Fréttablaðið - 18.05.2012, Qupperneq 48
28 18. maí 2012 FÖSTUDAGUR
Aldís Snorradóttir rekur Gallerí
Þoku sem staðsett er í kjallara
Hríms hönnunarhúss á Lauga-
vegi. Aldís er nýflutt aftur heim
frá Montreal þar sem hún lagði
stund á nám í listasögu.
„Vinkona mín opnaði Hrím fyrir
skömmu og þar var rými í kjallar-
anum sem mér þótti tilvalið til að
nýta undir sýningar enda er mikið
af hæfileikaríku, ungu listafólki
hér á landi og lítið um sýningar-
staði. Við ákváðum því að kýla á
þetta, taka rýmið í gegn og opna
gallerí,“ segir Aldís. Það er lista-
maðurinn Magnús Helgason sem
ríður á vaðið með sýninguna Guð
fær greitt í dollurum sem verður
opnuð á laugardag.
Aldís útskrifaðist úr viðskipta-
fræði frá Háskóla Íslands árið
2007 og starfaði í tvö ár hjá fjár-
festingabanka. Hún viðurkennir
að listin hafi þó alltaf verið henn-
ar ástríða og árið 2009 ákvað hún
að láta drauminn rætast og hefja
nám í listfræðum.
„Ég hef verið áhugamanneskja
um list allt frá því að amma og
afi fóru með mig á söfn víða um
Evrópu, en gat einhvern veginn
ekki ímyndað mér að það gæti
orðið að lífsstarfi mínu. Ég fór
því í viðskiptafræði því það þótti
svo praktískt á þeim tíma. Ég hef
nú komist að því að maður á að
elta drauma sína því það er það
sem gerir mann hamingjusaman
og mér finnst ég nú loksins vera
komin á rétta hillu í lífinu. Það er
allt annað að læra eitthvað sem
maður hefur brennandi áhuga á.“
Aðspurð segir Aldís að það sé
í mörg horn að líta þegar setja
á upp listasýningu og nefnir í
því samhengi að lýsingin þurfi
að vera rétt og að oftast þurfi að
vinna með takmarkað fjármagn.
Aldís sinnir ekki aðeins starfi sýn-
ingarstjóra heldur mun hún einn-
ig sjá um að selja verkin og telur
það kost að galleríið sé í sama húsi
og Hrím því þangað koma bæði
erlendir ferðamenn sem og fag-
urkerar. Hún segist vera spennt
fyrir opnunarkvöldinu en einn-
ig svolítið stressuð. „Þetta hefur
allt gerst svo hratt að maður trúir
varla að þetta sé að gerast strax.“
Guð fær greitt í dollurum verð-
ur opnuð á laugardag klukkan 17.
Gallerí Þoka er á Laugavegi 25.
- sm
Lét gamlan draum rætast
DRAUMUR RÆTIST Aldís Snorradóttir lét gamlan draum rætast og skipti um starfsvettvang. Hún opnar Gallerí Þoku á
Laugavegi 25 á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Dina Lohan, móðir Lindsay Lohan, segir dótt-
ur sína vera vel að því komna að leika Eliza-
beth Taylor í sjónvarpsmynd um ævi leik-
konunnar. Valið hefur þó verið gagnrýnt af
sonum Taylor sem segja leikkonuvalið van-
virðingu við minningu móður þeirra.
„Lindsay er mjög vel búin undir hlutverkið
og lítur á þetta sem mikinn heiður. Þær eiga
líka margt sameiginlegt, fjölmiðlaumfjöllun
um Taylor var oft óvægin og það sama á við
um Lindsay,“ sagði Lohan um dóttur sína í
viðtali við Access Hollywood.
Lohan ekki ólík Taylor
STENDUR MEÐ LINDSAY Dina Lohan segir dóttur sína
vel undir það búna að leika Elizabeth Taylor.
NORDICPHOTOS/GETTY
Michelle Pfeiffer fer með eitt aðalhlutverkanna í kvikmynd-
inni Dark Shadows í leikstjórn Tims Burton. Leikkonan seg-
ist hafa hringt sjálf í leikstjórann og óskað eftir hlutverkinu.
