Fréttablaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 2
25. maí 2012 FÖSTUDAGUR2
Verjendur segja ekkert benda til sektar
Á þessu stigi
bendir ekkert til
þess að Annþór
Kristján Karlsson
hafi átt þátt í því
að bana Sigurði
Hólm Sigurðssyni,
sem lést á Litla-
Hrauni fyrir helgi.
Þetta fullyrða
verjendur Ann-
þórs, Guðmundur
St. Ragnarsson og Hólmgeir Elías
Flosason, í yfirlýsingu til fjölmiðla
í gær. Ekki liggi heldur fyrir hvort
áverkarnir sem Sigurður bar innvortis
séu yfirleitt af
mannavöldum.
Ingi Freyr Ágústs-
son, verjandi
Barkar Birkissonar,
sendi efnislega
samhljóða yfirlýs-
ingu til fjölmiðla
síðdegis í gær.
Verjendur
beggja gagnrýna
að upplýsingar
hafi borist fjölmiðlum og fullyrða að
verjendur í málinu hafi fyrst fengið
upplýsingar um rannsóknargögn og
málavexti í gegnum fjölmiðla.
María Lilja, hvernig er þetta
eiginlega meint?
„Allt er þetta vel meint!“
María Lilja Þrastardóttir er einn af skipu-
leggjendum Druslugöngunnar. Gangan
23. júní næstkomandi kallast nú Meint-
drusluganga, til að vekja athygli á orðalagi
í umfjöllun um kynferðisglæpi, sem síður
tíðkast í annarri glæpaumfjöllun.
ICESAVE Munnlegur málflutning-
ur í máli ESA gegn Íslandi fyrir
EFTA-dómstólnum vegna Icesave
hefst 18. september næstkom-
andi. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Framkvæmdastjórn ESB hefur
skilað af sér greinargerð í mál-
inu þar sem stutt er við mál-
flutning ESA, það er að Ísland
hafi gerst brotlegt við tilskipun
um innistæðutryggingar þegar
Landsbankinn féll. Þar að auki
hafi aðgerðir íslenskra stjórn-
valda falið í sér mismunun milli
íslenskra og erlendra innistæðu-
eigenda. Ísland hafnar rökum
framkvæmdastjórnarinnar og
mun skila athugasemdum á næstu
vikum. - þj
Icesave-dómsmálið:
Málflutningur
í september
LÖGREGLUMÁL Öryggisreglum á
Litla-Hrauni hefur verið breytt til
að betur verði hægt að taka á móti
Annþóri Kristjáni Karlssyni og
Berki Birgissyni þegar þeir losna
úr einangrunarvist eftir nokkrar
vikur. Þeir eru grunaðir um að
hafa valdið dauða samfanga síns í
síðustu viku. Þeir voru úrskurðaðir
í þriggja vikna gæsluvarðhald og
einangrunarvist í gær.
„Við höfum þrjár vikur til að
skerpa á öryggismálum hjá okkur
og ég get alveg fullvissað þig um að
það verður gert,“ segir Páll Winkel
fangelsismálastjóri.
„Vegna plássleysis þá höfum við
nýtt öryggisgang á Litla-Hrauni
undir afplánun. Ég gaf út fyrir-
mæli þess efnis í dag [í gær] að
það yrði ekki gert aftur. Þannig að
öryggisgangurinn á Litla-Hrauni
verður nýttur sem slíkur og sé
ekki brýn nauðsyn á vistun fanga
þar þá mun hann standa auður,“
segir Páll, sem var farinn að búa
sig undir að þurfa að hraða breyt-
ingunum ef ske kynni að gæslu-
varðhaldskröfunni yrði hafnað.
„Það tekur okkur einhvern tíma
að tæma þennan öryggisgang, en
það verður klárt þegar nýting hans
verður nauðsynleg og öll réttindi
manna sem þar verða vistaðir
verða í löglegu lágmarki.“
Um leið og Annþór og Börkur
losna úr einangrun munu þeir fara
á öryggisganginn. „Það er frágeng-
ið,“ segir Páll. „Þar verða engir
aðrir en þeir og ef aðrir fangar
hegða sér með einhverju svipuðu
móti þá fara þeir þangað inn líka.“
Þeir sem vistaðir eru á öryggis-
ganginum geta haft samskipti sín
á milli, en þó getur þurft að tak-
marka þau eða koma í veg fyrir
Reglur hertar vegna
Annþórs og Barkar
Öryggisgangur á Litla-Hrauni verður rýmdur fyrir tvo fanga sem grunaðir eru
um manndráp áður en þeir losna úr einangrun, samkvæmt fyrirmælum fang-
elsismálastjóra. Þar verða þeir einir og réttindi þeirra í löglegu lágmarki.
