Fréttablaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
skoðun 18
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Lífið
25. maí 2012
122. tölublað 12. árgangur
LÆKKAÐ VERÐAllar helstu sil-ungaflugurnar í Veiðiportin k
EITT STOPP Tómas Skúlason ásamt „aðstoðar-verslunarstjóranum“ Tinna sem stendur með honum vaktina.MYND/GVA
BLÖNDUNARLOKI FYLGIR
VÖNDUÐ VARAÁRATUGA REYNSLA
HITAKÚTAR
RYÐFRÍIR
NORSK
FRAMLEIÐSLA
LIST FYRIR ALLAListahátíð í Reykjavík stendur yfir dagana 18. maí til 3. júní. Fjöldi viðburða er í boði fyrir alla aldurshópa, til dæmis tónleikar, leikhús, myndlistarsýningar og húslestrar þar sem rithöfundar bjóða heim.
M eð nýrri vefverslun bjóðum við viðskiptavinum okkar aukna þjónustu, sérstaklega þeim sem búa úti á landi og hafa ekki kost á að koma við í búðinni,“ segir Tómas Skúlason, eigandi verslunarinnar Veiði-portið, Grandagarði 3. „Við erum að setja inn vörur hvenær sem við eigum lausa stund og innan skamms verða allar vörur Veiðportsins fáanlegar í gegnum síðuna. Þar á meðal allar tegundir af flugum en við bjóðum örugglega ódýrustu flugurnar á landinu og höfum gert frá upphafi,“ segir Tómas en hann stofnaði Veiðiportið fyrir níu árum gagngert til að bjóða gott úrv l fflugum á sa k
Tilboðið gildir eitthvað fram á vorið og
sér Tómas sjálfur um kennsluna.„Fólk hefur verið hrætt við að fjár-festa í fluguveiðigræjum ef það kann ekki til verka en nú fylgir kennsla frítt með,“ segir Tómas. Safnað verður í átta
til tíu manna hópa og köstin æfð á Klam-
bratúninu við Miklubraut. Námskeiðin
fara fram eftir klukkan 18 og fer skráning
fram við kaup.
Vöruúrvalið í Veiðiportinu spannar alla flóruna í veiðivörum og nefnir Tóm-
as meðal annars handhæga slöngubáta
sem slegið hafa í gegn. Bátunum er pakk
að saman í tösku
AUKIN ÞJÓNUSTAVEIÐIPORTIÐ KYNNIR Tómas Skúlason eigandi Veiðiportsins býður ókeypis kastnámskeið með hverju fluguveiðisetti. Þá er ný vefverslun komin í loftið.
ÓDÝR OG GÓÐ VARA „Við bjóðum örugglega ódýrustu flugurnar á landinu,“ segir Tómas Skúlason, eigandi Veiði-ports.
MYND/GVA
25. MAÍ 2012
SUMARLEG
BRÚÐARFÖRÐUN
HALLÓ
NEON LITIR
OPNUNARGLEÐI
Í REYKJAVÍK
Ari Trausti
Guðmundsson
Ólafur
Ragnar Grímsson
Þóra
Arnórsdóttir
%
Könnun á fylgi forsetaframbjóðenda
Allt fyrir Eurovision
Fánar, Íslandsskraut, míkrófónar, uppblásin
hljóðfæri, sprengjur, hattar, gleraugu, o.fl.Mikið úrval
borðbúnaðar
www.partybudin.is
Breytir nafninu í Bassi
Trommuleikarinn Bassi
Ólafsson hét áður Björn
Sigmundur Ólafsson.
popp 46
Sólgleraugu sumarsins
Kringlótt, klassísk og kisugleraugu
í tísku í sumar.
lífsstíll 34
Efla rannsóknir
á arkitektúr
Stofnun Rögnvaldar
Ólafssonar sett á laggirnar
tímamót 26
SAKAMÁL Skattrannsóknarstjóri
mun á allra næstu vikum vísa
í kringum 50 skattsvikamálum
til embættis sérstaks saksókn-
ara. Stærstu málin snúast um
milljarða króna undandrátt frá
skattgreiðslum. Þetta staðfestir
Bryndís Kristjánsdóttir skatt-
rannsóknarstjóri.
Embætti sérstaks saksókn-
ara hefur þegar fengið til sín 66
mál frá skattrannsóknarstjóra
frá því að embættið var sam-
einað efnahagsbrotadeild ríkis-
lögreglustjóra. Það hefur þegar
lokið rannsókn í 27 þeirra mála
og ákært í 23, eða 85 prósent mál-
anna. Í fjórum tilfellum hefur
skattsvikamál sem vísað var til
sérstaks saksóknara verið látið
niður falla.
