Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.05.2012, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 25.05.2012, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 25. maí 2012 19 Fyrir seinustu alþingiskosning-ar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónvarpi. Sum, til dæmis Borg- arahreyfingin, vildu taka boðinu en þar sem rótgrónu flokkarnir höfðu ekki áhuga var hætt við allt. Ný framboð fengu því ekki að kynna sig í sjónvarpi því það hentaði ekki þeim sem fyrir voru. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu benti á þennan galla og taldi að reglurnar um ókeyp- is sjónvarpstíma ættu heima í lögum. Menntamálaráðuneytið ákvað að bregðast við þessum ábendingum með því að leggja til að … bannað yrði að birta skoðanakannanir stuttu fyrir kosningar. Nokkuð sem ÖSE lagði ekki til og fátt bendir til að gagn- ist nýjum framboðum nokkuð. „Útlendingurinn sagði …“ Það virðist tíska að réttlæta vondar, íþyngjandi breyting- ar með villandi tilvísunum til útlanda. Í grein um ný fjölmiðla- lög fyrir viku síðan gagnrýndi ég m.a. að til stæði að banna útlend- ingum utan EES að vera ábyrgð- armenn fjölmiðla. Viðbrögð ráðu- neytisins við þeirri gagnrýni mátti lesa í Fréttablaðinu sein- asta miðvikudag: „Í svari ráðu- neytisins um hvort það stangist á við ákvæði stjórnarskrár um atvinnu- og tjáningarfrelsi segir það mat framkvæmdarstjórnar ESB að ákvæði gildandi laga, um að ábyrgðarmaðurinn skuli hafa heimilisfesti hér á landi og vera lögráða, stangist á við staðfestu- rétt, sem er hluti EES-samnings- ins. Útvíkkunin til EES-svæðisins sé í takti við EES-rétt um stað- festurétt. Katrín segir einfaldlega verið að innleiða EES-reglur, til dæmis hljóð- og myndskipunar- tilskipunina. Þetta sé almenna reglan innan EES-svæðisins. Borgarar utan þess svæðis geti sótt um undanþágu frá banninu, líkt og þegar kemur að landa- kaupum.“ Hér er ráðherrann að blása sápukúlur. Ég efast ekki um að það sé gott mál, og í takt við EES samninginn, að leyfa Slóvena sem býr í Danmörku að reka fjölmiðil á Íslandi. En það er látið í veðri vaka að ef við opnum þær dyr þá verðum við, skv. EES, að loka á útlendinga utan EES. Mér sýnist það vera bull. Það er stundum vandamál hvað opinber umræða á Íslandi á það til að fara í „hann sagði, hún sagði“ ham án þess að auð- tjekkanleg álitaefni séu leidd til lykta. Ég held því til dæmis fram að EES neyði okkur EKKI til að banna Bandaríkjamönnum að reka og ábyrgjast blöð á Íslandi. Ef ráðherra er á öðru máli þá verður hún að vísa okkur á þá evrópsku lagagrein sem krefur okkur um slíkt. Að sama skapi, ef ráðherra heldur því að það sé „alvanalegt“ að Bandaríkja- menn megi ekki ábyrgjast fjöl- miðla í Evrópu, þá hlýtur hún að geta afhent okkur lista með öllum löndum þar sem þannig bönn eru við lýði, ásamt tilvitnunum í laga- greinar. Ég er hræddur um að það gæti reynst erfitt. Undanþága frá mannréttindum Sú fullyrðing ráðherra að þetta sé eins og að banna útlending- um að eiga jarðir og að menn geti bara sótt um undanþágu er stórmerkileg. Í fyrsta lagi gerir frumvarpið ekki ráð fyrir nein- um undanþágum við ríkisfangs- greininni, svo erfitt er að sjá hvernig þær ætti að veita. Í öðru lagi þá tryggir stjórnarskráin almennt mannréttindi allra, allra sem dvelja á Íslandi, ekki bara Íslendinga. Í eignarréttarákvæð- inu er þó sérstaklega tekið fram að „með lögum [megi] takmarka rétt erlendra aðila til að eiga fast- eignaréttindi eða hlut í atvinnu- fyrirtæki hér á landi“. Engar sambærilegar heimildir til að takmarka málfrelsi eða atvinnu- frelsi útlendinga er að finna í stjórnarskránni. Ráðherra vill sem sagt hefta málfrelsi án heimildar í stjórnar- skrá og veita svo undanþágur frá því banni án heimildar í lögum. Hvorugt gengur upp. Og að allri lögfræðinni slepptri þá þykir mér merkilegt ef menn þurfa að sækja um undanþágu til að njóta málfrelsis og reka eigin vefsíður. Hugsað í bönnum Útlendingabannið og skoðana- kannanabannið eru hvort tveggja skaðleg, hundóþörf og lagalega hæpin bönn sem reynt er að koma inn í löggjöf um fjölmiðla með röngum fullyrðingum um að ein- hver stofnun erlendis hafi mælst til þess. Þessi skapandi nálgun menntamálaráðherra á heimilda- notkun gefur tilefni til að skoða gaumgæfilega hvaða fleiri hörm- ungar hafi ratað inn í íslenska löggjöf að undanförnu undir því falska yfirskyni að um ábend- ingar eða tilskipanir erlendis frá væri að ræða. Umsókn um málfrelsi Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé og án alvöru lausna horfi ég fram á gjaldþrot fjölskyldunnar, þrátt fyrir að ég sé í fastri vinnu og hafi borgað alla mína reikninga. Þetta er ekki sanngjörn staða og reiði er fullkomlega eðlileg og rétt- mæt. Þess vegna er svo freistandi að halda í hana. En hversu lengi? Mér finnst reiðin og biturleikinn