Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 76

Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 76
24. mars 2012 LAUGARDAGUR40 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is HARRY HOUDINI TÖFRAMAÐUR (1874-1926) FÆDDIST Á ÞESSUM DEGI. „Ég þéna mest í Rússlandi og í París, líklega vegna þess að íbúar þessara landa eru svo viljugir til að láta skemmta sér, að sjá eitthvað nýtt og óvenjulegt.“ Á þessum degi árið 1973 voru Kjarvalsstaðir teknir í notkun. Safnið var reist í minningu eins mesta listamanns sem Ísland hefur alið, Jóhann- esar S. Kjarvals. Því var valinn staður á Miklatúni í hjarta Reykjavíkur en smíði safnsins hófst árið 1966 við það að Jóhannes S. Kjarval tók sjálfur fyrstu skóflustunguna. Kjarval var því miður ekki enn á lífi þegar byggingu safnsins lauk en hann lést 13. apríl 1972. Kjarvalsstaðir eru teiknaðir af Hannesi Davíðs- syni arkitekt og skiptast í tvær meginálmur með tengibyggingu á milli. Í safninu er nú varðveitt listaverkaeign Reykjavíkurborgar sem telur meðal annars stórt safn verka listamannsins ást- sæla sem safnið er nefnt eftir. Áhersla safnsins er á samtímalist með sýningum á verkum eftir íslenska sem erlenda listamenn. Þó eru málverk Kjarvals ávallt til sýnis í austursal safnsins. ÞETTA GERÐIST: 24. MARS 1973 Kjarvalsstaðir opnaðir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN JÚLÍANA GUÐLAUGSDÓTTIR Hrútsstöðum, Dalasýslu, lést á Heilbrigiðsstofnun Vesturlands, Akranesi þann 21. mars. Böðvar Bjarki Magnússon Bergþóra Jónsdóttir Guðlaugur Ellertsson Kristbjörg Einarsdóttir Guðrún Ellertsdóttir Ragnar M. Hauksson Barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, MAGNEA ÓSK ÓSKARSDÓTTIR Hátúni 10, Reykjavík, Lést á heimili sínu þriðjudaginn 13. mars. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði þriðjudaginn 27. mars kl. 13.00. Börn, tengdabörn og barnabörn. Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vinarþel við andlát og útför elskulegrar móður, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dvalarheimilis aldraðra Borgarnesi sem annaðist hana af einstakri alúð og kærleika síðustu misserin. Rebekka Björk Þiðriksdóttir Viðar Pétursson Hjalti Viðarsson Flora Josephine Liste Kári Viðarsson Ingbjörg Viðarsdóttir Óli Ívarsson Þiðrik Örn Viðarsson Valgerður Hlín Kristmannsdóttir og langömmubörn. 90 ára afmæli Jón R. Hjálmarsson, fyrrv. fræðslustjóri, verður níræður 28. mars nk. Af því til- efni býður hann ætting jum og vinum til mannfagnaðar í safn- aðarheimili Neskirkju í Reykja- vík sama dag kl. 17-19. Hann frábiður sér blóm og g jafir, en gestum gefst kostur á að kaupa litla bók; Nota bene - Latína á Íslandi, sem Jón gefur út í tilefni dagsins. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför EINARS GUÐMUNDSSONAR kennara. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og nemendum Kársnesskóla. Sigrún Magnúsdóttir Lúðvík Sveinn Einarsson Guðmundur Ragnar Einarsson Sólrún E. Sæmundsen Guðrún Hallgrímsdóttir Sigurliði Guðmundsson Ríkey Guðmundsdóttir Katrín Guðmundsdóttir Anna Þórdís Guðmundsdóttir Jón Steinar Guðjónsson og barnabörn. Þökkum af alhug vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS AUÐUNSSONAR skipstjóra, Vallarbraut 8, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir góða umönnun. Gróa Eyjólfsdóttir og fjölskylda. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, FRIÐGERÐAR LAUFEYJAR ODDMUNDSDÓTTUR Bárugötu 9, Dalvík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á Hornbrekku, heimili aldraðra í Ólafsfirði, fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Sigurlaug G. Sverrisdóttir Gunnþór Árnason Sveinbjörn Sverrisson Sigrún Sumarliðadóttir Guðný Rut Sverrisdóttir Ólafur Viðar Hauksson barnabörn og barnabarnabarn. Lífstöltið fer fram í annað skiptið í Reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ í dag. Töltmótið, sem er einungis fyrir konur, er haldið til styrktar Lífi, styrktar- félagi Kvennadeildar LSH. „Tólf flottar hestakonur hjá Herði tóku sig saman í fyrra og héldu þetta mót. Það gekk svo vel að það var ákveðið að gera þetta að árlegum viðburði,“ segir Sig- ríður Sigmarsdóttir, nýráðinn fram- kvæmdastjóri Lífs. Líf var stofnað árið 2009 og hefur þann tilgang að styrkja Kvennadeild Landspítalans, meðal annars með því að bæta aðbúnað og þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Þó Lífstöltið sé einungis ætlað konum, leggur Líf áherslu á að það sé félag sem einnig er ætlað körlum. Börn margra þeirra fæðast á Kvennadeildinni og margir dvelja þar á meðan á fæðingu og sæng- urlegu stendur. „Í fyrra voru um 100 þátttakend- ur og safnaðist 1,1 milljón króna. Það stefnir í metþátttöku í ár,“ segir Sig- ríður. Á mótinu verður keppt í fjór- um flokkum, byrjendur, minna vanar, meira vanar og í opnum flokki og Sig- ríður segir mótið vera frábæran stökk- pall fyrir byrjendur. Fyrsta verkefni Lífs var að ljúka við framkvæmdir á húsnæði meðgöngu- og sængurkvennadeildar 22A, en nánast engar endurbætur höfðu verið gerðar frá byggingu þess árið 1973. Um helm- ingur deildarinnar hafði verið endur- nýjaður en ekki tókst að ljúka fram- kvæmdum vegna fjárskorts. Fyrir rúmu ári var haldin landssöfnun til styrktar Lífi á Stöð 2. Þá söfnuðust um 65 milljónir fyrir félagið og í kjölfar- ið tókst að ljúka við framkvæmdir á deildinni. Sigríður segir að næst á dag- skrá sé að snúa sér að öðrum deildum innan Kvennadeildarinnar. Mótið hefst klukkan 10 en formleg setningarathöfn verður klukkan 14. Að setningarathöfninni lokinni hefst hin svokallaða Brjóstamjólkurreið. Þá er keppt í boðtölti undir stjórn fjögurra liðsstjóra, sem í ár verða þau Bryndís Ásmundsdóttir, Helgi Björnsson, Hilm- ir Snær Guðnason og Magni Ásgeirs- son. Þetta verður þó ekkert venjulegt boðtölt því keppendur þurfa ekki ein- ungis að hugsa um að vera á mettíma, heldur þurfa þeir einnig að ríða með fulla könnu af brjóstamjólk og reyna að hella sem minnstu út fyrir. Sigríður segir brjóstamjólkurreiðina hafa vakið mikla lukku í fyrra og að mikið hafi verið hlegið, og hvetur í leiðinni alla til að kíkja í Reiðhöllina í dag. TÖLT VERÐUR TIL STYRKTAR LÍFI Í DAG Í REIÐHÖLL HARÐAR Í MOSFELLSBÆ RIÐIÐ MEÐ BRJÓSTAMJÓLK LÍF Sigríður Sigmarsdóttir er framkvæmdastjóri Lífs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.