Fréttablaðið - 18.05.2012, Page 24
2 • LÍFIÐ 18. MAÍ 2012
Útgáfufélag 365 miðlar ehf.
Forsíðumynd Stefán Karlsson
Útlitshönnun Arnór Bogason
Auglýsingar Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Lífið Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, sími 512 5000
www.visir.is/lifid
UMSJÓN
Ellý Ármanns elly@365.is
Kolbrún Pálína Helgadóttir
kolbrunp@365.is
HVERJIR
VORU
HVAR?
Förðun Gretu Eygló Birgisdóttir Kjóll
Rebekka Ingimundardóttir hannaði og
Elma Bjarney saumaði Skart Sign Hár
Nína Kristjánsdóttir
Haust og vetrarlína vinkvennanna Manúelu Óskar Harðardóttur og Önnu
Lilju Johansen var frumsýnd með pompi og prakt á hótel Borg síðastlið-
ið laugardagskvöld. Merkið ber heitið MALLA/JOHANSEN og hefst sala
á vörunum næsta haust.
Áherslur línunnar eru kvenleg snið, sterkar konur og gæðaleg efni og
var hverri innkomu tískusýningarinnar fagnað með lófaklappi.
Tinna Bergsdóttir fyrirsæta kom sérstaklega til landsins til að opna
sýninguna sem og hárgreiðslumeistarinn Kristinn Óli Hrólfsson sem bú-
settur er í Kaupmannahöfn en hann sá um hárgreiðslurnar fyrir sýn-
inguna. Um förðunina sá Anna Kristín Óskarsdóttir.
Tinna Bergs er einnig andlit þessarar fyrstu línu og það var Helgi Óm-
arsson sem myndaði hana.
Manúela og Anna Lilja með
frumburðum og Dorrit Moussa-
ieff sem naut sýningarinnar vel!
SAMHUGUR OG
SPENNA BAKSVIÐS
KRISTINN ÓLI HRÓLFSSON
HVE LENGI HEFURÐU BÚIÐ OG STARFAÐ Í KAUPMANNAHÖFN? Frá árinu 2003.
STARF/TITILL? Hárgreiðslumaður og annar eigandi Mugshot í Kaupmannahöfn
Hvað kom til að þú varst beðinn
um að greiða fyrir sýninguna?
Ég og Manúela höfum verið vinir i
mörg ár og ég hef fengið að fylgj-
ast með framgangi merkisins frá
upphafi. Það var aldrei neitt annað
í stöðunni en að ég hjálpaði til við
að finna útlit og gera hárið fyrir
sýninguna sjálfa. Það var reyndar
tvísýnt hvort þetta gengi upp þar
sem dagskráin er þétt en allt small
þetta saman á endanum.
Hvernig var stemningin bak-
sviðs? Það var mikil orka og
spenna baksviðs. Það að þetta
er nýtt merki gerði það að verk-
um að samhugurinn og metnað-
urinn var mikill hjá öllum sem að
sýningunni stóðu. Svo var svona
hæfilega mikið stress undir lokin.
Er munur á að vinna svona
verkefni hér á landi eða erlend-
is?
Já, munurinn er sá að á Íslandi
er allt miklu persónulegra. Fólk
tengist á einn eða annan hátt. Og
er komið til að hjálpa hvert öðru.
Tískuvikan hér úti og aðrir sam-
bærilegir viðburðir eru svo ofsa-
lega stórar framkvæmdir þar sem
hver og einn hefur sitt hlutverk og
fer ekki út fyrir það.
Hvað er fram undan hjá þér?
Fram undan hjá mér núna er að
skipuleggja haustdagskrána hjá
stofunni og svo er eitt skemmtilegt
sjónvarpsverkefni í bígerð sem ég
má ekki segja frá eins og er.
Mikill stjörnufans mætti í þrítugs-
afmæli Breka Logasonar frétta-
manns á Stöð 2 sem fagn-
aði á skemmtistaðnum Austur.
