Fréttablaðið - 25.05.2012, Page 56
25. maí 2012 FÖSTUDAGUR40
sport@frettabladid.is
HELENA SVERRISDÓTTIR skoraði 20 stig og fór fyrir þriggja stiga skotsýningu íslenska kvennalandsliðsins
í 27 stiga sigri á Noregi í gær, 82-55, í fyrsta leiknum á Norðurlandamótinu í Noregi. Íslensku stelpurnar skoruðu
13 þriggja stiga körfur í leiknum sem er það mesta í A-landsleik kvenna frá upphafi. Liðið mætir bæði Svíum (kl.
09.00) og Dönum (17.00) í dag.
Allt um leiki
gærkvöldsins
er að fi nna á
0-1 Kristinn Ingi Halldórsson (26.), 0-2 Jón
Gunnar Eysteinsson (71.)
Skot (á mark): 4-10 (2-6)
Varin skot: Sigmar 4 - Ögmundur 2
BREIÐABLIK (4-3-3): Sigmar Ingi Sigurðarson 4 -
Þórður Steinar Hreiðarsson 4 (75., Elfar Árni Aðal-
steinsson -),Renee Troost 5, Sverrir Ingi Ingason
5, Kristinn Jónsson 6 - Finnur Orri Margeirsson 6,
Jökull I Elísabetarson 5, Rafn Andri Haraldsson 5
(62., Haukur Baldvinsson 5) - Andri Rafn Yeoman
5, Árni Vilhjálmsson 5, Arnar Már Björgvinsson 6
(62. , Guðmundur Pétursson 5).
FRAM (4-5-1): Ögmundur Kristinsson 7 - Alan
Lowing 6, Kristján Hauksson 7, Hlynur Atli Magn-
ússon 7, Sam Tillen 8* - Jón Gunnar Eysteinsson
7, Halldór Hermann Jónsson 6, Samuel Hewson 6
- Almarr Ormarsson 7, Kristinn Ingi Halldórsson 7,
Steven Lennon 6. * MAÐUR LEIKSINS
Kópavogsv., áhorf.: 820 Vilhjálmur Þórarinss. (7)
0-2
1-0 Jóhann Birnir Guðmundsson (64.)
Skot (á mark): 5-11 (1-4)
Varin skot: Ómar 4 - Abel 0
KEFLAVÍK (4-3-3): Ómar Jóhannsson 7, Grétar Atli
Grétarsson 7, Einar Orri Einarsson -(22., Magnús
Þór Magnússon 7), Haraldur Guðmundsson 8*,
Jóhann Ragnar Benediktsson 7, Frans Elvarsson
6, Denis Selimovic 6, Arnór Ingvi Traustason 6,
Bojan Stefán Ljubicic 6 (78., Hilmar Geir Eiðsson
-), Jóhann Birnir Guðmundsson 7, Guðmundur
Steinarsson 5 (75., Sigurbergur Elísson -)
ÍBV (4-5-1): Abel Dhaira 3, Arnór Eyvar Ólafsson 5,
Brynjar Gauti Guðjónsson 5, Rasmus Christiansen
6, Matt Garner 5, George Baldock 5, Tony Mawa-
ejje 5, George Baldock 5, Ian Jeffs 5 (73., Christian
Steen Olsen -), Aaron Spear 5 (83., Ragnar Leós-
son -), Víðir Þorvarðarson 6 * MAÐUR LEIKSINS
Nettóvöllur, áhorf.: 930 Garðar Hinriksson (6)
1-0
1-0 Jón Daði Böðvarsson (14.), 1-1 Matthías
Örn Friðriksson (27.), 2-1 Ólafur Karl Finsen
(47.), 3-1 Stefán Ragnar Guðlaugsson (75.),
3-2 Alexander Magnússon (87.), 3-3 Óli
Baldur Bjarnason (90.+2)
Skot (á mark): 7-10 (4-4)
Varin skot: Ismet 1 - Óskar 0
SELFOSS (4-5-1): Ismet Duracak 5 - Ivar Skjerve
6, Stefán Ragnar Guðlaugsson 7, Endre Ove
Brenne 6, Andri Freyr Björnsson 5 - Ólafur Karl
Finsen 5 (71., Joseph Tillen), Jon Andre Royrane
6 (80., Tómas Leifsson), Babacar Sarr 7, Robert
Johann Sandnes 7, Jón Daði Böðvarsson 7 - Viðar
Örn Kjartansson 6 (88., Abdoulaye Ndiaye)
GRINDAVÍK (5-4-1): Óskar Pétursson 5 - Matthías
Örn Friðriksson 5, Loic Mbang Ondo 5 (66.,
Scott Ramsey 7), Ólafur Örn Bjarnason 6, Mikael
Eklund 5, Ray Anthony Jónsson 6 - Gavin Morr-
ison 6 (80 Daníel Leó Grétarsson), *Alexander
Magnússon 8, Alex Freyr Hilmarsson (72., Óli
Baldur Bjarnason) 5, Marko Valdimar Stefánsson
6 - Tomi Ameobi 6
* MAÐUR LEIKSINS
Selfossvöllur, áhorf.: 534 Magnús Þórisson (6)
3-3
1-0 Garðar Jóhannsson, víti (45.+1), 1-1
Garðar Gunnlaugsson (73.)
