynda markaðsmanneskju, færan
verkefnastjóra? Sérðu manneskju sem er tilbúin að takast á við örar
breytingar og fylgjast með því nýjasta? Ef svarið er já, þá erum við að leita
að þér í lifandi og krefjandi starf í markaðsdeildinni.
vodafone.is/storf.
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2012.
Vinnustaðurinn okkar er skemmtilegur og fólk sem tekst á við
krefjandi verkefni með bros á vör er okkur að skapi. Við tökum
verkefnin hátíðlega en ekki okkur sjálf og viljum gera viðskipta-
vini okkar þá ánægðustu á Íslandi.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-0
6
7
4
Starfsmenn Vodafone fylgjast vel með, sérstaklega á Tiltektardögum.taka þrifadaginn mjög alvarlega