Fréttablaðið - 25.05.2012, Qupperneq 6
25. maí 2012 FÖSTUDAGUR6
SAKAMÁL Embætti sérstaks sak-
sóknara hefur fengið til sín alls 66
mál frá skattrannsóknarstjóra frá
því að embættið var sett á fót og
tugir mála til viðbótar eru á leið
þangað. Rannsókn er þegar lokið
í 27 málanna. Í fjórum tilfellum
varð niðurstaðan sú að ákæra ekki
en í 23 þeirra hefur verið gefin út
ákæra. Af þeim málum er þegar
komin niðurstaða í ellefu. Sam-
kvæmt Ólafi Þór Haukssyni, sér-
stökum sak-
sóknara, var
sakfellt í þeim
öllum.
Hann segir
málin oft vera
mjög vel unnin
af skattrann-
sóknarstjóra
þegar þau ber-
ist inn á borð
síns embætt-
is. Þau séu auk
þess flest ekki mjög flókin og því
sé hægt að afgreiða þau með nokk-
uð miklum hraða. „Fjöldi þeirra er
enn í rannsókn og það er ágætis
gangur á þeim rannsóknum.“
Af þeim ellefu málum sem þegar
hefur verið sakfellt í var þyngsta
refsingin sem ákvörðuð hefur verið
tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi
og 100 milljóna króna sekt fyrir
meiriháttar brot gegn skattalög-
um. Sá dómur, sem var yfir fyrr-
um framkvæmdastjóra og stjórn-
armanni einkahlutafélagsins A&V
ehf. sem nú er gjaldþrota, féll í
janúar síðastliðnum. Allar sektar-
greiðslur vegna skattalagabrota
renna í ríkissjóð.
Bryndís Kristjánsdóttir skatt-
rannsóknarstjóri segir að embætti
sitt muni senda tugi mála til við-
bótar á allra næstu vikum til sér-
staks saksóknara. „Ég myndi ætla
að þetta væru um 50 mál á næstu
vikum. Þau eru allt frá því að vera
nokkurra milljóna króna undan-
dráttur og upp í hundruð milljóna
króna. Í einhverjum málum sem ég
sé fyrir mér að fari héðan innan
tíðar er undandrátturinn talinn í
milljörðum.“
Sum málannna eru búin að vera
lengi í rannsókn hjá embætti skatt-
rannsóknarstjóra. Bryndís segir
þau geta verið eitt til tvö ár í rann-
sókn eftir umfangi. „Hér fer fram
sakamálarannsókn í samræmi við
lög um meðferð sakamála. Við
erum ekki eins og til dæmis Fjár-
málaeftirlitið sem vísar málum til
frekari rannsókna. Þau koma tilbú-
in frá okkur.“
Aðkoma sérstaks saksóknara
að skattalagabrotamálum er því
í flestum tilfellum einungis sú að
taka afstöðu til þess hvort ákært
verði í málunum eða ekki. Eins
og kemur fram að ofan þá er nið-
urstaða embættisins oftast sú að
ákæra í málunum.
thordur@frettabladid.is
Skattalagabrot
Fjöldi mála
Á leið til sérstaks saksóknara 50+
Komin til sérstaks saksóknara 66
Búið að gefa út ákæru 23
Búið að fella niður 4
Komin dómsniðurstaða 11
Sakfellingar 11
18,7
Kw/h
Tugir mála á leið til
sérstaks saksóknara
Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til við-
bótar eru á leiðinni. Sakfelling hefur fengist í öllum málum sem lokið hefur
með dómi. Stærstu málin sem rannsökuð eru snúast um milljarða undandrátt.
ÁKÆRUVALD Ólíkt Fjármálaeftirlitinu þá skilar embætti skattrannsóknarstjóra full-
unninni sakamálarannsókn til sérstaks saksóknara. Skattarannsóknarstjóri hefur hins
vegar ekki ákæruvald og því þarf sérstakur saksóknari að sjá um þann hluta máls-
meðferðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÓLAFUR ÞÓR
HAUKSSON
VÍSINDI Karlkyns bavíanar sem
eru í ráðandi stöðu í sínum hóp
verða sjaldnar veikir og sár
þeirra læknast hraðar en sár
annarra bavíana, samkvæmt
umfangsmikilli rannsókn vís-
indamanna á heilsufari þessarar
apategundar.
Fyrir fram töldu rannsakendur
að álagið sem fylgdi því að stýra
apahópnum hefði slæm áhrif á
heilsu karlanna, en raunin varð
önnur. Raunar hefur lengi verið
deilt um hvort sé verra fyrir
heilsuna, álagið sem fylgir því að
vera í ráðandi stöðu, eða álag-
ið sem fylgir því að vera undir-
málsapi. Niðurstaðan er sú að það
er betra að vera á toppnum, að
minnsta kosti fyrir apa. - bj
Rannsaka áhrif góðrar stöðu:
Læknast hraðar
og síður veikir
APAR Eldri bavíanar eru oft heilsuhraust-
ari en þeir yngri ef þeir eldri eru í betri
stöðu innan apahópsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GRÓÐUR Vísbendingar eru um að
aukinn trjágróður og byggð innan
borgarmarka Reykjavíkur hafi
dregið úr vindi svo nemi allt að 0,1
metra á sek-
úndu á hverj-
um áratug frá
því um 1950.
