Fréttablaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 35
LÍFIÐ 25. MAÍ 2012 • 9
Sjá nánar á visir.is/lifid
Undirfataverslunin Boux Avenue var opnuð í Kringlunni 16. maí síðastliðinn. Boux
Avenue er breskt merki og er Boux Avenue í Kringlunni fyrsta verslunin sem er opnuð
utan Bretlands. Þar er að finna falleg undirföt, sundföt, náttföt og hina ýmsu fylgi-
hluti. Úrvalið spannar allt frá hversdagsnærfatnaði til seiðandi undirfata. Eins má finna
ýmiss konar nærfatnað með skemmtilegu ívafi, líflegar náttbuxur, náttföt og bikiní. Að
sögn Jennýjar Kristínar Sigurðardóttur, starfsmanns verslunarinnar, er hún hinn full-
komni áfangastaður kvenna sem vilja gefa undirfataskúffunni nýtt líf. Þá er lögð mikil
áhersla á gott úrval stærða. Brjóstahaldararnir eru frá 30A upp í 40H og aðrar vörur,
svo sem nærbuxur og náttföt, fást í stærðunum 8 til 20.
Að sögn Jennýjar er starfsfólk verslunarinnar þjálfað til að mæla viðskiptavini og veita
bestu þjónustu sem völ er á við val á nærfatnaði. Verslunin er hönnuð með nýstárlegum
hætti og er aðgengi að vörunum gott. Nærfatnaðinum er snyrtilega raðað í skúffur eftir
stærðum svo auðvelt er að finna sína
stærð. Hægt er að skoða vöruúrvalið á
bouxavenue.com.
Mikið úrval af líflegum náttfötum fæst í versluninni.
Í versluninni er einnig að finna úrval fylgihluta og
gjafavöru. Hér má sjá falleg bikiní fyrir sumarið. Mikil áhersla er lögð á gott stærðaúrval og fást brjóstahaldararnir frá stærðunum 30A og upp í 40H.
Nærfatnaðinum er snyrtilega raðað í skúffur eftir stærðum svo auðvelt er að finna rétta stærð. Verslunin er á annarri hæð Kringlunnar.
Jenný Kristín Sigurðardóttir segir verslunina fullkominn áfangastað kvenna sem vilja gefa nærfataskúffunni
nýtt líf. MYNDIR/STEFÁN
AUGLÝSING: BOUX AVENUE KYNNIR
SEIÐANDI
UNDIRFATNAÐUR
OG LÍFLEG NÁTTFÖT
Boux Avenue er ný undirfataverslun á annarri hæð Kringlunnar. Merkið er
breskt og er verslunin í Kringlunni sú fyrsta sem er opnuð utan Bretlands.