Skot (á mark): 25-9 (4-2)
Varin skot: Ingvar 1 - Páll Gísli 3
STJARNAN (4-3-3): Ingvar Jónsson 5 - Jóhann
Laxdal 6, Baldvin Sturluson 6 (72., Snorri Páll
Blöndal -), Alexander Scholz 7*, Hörður Árnason
5 - Atli Jóhannsson 5 (75., Gunnar Örn Jónsson -),
Daníel Laxdal 6, Mads Laudrup 6- Kennie Chopart
6, Halldór Orri Björnsson 6, Garðar Jóhannsson 7
ÍA (4-5-1): B Árni Snær Ólafsson 6 - Guðmundur
Böðvar Guðjónsson 4, Ármann Smári Björnsson
7, Kári Ársælsson 6, Einar Logi Einarsson 6 - Jó-
hannes Karl Guðjónsson 6, Mark Doninger 5,
Arnar Már Guðjónsson 4 - Jón Vilhelm Ákason 4
(62., Garðar Bergmann Gunnlaugsson 7), Ólafur
Valur Valdimarsson 4 (46., Dean Edward Martin
7), Gary Martin 4 (89., Andri Adolphsson -)
* MAÐUR LEIKSINS
Stjörnuvöllur, áhorf.: 1.237 Guðm. Ársæll Guðm. (8)
1-1
1-0 Árni Freyr Guðnason (13.), 2-0 Árni Freyr
Guðnason (44.), 2-1 Matthías Guðmunds-
son (45.), 3-1 Davíð Þór Ásbjörnsson (85.)
Skot (á mark): 12-12 (5-7)
Varin skot: Bjarni 6 - Sindri 2
FYLKIR (4-3-3): B Bjarni Þórður Halldórsson 7 –
Andri Þór Jónsson 6, David Elebert 6, Hjörtur Her-
mansson 7 (53., Kjartan Ágúst Breiðdal 6), Ásgeir
Eyþórsson 6 - Finnur Ólafsson 7 (75., Oddur Ingi
Guðmundsson), Davíð Þór Ásbjörnsson 7, Ásgeir
Börkur Ásgeirsson 6 - Ingimundur Níels Óskars-
son 6 , Árni Freyr Guðnason 7* (83., Björgólfur
Takefusa), Tómas Þorsteinsson 6.
VALUR (4-5-1): B Sindri Snær Jensson 5 - Andri
Fannar Stefánsson 2, Atli Sveinn Þórarinsson 5,
Halldór Kristinn Halldórsson 4 , Úlfar Hrafn Páls-
son 4 - Guðjón Pétur Lýðsson 4(57., Hafsteinn
Briem 5), Haukur Páll Sigurðsson 5, Rúnar Már
Sigurjónsson 6 - Ásgeir Þór Ingólfsson 5 , Hörður
Sveinsson 5 (69., Atli Heimisson 4), Matthías Guð-
mundsson 6.
