Fréttablaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 42
25. maí 2012 FÖSTUDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Þennan dag árið 1977 var fyrsta Stjörnustríðs-
myndin frumsýnd. Hún bar heitið Stjörnustríð
eða Star Wars á frummálinu fyrst þegar hún
kom í kvikmyndahús en fékk síðar heitið
Stjörnustríð IV: Ný von. Myndin er númer
fjögur í sex mynda bálki leikstjórans George
Lucas en er fyrsta myndin í þríleik myndanna
sem frumsýndar voru á árunum 1977 til 1983.
Þessi fyrsta mynd bálksins sló strax í gegn
og halaði inn svo mikið fé að hún er með
þeim arðbærustu í kvikmyndasögunni. Star
Wars braut blað í notkun tæknibrellna. „Í
heild eru liðlega 365 brelluatriði í Stjörnu-
stríði,“ sagði í grein í Morgunblaðinu sem
birtist 21. október ári síðar en þá voru sýn-
ingar nýhafnar á henni í Reykjavík. Í greininni
er Stjörnustríð sögð „ævintýramynd eins og
þær gerast ævintýralegastar,“ og tekið fram að
„Ævintýrin í myndinni ... [séu] ættuð úr kynja-
veröld geimsins eins og hún kemur fyrir sjónir
í teiknimyndasögunum“.
Logi geimgengill, Svarthöfði, Lilja prinsessa,
Hans Óli og aðrar söguhetjur kvikmyndar-
innar, sem segir frá baráttu uppreisnarmanna
gegn hinu illa keisaraveldi, hittu í mark og
þessi fyrsta Stjörnustríðsmynd, eins og hinar,
nýtur enn mikillar hylli þrátt fyrir að hún sé
orðin 35 ára gömul.
ÞETTA GERÐIST: 25. MAÍ 1977
Ríflega 365 brelluatriði í Stjörnustríði
Rögnvaldur Ólafsson var fyrsti
Íslendingurinn sem nam byggingar-
list en hann lagði stund á arkitektúr
í Kaupmannahöfn í upphafi 20. aldar.
Hann lauk ekki prófi vegna bágrar
heilsu en starfaði sem húsameistari
hér á landi eftir að hann sneri heim.
Þrátt fyrir stutta starfsævi, en Rögn-
valdur lést árið 1917, var hann afar
afkastamikill og teiknaði fjölda bygg-
inga sem enn standa. „Hann er ekki
jafn þekktur og Guðjón Samúelsson
sem tók við af honum sem húsameist-
ari árið 1918 en æviverk Rögnvaldar
er merkilegt og fallegt,“ segir Elísa-
bet Gunnarsdóttir arkitekt sem er í
hópi aðstandenda stofnunar sem sett
hefur verið á laggirnar og ber nafn
Rögnvaldar.
Stofnunin mun hafa aðsetur á Ísa-
firði, en Rögnvaldur var fæddur og
uppalinn í Dýrafirði. Stofnunin verð-
ur rekin í samstarfi við ýmsar stofn-
anir og segir Elísabet markmiðið
vera að efla rannsóknir á arkitektúr
og skipulagsmálum á Íslandi. „Rann-
sóknir á þeim vettvangi hafa verið
vanræktar og við höfum því feng-
ið mjög góðar undirtektir hjá til að
mynda arkitektum við hugmyndinni,“
segir Elísabet.
Stofnunin verður kynnt nánar á
málþingi sem haldið verður á Ísa-
firði á mánudag, öðrum degi hvíta-
sunnu. Málþingið verður haldið í
Edinborgarhúsinu en það er höfund-
arverk Rögnvaldar. „Önnur þekkt
hús eftir Rögnvald eru til að mynda
Vífilsstaðaspítali, Húsavíkurkirkja,
flest húsin við Tjarnargötu í Reykja-
vík, pósthúsið við Pósthússtræti, fjöl-
margar kirkjur víða um land og svo
mætti lengi telja,“ segir Elísabet.
Á málþinginu verða flutt tvö erindi.
Það fyrra flytur Sigurður Péturs-
son sagnfræðingur og ber það heitið
„Ísafjarðarkaupstaður, höfuðstaður
með reisn“. Í því segir Sigurður frá
uppbyggingartíma í sögu Ísafjarð-
arkaupstaðar í upphafi 20. aldarinn-
ar. Þá voru reist fjölmörg timburhús
sem enn setja svip sinn á bæinn, þar
á meðal Edinborgarhúsið.
Að því loknu flytur Pétur Ármanns-
son erindi er nefnist „Hugmynda-
smiður heimastjórnaráranna. Hug-
leiðing um Rögnvald Ólafsson og verk
hans“.
