Fréttablaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 25
LÆKKAÐ VERÐ
Allar helstu sil-
ungaflugurnar í
Veiðiportinu kosta
195 krónur stykkið.
HANDHÆGIR BÁTAR
Slöngubátarnir
pakkast saman í
handhæga tösku.
Tekur 15 mínútur
að setja saman.
Viðurkenndir af
Siglingastofnun.
NÝ VEFVERSLUN
www. veidiportid.is
EITT STOPP
Tómas Skúlason
ásamt „aðstoðar-
verslunarstjóranum“
Tinna sem stendur
með honum vaktina.
MYND/GVA
BLÖNDUNARLOKI
FYLGIR
VÖNDUÐ VARA
ÁRATUGA REYNSLA
HITAKÚTAR
RYÐFRÍIR
NORSK
FRAMLEIÐSLA
Olíufylltir rafmagnsofnar
Stærðir: 250W-2000W
LIST FYRIR ALLA
Listahátíð í Reykjavík stendur yfir dagana
18. maí til 3. júní. Fjöldi viðburða er í boði
fyrir alla aldurshópa, til dæmis tónleikar,
leikhús, myndlistarsýningar og húslestrar
þar sem rithöfundar bjóða heim.
Með nýrri vefverslun bjóðum við viðskiptavinum okkar aukna þjónustu, sérstaklega þeim
sem búa úti á landi og hafa ekki kost
á að koma við í búðinni,“ segir Tómas
Skúlason, eigandi verslunarinnar Veiði-
portið, Grandagarði 3.
„Við erum að setja inn vörur hvenær
sem við eigum lausa stund og innan
skamms verða allar vörur Veiðportsins
fáanlegar í gegnum síðuna. Þar á meðal
allar tegundir af flugum en við bjóðum
örugglega ódýrustu flugurnar á landinu
og höfum gert frá upphafi,“ segir Tómas
en hann stofnaði Veiðiportið fyrir níu
árum gagngert til að bjóða gott úrval af
flugum á samkeppnishæfu verði.
„Við fórum strax af stað með eigin
framleiðslu og hnýtum mikið af flugum
yfir vetrartímann. Þá erum við einnig
í samstarfi við nokkra góða fluguhnýt-
ingamenn og bjóðum allar helstu flug-
urnar. Auðvitað lumum við svo alltaf á
leynivopnum úr okkar smiðju,“ segir
Tómas.
Fluguveiðisett í Veiðiportinu kosta
frá 19.900 krónum og fylgir öllum seld-
um fluguveiðisettum frítt kastnámskeið.
Tilboðið gildir eitthvað fram á vorið og
sér Tómas sjálfur um kennsluna.
„Fólk hefur verið hrætt við að fjár-
festa í fluguveiðigræjum ef það kann
ekki til verka en nú fylgir kennsla frítt
með,“ segir Tómas. Safnað verður í átta
til tíu manna hópa og köstin æfð á Klam-
bratúninu við Miklubraut. Námskeiðin
fara fram eftir klukkan 18 og fer skráning
fram við kaup.
Vöruúrvalið í Veiðiportinu spannar
alla flóruna í veiðivörum og nefnir Tóm-
as meðal annars handhæga slöngubáta
sem slegið hafa í gegn. Bátunum er pakk-
að saman í tösku sem lítið fer fyrir og
einungis tekur um 15 mínútur að setja
þá saman. Bátarnir eru viðurkenndir
af Siglingastofnun. „Þetta hentar þeim
sem ekki hafa pláss til að geyma stóran
bát yfir vetrartímann eða draga á kerru.
Það má einfaldlega henda þeim í skottið
á fjölskyldubílnum og leggja af stað í
veiðitúr. Það þarf í rauninni bara eitt
stopp hvort sem viðkomandi er að fara
á sjóstöng eða að veiða í ám og vötnum
og það er í Veiðiportinu. Við bjóðum alla
flóruna og höfum einbeitt okkur að því
að bjóða upp á góða vöru á góðu verði.“
AUKIN ÞJÓNUSTA
VEIÐIPORTIÐ KYNNIR Tómas Skúlason eigandi Veiðiportsins býður ókeypis
kastnámskeið með hverju fluguveiðisetti. Þá er ný vefverslun komin í loftið.
ÓDÝR OG GÓÐ VARA
„Við bjóðum örugglega
ódýrustu flugurnar á
landinu,“ segir Tómas
Skúlason, eigandi Veiði-
ports. MYND/GVA