ANNÞÓR
KARLSSON
BÖRKUR
BIRGISSON
HART TEKIÐ Á MÁLUM Páll Winkel ætlar
að taka hart á þeim Annþóri og Berki
þegar þeim verður hleypt úr einangrun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Við verðum bara
að athuga það
út frá þeim lagalega
ramma sem við vinnum
eftir hversu mikið við
getum lokað þessa
menn inni.”
PÁLL WINKEL
FANGELSISMÁLASTJÓRI
þau. „Við verðum bara að athuga
það út frá þeim lagalega ramma
sem við vinnum eftir hversu mikið
við getum lokað þessa menn inni,“
segir Páll.
Athygli vakti að dómari kvað
upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
mönnunum á Litla-Hrauni í gær,
en þeir voru ekki fluttir í Héraðs-
dóm Suðurlands á Selfossi. Þetta er
fáheyrt ef ekki einsdæmi. Ástæðan
er sú að Börkur hefur verið veru-
lega óstýrilátur þegar hann hefur
verið færður á milli staða. Hann
hefur hótað sérsveitarmönnunum,
gert sig líklegan til að veitast að
þeim, hrækt og haft uppi ógnandi
tilburði af ýmsum toga. Því ósk-
aði lögregla eftir að dómari kæmi
frekar í fangelsið svo að ekki þyrfti
að flytja Börk.
stigur@frettabladid.is
VINNUMARKAÐUR Starfsmönnum
Landsbanka Íslands fækkar um 50
um mánaðamótin vegna hagræð-
ingaraðgerða. Átta útibúum verð-
ur lokað eða þau sameinuð öðrum
og deildir í höfuðstöðvum bankans
verða sameinaðar.
29 starfsmönnum var sagt upp og
15 var boðinn starfslokasamningur.
Aðrir sem hætta um mánaðamótin
höfðu áður sagt upp störfum, að því
er segir í tilkynningu.
Afgreiðslu bankans verður lokað
á Flateyri og í Súðavík, á Bíldudal
og á Króksfjarðarnesi. Þá verður
afgreiðslan á Grundarfirði samein-
uð útbúi í Snæfellsbæ. Útibú bank-
ans á Eskifirði og Fáskrúðsfirði
verða sameinuð útibúi á Reyðar-
firði. Þá verður útibú í Árbæ sam-
einað útibúi í Grafarholti, en áfram
verður afgreiðsla í Árbæ.
Útibúin hætta störfum 31. maí
næstkomandi. Bankinn segir að
þessi breyting skýrist að stórum
hluta af breytingu á viðskiptahátt-
um, heimsóknum hafi fækkað hratt
á síðustu árum og 80 prósent allra
samskipta séu rafræn eða í gegnum
síma. Bankinn áætlar að um 400
milljónir króna sparist á ári með
þessum breytingum. - þeb
Landsbankinn lokar útibúum um allt land og sameinar deildir í höfuðstöðvum:
50 missa vinnuna í hagræðingu
LANDSBANKINN Deildir verða samein-
aðar í höfuðstöðvum Landsbankans og
átta útibúum eða afgreiðslum lokað.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
KOSNINGAR Stikkprufur sem yfir-
kjörstjórnir um landið hafa gert á
meðmælendum Ástþórs Magnús-
sonar forseta-
frambjóðanda
leiða í ljós að
minnsta kosti
fjörutíu manns
kannast ekki við
að hafa skrifað
undir listana.
Í kvöldfréttum
RÚV var sagt
frá ábendingu
starfsfólks
Þjóðskrár, sem fer yfir listana, um
að sama rithönd kæmi fyrir í fjöl-
mörgum tilfellum. Grunur leikur á
að undirskriftir með sömu rithönd
kunni að hlaupa á hundruðum. Ást-
þór sagði í samtali við RÚV ljóst
að hann setti ekki sjálfur inn rang-
ar undirskriftir. Hann telur að
verið sé að spila með framboð sitt.
Ástþór hefur fengið frest til
miðnættis til þess að skila inn
nýjum undirskriftum.
Ástþór fær frest til miðnættis:
Sama rithönd
aftur og aftur
ÁSTÞÓR
MAGNÚSSON
DÓMSMÁL Hæstiréttur sneri í gær
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
í máli fyrirtækisins Smákrana
gegn Lýsingu. Héraðsdómur
hafði sagt gengislán fyrirtækis-
ins hjá Lýsingu ólögmætt. Mögu-
lega er skuldastaða yfir þúsund
fyrirtækja í uppnámi eftir dóm-
inn.
