Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 88

Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 88
24. mars 2012 LAUGARDAGUR52 popp@frettabladid.is Kynlíf barna er viðkvæmt umræðuefni. Einstaklingar eru í lagalegum skilningi börn til átján ára aldurs og löglegur samræðisaldur er 15 ára. Nýtt frumvarp á þingi hefur valdið titringi því fjölmiðlar slógu því upp að 11 ára stelpur séu farn- ar að stunda kynlíf og þær vanti pilluna. Það er enginn að fetast út í að hjúkrunar- fræðingar og ljósmæður fái að skrifa upp á pilluna, heldur er það þessi nálgun að kynlífi barna, stúlkna sérstaklega, sem pirrar mig. KYNLÍF Lyfjafyrirtækin eru að þróa getnaðarvarnapillu handa karlmönnum. Í kynfræðslutíma spyr ég stelpurnar hvort þær muni treysta strák á pillunni og fæ alltaf sama svarið: Nei. Strákarnir þegja þunnu hljóði. Með tilkomu pill- unnar þurftu konur ekki lengur að krossleggja fingur og treysta á að sáðfrumurnar lækju út áður en þær fyndu eggið. (Ef karlinn hefði bara drullast til að setja á sig smokkinn þá væri þetta lítið vandamál og enginn blautur blettur í rúminu). Í stað þess að veita aukið frelsi finnst mér pillan vera heftandi. Hún setur allar getnaðarvarnaskyldur á kon- una og skilur hana eftir allsbera og opna fyrir kynsjúkdómum. Það er meira en getnaður sem getur fylgt samförum. Þetta ættum við, kyn- sjúkdómagróðrarstían, að vita. Svo ekki sé farið út í mögulegar auka- verkanir þess að taka inn hormóna daglega. Þingið er víst að reyna að lækka virðisaukaskatt á smokkum, einu vörnina sem til er gegn kyn- sjúkdómum. Það er ekki nóg, hann þarf að vera hræódýr og aðgengi- legur börnum, auk stuðnings með aukinni kynfræðslu. Aðgengi að smokknum eykur ekki líkur á kyn- lífi, svo ekki hafa áhyggjur af því. Þó barnið þitt sé ekki byrjað að stunda kynlíf þá er það að hugsa um það. Smokkurinn á undir högg að sækja á Íslandi og þessu þurf- um við að breyta. Ég bið foreldra að rifja upp þegar barnið spurði hvernig það hefði orðið til. Upphaf kynfræðslunnar. Smokkurinn hefði átt að vera hluti af þessum sam- ræðum. „Smokkur er gúmmí sem er sett á typpið svo ekki verði til annað barn og svo typpið og píkan fái ekki flensu.“ Einfalt. Enginn blautur blettur og stelpur og strák- ar alast upp við það að smokkur sé bara smokkur sem þau bæði beri ábyrgð á. Notkun verður hvers- dagslegur hlutur enda er kynlíf einmitt það. Nennið þið að koma í lið með mér? Ég skal útskýra þetta fyrir börnunum ykkar og aðstoða ykkur við að gera það líka! PILLAN, SMOKKURINN OG BLESSUÐ BÖRNIN KOMIÐ MEÐ Krakkar eiga að alast upp við að smokkur sé bara smokkur sem báðir aðilar bera ábyrgð á. HEILSA Bandarískir vísindamenn við háskólann í Pennsylvaníu hafa uppgötvað prótein sem getur valdið hármissi. Þeir rannsökuðu sköllótta karlmenn og tilraunamýs og komu þá auga á þessi prótein. Verið er að þróa lyf sem geta mögulega komið í veg fyrir hármissi byggt á niðurstöðunum sem voru birtar í tímaritinu Science Transla- tional Medicine. Í kjölfarið væri hægt að búa til krem við skalla. Flestir menn byrja að fá skalla um miðjan aldur og um áttatíu prósent manna byrja að missa hárið fyrir sjötugt, samkvæmt frétt BBC. Prótein sem veldur skalla MEÐ SKALLA Vísindamenn hafa uppgötvað prótein sem getur valdið hármissi. NORDICPHOTOS/GETTY KYNLÍF: ÞARFTU HJÁLP? Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is KYNLÍF Samkvæmt nýjum rann- sóknum aukast kynlífsórar kvenna í kringum þann tíma tíðahringsins þegar egglos á sér stað. Margar rannsóknir hafa áður bent á að kynlífslöngun og kyn- lífshegðun kvenna tengist því hvar þær séu staddar í tíða- hringnum, og hafa eldri rann- sóknir meðal annars bent á að á þeim tíma sem egglos á sér stað er líklegra að konur þrái karl- mannlegri og harðari karlmenn. Samkvæmt þessari nýju rann- sókn, sem var leidd af Samönthu Dawson við Háskólann í Alberta í Canada, eru konur líka líklegri til að vilja kynlíf með fleiri en einum karlmanni á þessu tíma- bili tíðahringsins auk þess sem þær virðast gefa sér meiri tíma í að láta sig dagdreyma um sína villtustu kynlífsóra. Samkvæmt rannsókninni, sem framkvæmd var þannig að fylgst var með 27 einhleyp- um, gagnkynhneigðum konum í heilan mánuð, eiga konur að meðaltali 0,77 kynlífsóra á dag, sem er töluvert hærra hlutfall en fyrri rannsóknir höfðu sýnt. Kynlífsórar kvenna aukast TÍSKA Fatahönnuðurinn Karl Lagerfeld er staddur í Japan um þessar mundir þar sem hann sýnir haustlínu Chanel á tískuvikunni í Tokyo. Lagerfeld er þekktur fyrir óvægna hreinskilni sína og lét nokkur orð falla um japönsku þjóð- ina. Lagerfeld heimsótti landið síð- ast fyrir átta árum síðan og þykir það hafa tekið nokkrum breytingum. „Ég tók eftir því að fólk- ið er stærra en áður vegna þess að það borð- ar meira af kökum og sætindum. Ég tók eftir því að útlit Japana hefur breyst mikið, áður voru þau lítil en nú eru þau falleg á þann hátt sem fólk sem borðar mikið af óhollustu er fal- legt,“ sagði hönn- uðurinn í viðtali við WWD. ÓVÆGINN Karl Lagerfeld segir Japani hafa stækkað mikið sökum kökuáts. Laugavegi 7 Opið: laugardaga frá 11-17 sunnudaga frá 13-18 Vorum að fá nýja sendingu af dásamlegu sumarlínunni okkar... expressferdir.is 5 900 100 Lloret de Mar á Costa Brava er nýr áfangastaður Express ferða á Spáni. Lloret de Mar er heillandi strandbær sem býður upp á frábæra og fjölskylduvæna afþreyingu; skemmtigarða, köfun, sólarstrendur, golfvelli og barnvæn leiksvæði. Allar nánari upplýsingar á www.expressferdir.is Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára. Flogið út 8. júní. Netverð á mann m.v. 2 fullorðna frá kr. 88.900 kr. F í t o n / S Í A Sólarferðir Verð á mann í 7 daga, frá: Trimar Apartments 78.900 kr. Costa Brava SP ÁN N Segir Japani stóra lifsstill@frettabladid.is 52 MINNKA LÍKUR Á SYKURSÝKI Nýjar rann- sóknir frá Harvard-háskóla sýna að aukin neysla á bláberjum, eplum og perum minnkar líkur á sykursýki.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.