„Ég hefði aldrei gert þetta nema af því ég þekkti hann,
þetta setur fólk í mjög óþægilega aðstöðu. Ég frétti af verk-
efninu í gegnum sameiginlega vinkonu okkar og þó ég
vissi ekki einu sinni hvort það væri hlutverk við mitt hæfi
í myndinni ákvað ég
að hringja í Tim og tjá
honum hug minn. Við
áttum gott samtal og
ári síðar hringdi hann
aftur í mig og bauð mér
í prufur,“ sagði Pfeiffer
sem vann með Burton
árið 1992 þegar hún lék
Kattarkonuna í Batman
Returns.
Pfeiffer sagðist ekki
hafa búist við því að fá
hlutverk Elizabeth Coll-
ins Stoddard og var því
ánægð þegar Burton
hafði aftur samband. „Tim er mjög hæfileikaríkur og frjór
leikstjóri og það er frábært að fá að vinna með honum aftur.“
Kvikmyndinni Dark Shadows hefur verið líkt við blöndu af
The Addams Family og Death Becomes Her.
Óskaði eftir hlutverki
BAUÐ SIG FRAM Michelle Pfeiffer hringdi
í Tim Burton og óskaði eftir hlutverki í
kvikmyndinni Dark Shadows.
NORDICPHOTOS/GETTY
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 www.bioparadis.is / midi.is Hluti af Europa Cinemas
ÍSLENSKUR TEXTI / ENGLISH SUBTITLES
FÖSTUDAGUR: I AM SLAVE 18:00, 20:00, 22:00 TOWN
OF RUNNERS 20:00 CORIOLANUS 20:00, 22:30 JANE
EYRE 17:30 IRON SKY 18:00, 20:00, 22:00 SVARTUR Á
LEIK (ENG. SUBS) 17:40, 22:30
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
SAMI AFSLÁTTUR FYRIR ÖRYRKJA OG ELDRI BORGARA.I AM SLAVE TOWN OF RUNNERS
AUKASÝNINGAR Á VÖLDUM MYNDUM
AF REYKJAVIK SHORTS & DOCS
SÖNN SAGA
UM NÚTÍMA
ÞRÆLAHALD
Í LONDON
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
THE DICTATOR KL. 4 - 6 - 8 - 10 12
THE DICTATOR LÚXUS KL. 4 - 6 - 8 - 10 12
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT KL. 8 - 10.40 12
LOCKOUT KL. 8 12
HOW I SPENT MY SUMMER VACATION KL. 10.10 16
21 JUMP STREET KL. 5.40 - 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 3.30 L
LORAX - ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 - 5.45 L
HUNGER GAMES KL. 5 12
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
THE DICTATOR KL. 6 - 8 - 10 12
THE 5 YEAR ENGAGEMENT KL. 5.45 - 8 12
LOCKOUT KL. 10.15 12
- V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS
- E.E. - DV.
-Þ.Þ., FT/SVARTHÖFÐI.IS
LOKAÐ 18. - 23. MAÍ
THE DICTATOR 4, 6, 8, 10
THE FIVE-YEAR ENGAGEMENT 8
THE RAID 10.25
THE AVENGERS 3D 4, 7, 10
LORAX 3D 4, 6
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarTilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
STÆRSTA OFURHETJUMYND ALLRA TÍMA
SPRENGHLÆGILEG MYND
Frá þeim sem færði okkur BORAT kemur ein fyndnasta
mynd ársins þar sem Sasha Baron Cohen fer á kostum
í hlutverki klikkaðasta einræðisherra allra tíma.
T.V. -SÉÐ OG HEYRT
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
5%
EGILSHÖLL
16
16
V I P
V I P
1212
12
12
L
L
10
10
10
12
12
L
10
AKUREYRI
STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI !
YFIR 45 ÞÚS. BÍÓGESTIR !
Stærsta ofurhetjumynd allra tíma!
KEFLAVÍK
12
12
16
16
12
Johnny Depp er
stórkostlegur í þessari
frábæru gamanmynd
o.g. entertainment weekly p.h. boxoffice magazine
Nýjasta meistaraverk Tim Burtons.
MÖGNUÐ HASARMYND MEÐ
JASON STATHAM Í AÐALHLUTVERKI
empire joblo.com
ÁLFABAKKA
16
KRINGLUNNI
12
L
L
10
10
UNDRALAND
IBBA
Skemmtileg teiknimynd
fyrir alla fjölskylduna
Sýnd með íslensku tali
16
12
L
SELFOSS
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