Fyrirtækið tók sjö milljóna
króna lán hjá Lýsingu árið 2007.
Þegar gengistryggð lán voru
dæmd ólögmæt taldi Lýsing að
lánið væri kaupleigusamning-
ur. Héraðsdómur var ekki sama
sinnis og sagði um lán að ræða.
Því hafi verið ólöglegt að tryggja
lánið í erlendri mynt.
Lögmaður Smákrana, Einar
Hugi Bjarnason, var ósáttur við
niðurstöðuna og telur dóminn
ganga þvert á niðurstöðu Hæsta-
réttar í sambærilegum málum.
„Og mér sýnist í fljótu bragði að
niðurstaða Hæstaréttar grund-
vallist á því að þessi samnings-
form séu ólík að ákveðnu leyti
sem leiðir þá til ólíkrar niður-
stöðu.“ - þeb
Hæstiréttur sneri dómi:
Dæmdi gengis-
lán lögmætt
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
í gær tíu mánaða fangelsisdóm
yfir 48 ára gömlum manni vegna
kynferðisbrota.
Maðurinn var dæmdur fyrir að
hafa tvisvar lagst upp í rúm hjá
fjórtán ára stúlku, sem hann átti
í trúnaðarsambandi við, strok-
ið líkama hennar og kysst hana
í tvígang. Þá var hann einnig
dæmdur fyrir að hafa veitt stúlk-
unni og vinkonu hennar áfengi.
Ákærði kynntist stúlkunni
þegar hún var tíu eða ellefu ára.
Hann var góður vinur móður
hennar og hafði oft dvalið á heim-
ili hennar. Stúlkan sagðist líta á
hann eins og föður. - þeb
10 mánaða dómur staðfestur:
Fangelsi fyrir
kynferðisbrot
SLYS Tveir ferðamenn, karl og kona, sluppu ótrú-
lega vel þegar brún á Lágey Dyrhólaeyjar, sem
þau stóðu á, gaf sig um hádegisbil í gær. Þau
féllu um 40 metra með skriðu þegar það gerðist,
en voru ofan á skriðunni allan tímann. Skriðan
féll ofan í Kirkjufjöru, en fjara var þegar slysið
varð.
Karlinn fótbrotnaði og konan hryggbrotnaði,
en að öðru leyti hlutu þau ekki alvarleg meiðsl.
Þau voru bæði lögð inn á bæklunardeild Land-
spítalans eftir viðkomu á bráðamóttökuna. Mað-
urinn fór í aðgerð vegna fótbrotsins.
Konan gat gengið til landvarðar og látið vita
af atburðinum. Björgunarsveitarmenn úr björg-
unarsveitinni Víkverja í Vík kom fólkinu til
hjálpar. „Við komust að þeim landleiðina þann-
ig að við þurftum ekki að hífa þau upp,“ sagði
Grétar Einarsson björgunarsveitarmaður við
Vísi í gær. „Þetta er ekkert annað en krafta-
verk. Það er algjörlega ótrúlegt hvað þau sluppu
vel,“ sagði hann jafnframt. Fólkið var á merktri
gönguleið, en svæðinu hefur nú verið lokað. -þeb
Tveir erlendir ferðamenn voru á syllu sem gaf sig í Dyrhólaey í gær:
Sluppu vel eftir 40 metra fall
100 METRA SYLLA SEM FÉLL Fólkið féll um fjörutíu metra niður í
fjöruna með þessari gríðarstóru skriðu. MYND/GRÉTAR EINARSSON
ALÞINGI Tillaga Vigdísar Hauks-
dóttur, þingkonu Framsóknar-
flokksins, um hvort efna skuli til
þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort
stöðva eigi aðildarviðræður við
Evrópusambandið var felld á þingi
í gær.
34 greiddu atkvæði gegn til-
lögunni en 25 með. Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir og Jón Bjarnason
greiddu atkvæði með henni, en
þingmenn Hreyfingarinnar, Þor-
gerður K. Gunnarsdóttir, Siv Frið-
leifsdóttir, og Guðmundur Stein-
grímsson greiddu atkvæði á móti.
Tillaga um ESB-aðild:
Viðræður ekki í
þjóðaratkvæði
SPURNING DAGSINS
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Grillosturinn bráðnar betur en aðrir ostar og
hentar því einstaklega vel á hamborgara eða
annan grillaðan mat.
alveg grillaður!