* MAÐUR LEIKSINS
Fylkisvöllur, áhorf.: ? Kristinn Jakobsson (8)
3-1
STAÐAN
ÍA 5 4 1 0 9-5 13
KR 5 3 1 1 10-7 10
FH 5 3 1 1 6-3 10
Stjarnan 5 2 3 0 10-6 9
Keflavík 5 2 1 2 8-5 7
Selfoss 5 2 1 2 8-8 7
Fylkir 5 1 3 1 7-6 6
Fram 5 2 0 3 6-7 6
Valur 5 2 0 3 5-6 6
Breiðablik 5 1 1 3 1-6 4
ÍBV 5 0 2 3 4-7 2
Grindavík 5 0 2 3 8-16 2
NÆSTU LEIKIR
ÍBV - Stjarnan 29. maí kl. 18.00
Selfoss - Breiðablik 31. maí kl. 19.15
Valur - Keflavík 31. maí kl. 19.15
FH - Fylkir 2. júní kl. 14.00
Fram - KR 2. júní kl. 16.00
Grindavík - ÍA 2. júní kl. 16.00
PEPSI-DEILDIN
GOLF „Það verður nóg að gera í
sumar og þetta verður spennandi
ár,“ sagði Birgir Leifur Hafþórs-
son atvinnukylfingur úr GKG en
ætlar að vera með á fyrsta mótinu
á Eimskipsmótaröðinni sem hefst
í dag á Hólmsvelli í Leiru.
Birgir, sem hefur fjórum sinn-
um fagnað sigri á Íslandsmótinu í
höggleik mun leggja höfuðáherslu
á mótin sem honum standa til boða
á áskorendamótaröð Evrópu, sem
er næst sterkasta atvinnumótaröð-
in í Evrópu.
„Með því að skrá mig í mótið er
ég að koma mér í keppniseinbeit-
inguna sem hefur aðeins skort upp
á. Það verður markmiðið að fara í
Keflavík og halda einbeitingunni
þrátt fyrir að veðrið verði kannski
brjálað,“ sagði Birgir Leifur Haf-
þórsson.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
úr Keili í Hafnarfirði er á meðal
bestu kylfinga landsins og hún
byrjaði keppnistímabilið með
miklum látum um s.l. helgi á
unglingamótaröð Arion banka.
Guðrún, sem er 18 ára, setti nýtt
vallarmet á Garðavelli á Akranesi
þar sem hún lék á 66 höggum eða
6 höggum undir pari. Guðrún er til
alls líkleg á Eimskipsmótaröðinni í
sumar en hún er á meðal keppenda
á Hólmsvelli í Leiru um helgina.
„Ég er með skýr markmið fyrir
sumarið en ég ætla að halda þeim
fyrir mig. Ég ætla að reyna að
halda þeirri forgjöf sem ég er með
í dag. Það hefur verið markmið að
komast niður fyrir 0 í forgjöf. Það
gekk nánast allt upp á hringnum á
Garðavelli þar sem ég setti vallar-
metið,“ sagði Guðrún Brá en hún
sigraði á fyrsta stigamóti ársins í
fyrra.
Alls eru 113 kylfingar skráð-
ir til leiks í karlaflokknum og 26
í kvennaflokknum. Sú nýbreytni
verður á Eimskipsmótaröðinni í
sumar að öll höggleiksmótin verða
54 holur og verður keppendum
fækkað að loknum öðrum keppn-
isdegi. Þessi breyting er gerð til
þess að mótin telji til stiga á heims-
lista áhugakylfinga. - seth
Eimskipsmótaröðin í golfi hefst í dag – Guðrún Brá Björgvinsdóttir er líkleg til afreka í kvennaflokki:
Held markmiðum sumarsins fyrir sjálfa mig
GUÐRÚN BRÁ Verður væntanlega öflug á mótum sumarsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SUND Hrafnhildur Lúthersdóttir
tryggði sér í gær sæti í úrslita-
sundinu í 200 metra bringusundi
á EM í 50 metra laug í Debrecen í
Ungverjalandi.
Hrafnhildur synti á 2:28,99
mínútum og varð áttunda inn.
Hún var aðeins frá Íslandsmeti
sínu (2:28,87 mín.) og þarf að
bæta sig um þrjár og hálfa sek-
úndu í úrslitasundinu í dag til að
komast á ÓL í London. - óój
Hrafnhildur Lúthersdóttir:
Í úrslit á EM
HRAFNHILDUR LÚTHERSDÓTTIR Stendur
sig vel. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Fimm leikir fóru fram í
Pepsi-deild karla. Stórleikur gær-
kvöldsins var í Garðabæ þar sem
Stjarnan tók á móti taplausum
Skagamönnum.