Þá verður afhjúpað söguspjald um
Rögnvald og loks verður boðið upp á
rútuferð á söguslóðir í Dýrafirði þar
sem Þingeyrarkirkja verður heimsótt
og kynntur verður upplýsingabækl-
ingur um byggingar og staði sem
tengjast Rögnvaldi Ólafssyni á Vest-
fjörðum og víðar um land.
FYRSTI ÍSLENSKI ARKITEKTINN: DAGSKRÁ HELGUÐ RÖGNVALDI ÓLAFSSYNI
Stofnun Rögnvaldar mun sinna
rannsóknum á arkitektúr
RÖGNVALDUR ÓLAFSSON Fyrsti íslenski
arkitektinn fæddist árið 1874 og lést úr
berklum 1917. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR.
VEL ÞEKKT VERK Húsavíkurkirkja og Vífilsstaðaspítali eru á meðal bygginga sem reistar voru eftir teikningum Rögnvaldar Ólafssonar sem fyrstur
Íslendinga nam byggingarlist.
MILES DAVIS TÓNLISTARMAÐUR
(1926-1991) fæddist þennan dag.
„Ekki óttast mistök. Þau eru ekki til.“
Sinfóníuhljómsveit Íslands, einsöngvarar og kórar
frumflytja á Íslandi Rómeó og Júlíu eftir Hector
Berlioz í kvöld klukkan 19.30 en tónleikarnir eru hluti
af Listahátíð í Reykjavík. Rómeó og Júlía eftir Berlioz
hefur verið kölluð dramatísk sinfónía. Hér er sinfóníu-
formið teygt í ýmsar áttir svo úr verður eins konar
bræðingur hljómsveitarverks og óperu. Helstu þættir
verksins eru sungnir af mezzósópran, tenór og bassa,
auk þess sem Berlioz notar stóran kór í verkinu.
Hljómsveitarstjóri í kvöld er Ilan Volkov, einsöngv-
arar eru þau Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Sveinn Dúa
Hjörleifsson og Nicolas Cavallier. Kórarnir sem taka
þátt í flutningnum eru Hljómeyki, Kór Áskirkju og
Söngsveitin Fílharmónía en Magnús Ragnarsson er
kórstjóri.
Frumflytja
Rómeó og Júlíu
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN ÞORBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR
Skarðshlíð 27c Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 21. maí.
Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju
þriðjudaginn 29. maí kl. 10.30.
Hörður Sigtryggsson
Heimir Sigtryggsson
Guðrún H. Sigtryggsdóttir Stefán Guðmundsson
ömmu- og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SÓLBORG GUÐMUNDSDÓTTIR
(BOGGA)
Erluási 2,
sem lést miðvikudaginn 16. maí sl. á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 29. maí kl. 13.00.
Auðun Óskarsson Anna Margrét Ellertsdóttir
Herdís Óskarsdóttir Gunnar K. Aðalsteinsson
Eygló Óskarsdóttir Gunnar Gunnlaugsson
Friðrik Óskarsson Ólöf Unnur Einarsdóttir
Gunnar Rúnar H. Óskarsson Ingunn Bjarnadóttir
Auður Óskarsdóttir Reynir Bess Júlíusson
ömmubörn og langömmubörn.
Móðir okkar og systir,
KRISTÍN HALLVARÐSDÓTTIR ENGEL
Palmdale, Kaliforníu,
lést í faðmi fjölskyldu á heimili sínu að
morgni þann 23. maí.
Minningarathöfn verður tilkynnt síðar.
Harry, Justin og Rúna Engel
Agnes, Ragna, Fríða og Árný Hallvarðsdætur
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts og útfarar okkar
ástkæru,
STEINUNNAR HAFDÍSAR
HAFLIÐADÓTTUR
frá Gríshóli.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða fyrir
frábæra umönnun.
Sigríður Illugadóttir Guðmundur Friðjónsson
Ólafía Illugadóttir Ívar H. Elíasson
Ingveldur Vigdís Illugadóttir
Hallur Kristján Illugason Ingdís Líndal
Guðrún Alda Björnsdóttir Benoný B. Viggósson
og ömmubörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar,
MARGRÉTAR GUÐBJARTSDÓTTUR
frá Hvallátrum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar
fyrir hlýhug og góða umönnun.
Erla Bjarnadóttir
Reynir Bjarnason
Guðbjartur Bjarnason
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNAR B. HÁKONARSON
vinnuvélastjóri
Strikinu 4, Garðabæ,
lést laugardaginn 12. maí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 30. maí kl. 13.00.
Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir
Hákon Gunnarsson Guðný Helgadóttir
Helga Gunnarsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir Unnar Reynisson
Hrefna Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
JÓNÍNA SIGURBORG JÓNASDÓTTIR
JONNA FRÁ DAGSBRÚN,
Dalbraut 16, Reykjavík,
lést að kvöldi 23. maí.
Sigurbjörg Björnsdóttir
Guðmundur Björnsson
Björg Björnsdóttir
Sigrún Þóra Björnsdóttir