Þetta kemur
fram í grein
sem Einar
Sveinbjörns-
son veður-
fræðingur
ritar í fyrsta
tölublað
Skógrækt-
arritsins á
árinu sem nú
er komið út.
Í annarri
grein fjalla
svo skógfræð-
ingarnir Arnór
Snorrason og Gústaf Jarl Viðars-
son um rannsóknir sínar á kolefn-
isbindingu trjágróðurs í þéttbýli
Reykjavíkur. Niðurstöður þeirra
sýna að kolefnisbinding trjáa á
þessu svæði nemi um 5.000 til
7.600 tonnum af koltvísýringi á ári
hverju. - óká
Tré gera gagn í Reykjavík:
Hefta vind og
binda kolefni
FYRSTA BLAÐIÐ
Í ÁR Í Skógræktar-
ritinu er að finna
greinar um allt sem
viðkemur skóg- og
trjárækt.
Banna reykingar við störf
Fjögur sveitarfélag í Danmörku hafa
bannað reykingar á vinnustað. Tíu
önnur sveitarfélög munu undirbúa
sams konar reglur.
DANMÖRK
Burt með plastpokana
Borgarstjórn Los Angeles í Kaliforníu
hefur ákveðið að notkun plastpoka
verði með öllu bönnuð í borginni.
Innan eins árs verða þurfa allir
verslunarmenn að hafa skipt út
plastpokunum fyrir umhverfisvæna
bréfpoka.
BANDARÍKIN
DANMÖRK Blaðamaður í Kaup-
mannahöfn, sem skrifaði um fíkni-
efnaviðskipti, hefur verið dæmdur
í sex ára fangelsi fyrir að hafa
smyglað fjórum kílóum af kókaíni
frá Perú til Danmerkur.
Blaðamaðurinn, Jacob Sejer
Petersen, skrifaði fyrir Ekstra
Bladet og fjallaði hann þar auk
annars um skort á lögregluaðgerð-
um gegn þeim sem seldu fíkniefni
úti á götu á Vesterbro.
Fleiri voru ákærðir vegna fíkni-
efnasmyglsins en þeir hafa enn
ekki verið dæmdir. - ibs
Sex ára fangelsisdómur:
Blaðamaður í
kókaínsmygli
NOREGUR Anders Behring Breivik
mun ekki áfrýja fangelsisdómi
yfir sér ef hann verður úrskurð-
aður sakhæfur. Þetta sagði hann
við lok réttarhaldanna yfir sér í
Ósló í gær.
Breivik leggur áherslu á að
hann verði metinn sakhæfur.
Tvisvar hefur verið lagt mat á
andlegt ástand hans, en sérfræð-
ingar komust að mismunandi
niðurstöðum. Verði hann metinn
sakhæfur bíður hans fangelsi, en
sé hann ósakhæfur verður hann
vistaður á geðdeild. - þeb
Breivik vill vera sakhæfur:
Ætlar ekki að
áfrýja dómi
Fylgdist þú með undankeppnum
Eurovision-söngvakeppninnar?
Já 66,4%
Nei 33,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hyggst þú spila golf í sumar?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN
FERÐAÞJÓNUSTA Wow air hefur kært
til Samkeppniseftirlitsins synjun
IGS, dótturfélags Icelandair, á því
að veita Wow air þjónustu við flug-
afgreiðslu á Keflavíkurflugvelli.
Vallarvinir, annað fyrirtæki sem
annast flugafgreiðslu í Keflavík,
hefur einnig hafnað því að þjónusta
Wow air.
„Á Keflavíkurflugvelli ríkir
fákeppni er varðar flugafgreiðslu.
Vegna yfirburðastöðu IGS, dóttur-
félags Icelandair Group og syst-
urfélags Icelandair, er mjög erf-
itt fyrir nýja aðila að komast inn
á þennan markað,“ segir Baldur
Oddur Baldursson, forstjóri Wow
air. „Fákeppnin leiðir til hærri flug-
afgreiðslukostnaðar til ótengdra
félaga og hækkar farmiðaverð til og
frá Íslandi, sem er með því hæsta
sem við höfum séð.
Wow air hafði samið við Keflavík
Flight Services um þjónustu í Kefla-
vík. „Við vildum hins vegar vera
með varaleið og óskuðum nýlega
eftir tilboði frá IGS. IGS synjaði
okkur um viðskipti. Við teljum að
sú synjun byggi á ómálefnalegum
forsendum, hún feli í sér misnotk-
un IGS á markaðsráðandi stöðu sem
fari gegn ákvæðum samkeppislaga.
Þessi háttsemi hefur verið borin
undir Samkeppniseftirlitið og málið
er í hefðbundnum farvegi hjá stjórn-
valdinu,“ segir Baldur. - óká
Tvö þjónustufyrirtæki á Keflavíkurflugvelli hafa hafnað viðskiptum við Wow air:
Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun
„Á Keflavíkur-
flugvelli ríkir fá-
keppni er varðar
flugafgreiðslu.“
BALDUR ODDUR
BALDURSSON