Stjörnumenn gengu svekktir af
velli eftir 1-1 jafntefli gegn topp-
liði Skagamanna í Garðabænum
í gærkvöldi. Stjarnan leiddi verð-
skuldað í hálfleik 1-0 en enn á ný
reyndust Skagamenn sterkir í síð-
ari hálfleik. Varamaðurinn Garð-
ar Gunnlaugsson reyndist hetja
þeirra gulklæddu annan leikinn í
röð og tryggði gestunum stig.
„Ég tel okkur vera það lið í
deildinni sem er í besta forminu.
Við höldum áfram og játum okkur
aldrei sigraða. Enginn reiknaði
með þessu gengi okkar en við
höfum lagt hart að okkur,“ sagði
Englendingurinn Gary Martin sem
átti klúður leiksins. Hann skaut þá
framhjá frammi fyrir opnu marki
og átti von á bröndurum úr öllum
áttum í rútunni á leiðinni heim á
Skaga.
Framarar unnu þægilegan sigur
á Breiðablik. Breiðablik hefur
aðeins náð að skora eitt mark það
sem af er mótsins og sóknarleikur
þeirra virkilega bragðdaufur.
„Við vorum virkilega þéttir til
baka í kvöld og þeir fengu fá færi
í leiknum,“ sagði Kristján Hauks-
son, fyrirliði Fram, eftir sigurinn
í gær.
„Hópurinn var ekkert farinn að
örvænta eftir slaka byrjun á tíma-
bilinu. Við vitum einfaldlega að
liðið er mun betra í ár en á síðasta
tímabili. Fram á eftir að gera góða
hluti í sumar.“
Fylkir sigraði Val í fjörugum
leik í gærkvöld. Fylkir byrjaði
leikinn af krafti og komst yfir með
mörkum frá Árna Frey sem fóru
langleiðina með að vinna leikinn.
Markaskorarinn Árni var kátur
í leikslok. „Þetta var það sem
við þurftum. Við höfum oft spil-
að betur en loksins kom sigurinn
og ekki var verra að setja 2 mörk
sjálfur.“
Keflvíkingar unnu í gærkvöld
óverðskuldaðan sigur á Eyjamönn-
um. Leikurinn var tilþrifalítill en
Keflvíkingum tókst að setja bolt-
ann í markið á 68. mínútu.
Þar var að verki Jóhann Birn-
ir Guðmundsson eftir hræðileg
mistök Abel Dhaira í marki Eyja-
manna. Nokkuð fjaraði undan
leiknum eftir markið en Hilmar
Geir Eiðsson fékk svo að líta rauða
spjaldið undir leikslok. Magnús
Gylfason, þjálfari ÍBV var ómyrk-
ur í máli í leikslok og sagði að
árangur liðsins í upphafi móts
væri ekki ásættanlegur.
,,Þetta er óásættanlegur árang-
ur hjá okkur í fyrstu umferðunum.
Við ætluðum okkur meiri hluti en
menn verða bara að horfa í eigin
barm. Við þurfum bara að undir-
búa okkur fyrir baráttu á öðrum
enda.“
Grindvíkingar komu til baka og
tryggðu sér 3-3 jafntefli á Selfossi
með því að skora tvö mörk í lok
leiksins í leik liðanna í 5. umferð
Pepsi-deild karla. Óli Baldur
Bjarnason skoraði jöfnunarmark-
ið í uppbótartíma en Selfyssing-
urinn Jón Daði Böðvarsson skaut
í stöngina rétt áður en leikurinn
var flautaður af.
Það stefndi allt í sigur Selfoss og
þar með hundraðasta sigur þjálfar-
ans Loga Ólafssonar í efstu deild
þegar skammt var eftir af leiknum
en Alexander Magnússon minnk-
aði muninn í 3-2 á 87. mínútu áður
en Óli Baldur jafnaði á annarri
mínútu í uppbótartíma.
- ktd, sáp, kós, shf, óój
Skagamenn enn taplausir
ÍA tapaði sínum fyrstu stigum í Pepsi-deildinni í gærkvöld en er samt enn á
toppnum. Fylkir vann sinn fyrsta leik í sumar og mikil dramatík var á Selfossi
þar sem botnlið Grindavíkur nældi í stig í lok leiksins.
BJARGVÆTTURINN Garðar skorar hér fyrir Skagamenn og tryggir þeim stig. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL