Fréttablaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 54
18. maí 2012 FÖSTUDAGUR34
FÖSTUDAGSLAGIÐ
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
Póstdreifing - Suðurhraun 1
210 Garðabær - Sími 585 8300
www.postdreifing.is
Heyrðu í okkur næst þegar þú þarft á öruggri
og hagstæðri dreifingarþjónustu að halda.
fjölpósti, blöðum, tímaritum,
bréfum og vörum.
Okkar hlutverk
er að dreifa
Halldóra Rut Baldursdóttir og
Katrín Halldóra Sigurðardóttir,
leiklistarnemar við Listaháskóla
Íslands, vinna að lítilli, sjálf-
stæðri leiksýningu sem frum-
sýnd verður föstudaginn 25.
maí á heimili Halldóru í Grjóta-
þorpinu. Sýningin nefnist Heim
og er alfarið byggð á Facebook-
færslum.
„Við vorum að velta fyrir
okkur samskiptum fólks á
Facebook þegar okkur datt í
hug að það gæti verið gaman að
glæða þetta lífi í leikhúsinu og
allt í einu vorum við komnar út
á gólf og farnar að vinna með
þessa hugmynd. Það mætti því
segja að þetta sé rannsókn sem
óvart varð að sýningu,“ útskýr-
ir Halldóra og bætir við að ferlið
hafi fengið þær til að endurmeta
tilganginn með notkun Facebook.
Stúlkurnar eru báðar virk-
ar á samskiptasíðunni og við-
urkenna að það hafi komið
þeim á óvart hversu stóran þátt
Facebook spilar í daglegu lífi
manna. „Meiri hluti þjóðarinn-
ar er á Facebook, meira að segja
ungbörn og ömmur og afar eru
virk á samskiptasíðunni. Í dag
virðist maður ekki vera maður
með mönnum nema maður sé á
Facebook,“ segir Halldóra og
bætir við: „Það sem okkur lang-
aði að prufa að gera er að eiga
í Facebook-samskiptum í raun-
heiminum. Ég veit ekki hvort
okkur hafi tekist það, það er
áhorfenda að dæma um það.“
Leiksýningin verður frumsýnd
þann 25. maí á heimili Halldóru
í Mjóstræti 3. Áætlaðar eru fjór-
ar sýningar á verkinu og rúmast
um tíu manns á hverri sýningu.
Frekari upplýsingar er hægt að
nálgast á Facebook-síðu leikhóps-
ins Þrettán svartir kettir undir
stiga.
- sm
Facebook-samskipti í raunheimi
KYNNTUST FACEBOOK BETUR Halldóra
Rut Baldursdóttir og Katrín Halldóra
Sigurðardóttir, leiklistarnemar við
Listaháskóla Íslands, setja upp sýningu
byggða á Facebook-samskiptum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Darri Ingólfsson leikari fer með
lítið hlutverk í fyrsta þættinum af
sjónvarpsþáttaröðinni Last Resort
sem sýndir verða á sjónvarpstöð-
inni ABC. Framleiðendur þátt-
anna eru þeir sömu og framleiddu
Lost og handritshöfundarnir eru
þeir Shawn Ryan, sem skrifaði The
Shield og Angel, og Karl Gajdusek,
sem samdi handritið að kvikmynd-
inni Trespass.
Þátturinn er sagður í anda 24
og Homeland og fjallar um áhöfn
kjarnorkukafbáts í þjónustu banda-
ríska hersins sem fær þau fyr-
irmæli að gera árás á Pakistan.
Fyrirmælin vekja upp grunsemdir
hjá yfirmanni áhafnarinnar, sem
óhlýðnast skipuninni og er fyrir
vikið sagt upp störfum. Sá er tekur
við sem hæstráðandi gerir slíkt
hið sama og í kjölfarið er áhöfn-
in sökuð um landráð og upphefst
taugatrekkjandi eltingaleikur. Þátt-
urinn var tekinn upp í Honolulu á
Havaí og er leikstýrt af Martin
Campbell, sem á að baki kvikmynd-
ir á borð við Green Lantern, Casino
Royale og The Mask of Zorro.