Ólafur Þór Hauksson, sérstak-
ur saksóknari, segir að í þeim
málum sem þegar hafa farið í
ákæruferli sé komin dómsniður-
staða í ellefu mál. Í öllum þeirra
hefur verið sakfellt. Hann segir
málin oft vera mjög vel unnin af
skattrannsóknarstjóra þegar þau
berist inn á borð embættisins.
Þau séu auk þess flest ekki mjög
flókin og því sé hægt að afgreiða
þau með nokkuð miklum hraða.
„Fjöldi þeirra er enn í rannsókn
og það er ágætis gangur á þeim
rannsóknum.“ – þsj /sjá síðu 6
Skattrannsóknarstjóri hefur fullrannsakað á annað hundrað skattsvikamál:
Tugir skattsvikamála til sérstaks
HASAR Í BREIÐHOLTINU Tökur á spennuþáttaröðinni Pressu 3 stóðu sem hæst í Breiðholti í
gær. Ljósmyndari Fréttablaðsins átti fótum sínum fjör að launa undan látunum, sem sjónvarpsáhorfendur geta
fylgst með í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HVASST V-TIL Í dag verða sunnan
8-15 m/s, en sums staðar hvass-
ara V-til. Rigning NV-til en annars
úrkomulítið og léttir til. Hiti 10-18
stig.
VEÐUR 4
16
17
12
12
11
SJÁVARÚTVEGUR Adolf Guðmunds-
son, formaður LÍÚ, segir það
engu skipta þó ríkisstjórnin
lækki boðað veiðigjald um helm-
ing frá því sem
nú er í frum-
varpi um veiði-
gjaldið. Áfram
sé um að ræða
margföldun á
gjaldtöku sem
lami greinina.
Í viðtali
segir Adolf að
arðurinn berist
þegar til fólks-
ins í landinu í gegnum hagkerfið.
Spurður um fjölmiðlaherferð
vegna boðaðra breytinga segir
hann að þar tali grasrótin í land-
inu og dapurlegt sé að halda því
fram að útgerðin hafi keypt fólk
til að taka þátt í auglýsingagerð.
Herferðina borgar LÍÚ enda sé
hlutverk sambandsins að verja
hagsmuni útgerðarinnar.
- shá / sjá síðu 16
Adolf Guðmundsson, hjá LÍÚ:
Lamandi áhrif
óháð lækkun
ADOLF GUÐ-
MUNDSSON
KÖNNUN Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, hefur afgerandi
forskot á aðra frambjóðendur sam-
kvæmt niðurstöðu skoðanakönnun-
ar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Um 53,9 prósent þeirra sem
afstöðu taka segjast myndu kjósa
Ólaf Ragnar ef gengið yrði til
kosninga nú. Könnunin var gerð
í gærkvöldi og í fyrrakvöld. Í síð-
ustu könnun Fréttablaðsins, sem
gerð var dagana 11. og 12. apríl,
sögðust 46 prósent styðja Ólaf.
Verulega dregur úr stuðningi
við Þóru Arnórsdóttur samkvæmt
könnuninni. Um 35,4 prósent
styðja Þóru nú, en í síðustu könnun
sögðust 46,5 prósent myndu kjósa
hana, sem var svipaður stuðningur
og við sitjandi forseta.
Ólafur hafði eftirlátið keppi-
nautum sínum sviðið framan af,
en hóf kosningabaráttu sína með
hvelli í síðustu viku. Þóra hefur
aftur á móti haft hægt um sig eftir
barnsburð fyrir viku.
Aðrir frambjóðendur njóta
mun minni hylli kjósenda. Um 5,3
prósent þeirra sem afstöðu taka
myndu kjósa Ara Trausta Guð-
mundsson og 2,7 prósent Andreu
J. Ólafsdóttur.
Um 1,3 prósent þeirra sem
afstöðu taka styðja Herdísi Þor-
geirsdóttur og 0,9 prósent Ástþór
Magnússon. Enginn þeirra 800
sem hringt var í nefndi Hannes
Bjarnason.
Alls tóku 79,5 prósent þeirra
sem náðist í afstöðu til einhvers
frambjóðenda í könnuninni.
- bj / sjá síðu 8
Ólafur Ragnar tekur forystu
Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú
samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert.
50
40
30
20
10
0 5,3% 53,9% 35,4%
Skoðanakönnun
11. og 12. apríl 2012
Heimild: Skoðanakönnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2
23. og 24. mars 2012
ÍA tapaði stigum
Skagamenn töpuðu sínum
fyrstu stigum í Pepsi-
deildinni í gær.
sport 40