Fréttablaðið - 25.05.2012, Page 35

Fréttablaðið - 25.05.2012, Page 35
LÍFIÐ 25. MAÍ 2012 • 9 Sjá nánar á visir.is/lifid Undirfataverslunin Boux Avenue var opnuð í Kringlunni 16. maí síðastliðinn. Boux Avenue er breskt merki og er Boux Avenue í Kringlunni fyrsta verslunin sem er opnuð utan Bretlands. Þar er að finna falleg undirföt, sundföt, náttföt og hina ýmsu fylgi- hluti. Úrvalið spannar allt frá hversdagsnærfatnaði til seiðandi undirfata. Eins má finna ýmiss konar nærfatnað með skemmtilegu ívafi, líflegar náttbuxur, náttföt og bikiní. Að sögn Jennýjar Kristínar Sigurðardóttur, starfsmanns verslunarinnar, er hún hinn full- komni áfangastaður kvenna sem vilja gefa undirfataskúffunni nýtt líf. Þá er lögð mikil áhersla á gott úrval stærða. Brjóstahaldararnir eru frá 30A upp í 40H og aðrar vörur, svo sem nærbuxur og náttföt, fást í stærðunum 8 til 20. Að sögn Jennýjar er starfsfólk verslunarinnar þjálfað til að mæla viðskiptavini og veita bestu þjónustu sem völ er á við val á nærfatnaði. Verslunin er hönnuð með nýstárlegum hætti og er aðgengi að vörunum gott. Nærfatnaðinum er snyrtilega raðað í skúffur eftir stærðum svo auðvelt er að finna sína stærð. Hægt er að skoða vöruúrvalið á bouxavenue.com. Mikið úrval af líflegum náttfötum fæst í versluninni. Í versluninni er einnig að finna úrval fylgihluta og gjafavöru. Hér má sjá falleg bikiní fyrir sumarið. Mikil áhersla er lögð á gott stærðaúrval og fást brjóstahaldararnir frá stærðunum 30A og upp í 40H. Nærfatnaðinum er snyrtilega raðað í skúffur eftir stærðum svo auðvelt er að finna rétta stærð. Verslunin er á annarri hæð Kringlunnar. Jenný Kristín Sigurðardóttir segir verslunina fullkominn áfangastað kvenna sem vilja gefa nærfataskúffunni nýtt líf. MYNDIR/STEFÁN AUGLÝSING: BOUX AVENUE KYNNIR SEIÐANDI UNDIRFATNAÐUR OG LÍFLEG NÁTTFÖT Boux Avenue er ný undirfataverslun á annarri hæð Kringlunnar. Merkið er breskt og er verslunin í Kringlunni sú fyrsta sem er opnuð utan Bretlands.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.