í samfélaginu fara vaxandi. Reiðin getur stundum virk- að sem drifkraftur. Hún þjappar þeim saman sem bera sömu til- finningar og vekur samkennd. Búsáhaldabyltingin var t.d sprott- in upp úr slíkri samkennd. Okkur var nóg boðið og við stóðum upp og börðum í borðið. En hvert fór allt fólkið sem var á Austurvelli? Mörgum finnst þögnin í dag þrúgandi. Er búið að svæfa fólk, er úthaldið þrotið eða eru allir svona sáttir við sinn hlut? Reiðin virkar svipað og orku- drykkur. Hún vekur okkur og kemur okkur úr sporunum. En þessi orka varir stutt og allt í einu erum við andlaus og tóm og við setjum traust okkar á hina íslensku þjóðtrú um að „þetta reddist“. Reiðin er ekki góður grunnur til uppbyggingar. Hún þurrkar okkur upp og hefndarþorstinn verður sífellt sterkari. Þeim þorsta verður aðeins svalað með hugarfarsbreyt- ingu. Í þeirri hugarfarsbreytingu felst m.a. fyrirgefning. En að fyrirgefa snýst samt ekki um að samþykkja það sem gert hefur verið á manns hlut. Að fyr- irgefa er ekki það sama og að gef- ast upp. Að fyrirgefa snýst um að slíta böndin sem halda okkur föst- um svo við getum haldið áfram að stefna að því marki sem okkur var ætlað. Læra af liðnum atburð- um en hætta að láta þá stjórna okkur. Ef við viljum alvöru uppbygg- ingu í íslensku samfélagi þarf nýja hugsun. Hugsun sem byggir upp en rífur ekki niður. Hugsun sem sameinar en sundrar ekki. Hugsun sem byggir á gjafmildi en ekki græðgi. Hugsun sem berst fyrir fólk en ekki fyrir pólitískar stefnur. Hugsun sem ber virðingu fyrir öllum, líka þeim sem hafa aðrar skoðanir en við sjálf og eiga minni eða meiri pening. Hugsun sem byggir á samstöðu. Það þarf byltingu í íslensku samfélagi. En byltingin þarf ekki að vera blóðug. Henni þurfa ekki að fylgja tárvot augu á reykmett- uðum Austurvelli. Henni þarf ekki að fylgja grjótkast í lög- reglumenn sem eru að berjast við sama kerfi og allir aðrir. Ég get ekki sætt mig við að „þetta reddist“. Ekki þegar ég veit að það er í mínu valdi að byggja þá framtíð sem ég treysti fyrir börnunum mínum. Höldum áfram að berjast fyrir réttlæti. Höldum áfram að berjast fyrir framtíð okkar og næstu kyn- slóða á okkar frábæra landi. En í þessari baráttu skulum við koma fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur. Það er þess virði. Að lokum. Ein og sér er þessi grein bara innantóm orð, en sam- staða um innihald hennar getur breytt miklu. Boltinn er hjá þér. Þegar tunnurnar þagna Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í DAG Svar við bréfi Sighvats Í stuttri grein Sighvats Björg-vinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fyrir svar mitt við grein hans í sama blaði mánudaginn 21. maí ber hann enn fram nokkr- ar spurningar sem sjálfsagt er að svara. 1. Hefur verið vel og nákvæm- lega skilgreint hvaða þjónustu á að veita, hvað til hennar þarf af húsnæði, sérmenntuðu starfs- liði, tækjum og búnaði? Hvað kostar að kaupa og hvað kostar að reka? Hvar er þessar upplýs- ingar að finna? Svar: Já, að sjálfsögðu hefur verið gengið út frá skilgreindri þjónustu sem miðast í stórum dráttum við þá stöðu sem Land- spítali hefur nú þegar sem sérhæft sjúkrahús fyrir allt landið og nærþjónusta fyrir höfuðborgarsvæðið auk þess að vera háskólasjúkrahús lands- ins. Umfangsmikil þarfagrein- ingarvinna fór fram í upphafi. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun legurúma frá því sem var þegar þessi vinna fór fram árið 2006 þrátt fyrir gríðarlega fjölgun í þeim aldurshópum sem mest þurfa á sjúkrahúsþjónustu að halda. Um allt þetta má lesa nánar í ítarlegum upplýsingum um verkefnið á vef þess, www. nyrlandspitali.is. 2. Landspítali er og hefur verið háskólasjúkrahús. Hár- toganir um skilgreiningu á því breyta engu um bygginguna sem slíka. 3. Varðandi stefnumörkun um sjúkrahúsþjónustu á lands- vísu verður að beina spurning- um til yfirvalda heilbrigðismála en benda má á að þáttur minnstu landsbyggðarsjúkrahúsanna í bráðaþjónustu er ekki meiri en svo að hann er aðeins brot af því sem fylgir breyttri aldursdreif- ingu á næstu tveim áratugunum. 4. Að lokum verð ég að viður- kenna að ég hef ekki þekkingu til að tjá mig um hvort sjúkra- húsin sem Sighvatur telur upp henti vel sem hjúkrunarheim- ili aldraðra en mér sýnist flest hjúkrunarheimili stefna í þá átt að þar verði að mestu eða ein- göngu boðið upp á einbýli og ýmsum sérþörfum sinnt sem ekki er gert ráð fyrir í þessum húsum. Enn og aftur vísast á velferðarráðuneytið. Sighvatur er velkominn hve- nær sem er á fund okkar sem vinnum að undirbúningi nýs Landspítala og gjarnan að hann taki með sér þá sem áhuga hafa á að kynna sér málefnið nánar. Nýr Landspítali Jóhannes Gunnarsson læknir Samfélagsmál Birgir Örn Guðjónsson eiginmaður, faðir og formaður SAMSTÖÐU í Kraganum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.