Þar mættu fjölmiðlastjörnurn-
ar Þorbjörn Þórðarson, Logi
Bergmann Eiðsson og eigin-
kona hans Svanhildur Hólm,
Telma Tomasson, Andri
Ólafsson, Sindri Sindra-
son, Sigrún Ósk Krist-
jánsdóttir, Helga Arn-
ardóttir, Jóhanna Mar-
grét Gísladóttir, Elísabet
Margeirsdóttir og Karen Dröfn
Kjartansdóttir. Faðir Breka,
Logi Úlfarsson, stal sen-
unni en hann söng ævi-
skeið afmælisbarns-
ins við þekkt Abbalag við
mikinn fögnuð viðstaddra.
Þórunn Högnadóttir, stíl-
isti og blaðamaður, hefur
stofnað nýtt veftímarit
í samstarfi við ritstjóra
NUDE Magazine, Jóhönnu
Björgu. Tímaritið ber heit-
ið NUDE Home og kemur
út í ágúst.
Hvernig kom þetta verkefni til?
Ég hafði lengi látið mig dreyma
um að fara af stað með lífsstíls-
tímarit á netinu og þegar ég
hætti hjá Húsum og híbýlum ný-
verið ákvað ég að slá til og láta
þennan gamla draum verða að
veruleika.
Jóhanna Björg Christensen hefur
verið að gera frábæra hluti með
NUDE Magazine og ég setti mig
í samband við hana með hug-
myndina. Við náðum strax ótrú-
lega vel saman og erum alveg
búnar að vera á flugi síðan. Við
erum komnar með frábært fólk
í lið með okkur og það er óhætt
að segja að það sé margt spenn-
andi í vændum.
Hverjar verða áherslur vef-
blaðsins? Við ætlum að fjalla um
allt sem viðkemur heimilinu; við
verðum með mörg innlit á fal-
leg og áhugaverð heimili, fjöllum
um þekkta hönnun og hönnuði,
bendum lesendum okkar líka á
skemmtilega verslanir, veitinga-
staði, vefsíður, blogg og fleira.
Við munum leggja okkur fram við
að miðla til lesenda öllu því nýj-
asta sem er að gerast í heimi
hönnunar og arkitektúrs ásamt
því að taka fyrir klassíska og vel-
þekkta hönnun. Flottar uppskrift-
ir af girnilegum mat og fleira
matartengt efni verðu svo einnig
að finna í blaðinu.
Verður allt efni íslenskt? Nei,
við verðum líka með efni erlend-
is frá; innlit á erlend heimili, um-
fjallanir um trendsýningar úti í
heimi og fleira áhugavert efni er-
lendis frá.
Hvenær fer blaðið í loftið?
Fyrsta tölublað NUDE Home mun
fara á netið í byrjun ágúst. Nýtt
tölublað fer svo í loftið á tveggja
mánaða fresti en við verðum líka
með blogg á netinu þar sem nýtt
og spennandi efni mun birtast
reglulega í millitíðinni.
Muntu halda áfram með frægu
Skref fyrir skref þættina þín
þar sem þú kennir eitt og
ÞÓRUNN HÖGNA STOFNAR NÝTT VEFTÍMARIT
Þórunn Högnadóttir og Jóhanna
Björg Christensen ná vel saman og
segja margt spennandi í vændum.
annað nytsamlegt fyrir heim-
ilið? Já, ég kem til með að gera
það. Í hverju tölublaði verður
mikið af fjölbreytt efni, þar sem
flikkað verður upp á húsgögn
og fleira, enda finnst mér ótrú-
lega gaman að taka gömul hús-
gögn og hluti í gegn og gefa
þeim nýtt líf.
Gildir til 30.8.2012
PI
PA
R\
TB
W
A
A
PI
P
TB
A
R\
A
BW
A
••
SÍ
A
SÍ
A
•
12
15
33
15
12
3
53
Karamellu
frappó
með rjóma og
karamellusósu
Komdu á næsta
kaffihús Te & Kaffi og
bragðaðu svalandi
sumardrykki.