Darri, sem vakti nokkra athygli
hér heima fyrir frammistöðu sína í
sjónvarpsþáttunum Mannaveiðum,
fer með lítið hlutverk í Last Resort.
Darri leikur aðstoðarmann þing-
manns sem fer á stefnumót með
dóttur efnaðs vopnaframleiðanda
og leikin er af Autumn Reeser.
Það er sjónvarpsstöðin ABC sem
er meðframleiðandi þáttanna, en
fyrir tækið er í eigu Walt Disney
Studios samsteypunnar.
Þegar Fréttablaðið náði tali
af Darra sagðist hann að vonum
ánægður með hlutverkið enda sé
margt hæfileikaríkt fólk sem komi
að gerð þáttanna.
„Það er auðvitað frábært að
hafa fengið þetta hlutverk þó lítið
sé. Þetta skapar vonandi fleiri
tækifæri fyrir mig. Skemmir svo
ekki að þetta var skotið á Havaí.
Mér skilst að ABC hafi ákveðið að
leggja pening í framleiðslu á hálfri
seríu en framhald þeirra ræðst svo
á áhorfi þannig nú er bara að bíða
og sjá hvað gerist,“ sagði Darri
sem hefur verið búsettur í Los
Angeles undanfarin þrjú ár.
DARRI INGÓLFSSON: Á VONANDI EFTIR AÐ OPNA EINHVERJAR DYR ÚTI
Landaði hlutverki í tauga-
tryllandi sjónvarpsþætti
AÐSTOÐARMAÐUR ÞINGMANNS Darri Ingólfsson hreppti lítið hlutverk í prufuþætti
fyrir Last Resort. Þættirnir eru nýir af nálinni og framleiddir af þeim sömu er gerðu
Lost. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég er nokkuð ánægður með
þetta,“ segir Helgi Ólafsson, stór-
meistari í skák.
Bók hans Bobby Fischer Comes
Home situr í efsta sæti á vinsæld-
arlista hins öfluga forlags New
in Chess, sem gefur bókina út.
Hún fjallar um heimsmeistarann
sáluga Bobby Fischer, og þar er
megin áhersla lögð á síðustu ár
hans á Íslandi.
„Ég umgekkst hann mjög mikið,
eða fram á vorið 2007. Þá má segja
að hafi kastast í kekki á milli
okkar. Hann veiktist um haustið
og var á spítala og var síðan far-
inn í ársbyrjun 2008,“ segir Helgi,
sem var fenginn til að skrifa bók-
ina vegna þess að hann þekkti
skákferil Fischers manna best
hér á landi. Helgi fylgdist með
heimsmeistaraeinvígi Fischers og
Spasskís í Laugardalshöll 1972 og
umgekkst Fischer mikið eftir að
hann flutti til Íslands. „Það kann-
ast margir við að eignast átrún-
aðargoð í æsku og kynnast þeim
síðar. Það má segja að maður sé
að bera þetta saman,“ segir hann.
„Maðurinn sem kom hingað 2005
var ekki sami maður í mínum huga
og 1972. Ég myndi ekki segja að
hann hafi valdið mér vonbrigðum.
Þetta var bara skeið í hans lífi sem
var mjög erfitt.“
Hann segir bók sem þessa mikil-
væga heimild. „Fischer tengdist
skáksögu Íslendinga og Íslands-
sögunni mikið. Það er nauðsynlegt
að það sé eitthvað skráð um þetta
af þeim sem voru að umgangast
hann.“
Spurður hvort bókin komi út á
íslensku segir Helgi að það komi
til greina ef einhver bókaforlög
sýni henni áhuga. - fb
Bók um Fischer nýtur vinsælda
ÁNÆGÐUR Helgi Ólafsson er ánægður með viðtökurnar við bókinni Bobby Fischer
Comes Home. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Head over Heels með Tears
for Fears. Það er síðan algjört
möst að leika bælda hljómborðs
sólóið sem er í myndbandinu.“
Magnús Leifsson, grafískur hönnuður og
grínisti.