Fréttablaðið - 26.05.2012, Qupperneq 6
26. maí 2012 LAUGARDAGUR6
IÐNAÐUR Formlegar viðræður um fjár mögnun
Hverahlíðarvirkjunar hefjast í næstu
viku. Að sögn Ingvars Stefánssonar,
fjármálastjóra Orkuveitunnar, hafa óform-
legir fundir átt sér stað frá því stjórn Orku-
veitunnar veitti í lok apríl umboð til að hefja
við ræðurnar.
Ramminn í mögulegu eignarhaldi virkjun-
arinnar hefur legið fyrir í nokkurn tíma, en
stefnt er að svokallaðri verkefnafjármögnun
með aðkomu lífeyrissjóða. Gert er ráð fyrir
að Orkuveitan leggi til félags um virkjunina
þá fjárfestingu sem þegar hefur verið lagt
í vegna hennar. Virkjunin er forsenda þess
að Orkuveitan fái staðið við orkusamninga
vegna álversins í Helguvík.
„Uppleggið er þannig að engin áhætta
verði fólgin í verkefninu fyrir Orkuveituna
eða eigendur hennar,“ segir Ingvar. Ósamið
sé hins vegar um allar stærðir, svo sem
varðandi arðsemi og kostnað.
„Við gefum okkur ákveðinn tíma í samn-
ingslotu núna, svona fram á mitt sumar,“
segir hann, en gerir um leið ráð fyrir því
að heldur lengri tíma taki að koma á endan-
legum samningi.
„Ég reikna með að þetta geti tekið að
minnsta kosti hálft ár,“ segir hann.
Áður hefur komið fram að stjórn Orku-
veitunnar geri ráð fyrir því að fullgerð
virkjun gangi til baka til Orkuveitunnar í
lok samningstímans. - óká
Óformlegir fundir hafa átt sér stað fá apríllokum vegna Hverahlíðarvirkjunar:
Viðræður um fjármögnun hefjast í næstu viku
Í HVERAHLÍÐ Orkuveitan hefur þegar lagt í nokkurn
kostnað við tilraunaboranir á Hellisheiði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bygging múslima stækkar
Skipulagsráð hefur samþykkt breytta
skipulagslýsingu fyrir lóð undir
bæna hús Félags múslima í Sogamýri
þannig að félagið geti reist allt að
800 fermetra mosku en ekki aðeins
400 fermetra eins og gert var ráð
fyrir. Í ljós kom að fyrri lýsingin
stangaðist á við þarfagreiningu vegna
byggingarinnar.
SKIPULAGSMÁL
VIÐSKIPTI Ísland er í sextánda sæti
á heimsvísu í nýrri skýrslu World
Trade Forum sem metur hve opin
ríki eru fyrir alþjóðaviðskiptum.
Fjögur efstu sætin á listanum
skipa Singapúr, Hong Kong,
Danmörk og Svíþjóð, en röð
efstu ríkja er óbreytt frá síðustu
skýrslu sem gerð var 2010. Ísland
fellur niður um fimm sæti.
Í sætunum fyrir neðan Ísland
eru Ástralía og Japan.
Helstu vandkvæði Íslands eru
talin stafa af landfræðilegri legu
sem gerir flutninga tímafreka
og dýra, en einnig verndartollar.
Meðal helstu kosta eru til dæmis
öryggi og góð fjarskipti. - þj
World Trade Forum:
Ísland í 16. sæti
í viðskiptum
SJÓFLUTNINGAR Farskip eru ein helsta
leið varnings til og frá landinu.
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
VI
T
59
90
8
05
/1
2
VITA er lífið
Algarve
Flugsæti 29. maí - 5. júní
Verð frá 49.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
fyrir flug fram og til baka með flugvallarsköttum.
* Verð án Vildarpunkta: 59.900 kr.
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
Þú getur notað
Vildarpunktana
hjá okkur
Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni
um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum
þegar bókað er á vefnum. Auk þess eru veittir
2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í
leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt
fleiri tækifæri til að njóta lífsins.
Portúgal
KÖNNUN Rúmur helmingur kjós-
enda vill að haldin verði þjóðarat-
kvæðagreiðsla á næstunni til að
ákveða hvort halda eigi aðildar-
viðræðum við Evrópusambandið
(ESB) áfram. Þetta er niðurstaða
skoðanakönnunar Fréttablaðsins
og Stöðvar 2.
Alls sögðust 57,9 prósent þeirra
sem afstöðu tóku til spurning-
arinnar vilja málið í þjóðarat-
kvæði en 42,1 prósent vildu það
ekki. Tillaga um að halda slíka
atkvæðagreiðslu var felld á
Alþingi á fimmtudag.
Minnihluti stuðningsmanna
stjórnarflokkanna vill málið í
þjóðaratkvæði, um 20,4 prósent
stuðningsmanna Samfylkingar-
innar og 46,7 prósent kjósenda
Vinstri grænna. Hins vegar vilja
um 67,2 prósent sjálfstæðis-
manna málið í þjóðaratkvæði
og 60,4 prósent stuðningsmanna
Framsóknar flokksins.
Konur eru almennt hlynntari
þjóðaratkvæðagreiðslu en karlar.
Um 63,4 prósent kvenna vilja
kjósa um framhald aðildarvið-
ræðna en 52,7 prósent karla.
Hringt var í 1.326 manns þar
til náðist í 800 manns samkvæmt
lagskiptu úrtaki miðvikudaginn
23. maí og fimmtudaginn 24. maí.
Þátttakendur voru valdir með
slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svar-
endur skiptust jafnt eftir kyni,
og hlutfallslega eftir búsetu og
aldri.
Spurt var: Á að halda þjóðarat-
kvæðagreiðslu á næstunni til að
ákveða hvort halda eigi aðildar-
viðræðum við Evrópusamband-
ið áfram? Alls tóku 92,8 prósent
þeirra sem náðist í afstöðu til
spurningarinnar.
- bj
Meirihluti vill kjósa
um Evrópusambandið
Tæplega sex af tíu vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi aðildarvið-
ræðum við ESB áfram samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Á að halda
þjóðaratkvæða-
greiðslu á næstunni til
að ákveða hvort halda eigi
aðildarviðræðum við Evrópu-
sambandið áfram?
Já
57,9% Nei
42,1%
HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 23. OG 24. MAÍ 2012
Aðildarumsókn í þjóðaratkvæði
SUÐUR-AFRÍKA, AP Stærsti útvarps-
sjónauki heims verður settur upp
í Suður-Afríku og Ástralíu. Þessi
tvö ríki hrepptu hnossið eftir
keppni fjölmargra ríkja, sem öll
vildu fá að hýsa sjónaukann.
Útvarpssjónaukinn er settur
saman úr fjölmörgum diskum,
sem nema útvarpsbylgjur úr
geimnum og á að hjálpa vísinda-
mönnum að átta sig betur á
alheiminum.
Bæði Ástralía og Suður- Afríka
höfðu gert sér vonir um að
sitja einar að sjónaukanum, en
fögnuðu engu að síður þessum
Salomonsdómi. - gb
Stærsti útvarpssjónaukinn:
Settur upp í
tveimur ríkjum
SVÍÞJÓÐ Karl Gústaf Svíakonungur
hefur sótt um breytingu á hinum
svokallaða Galleria-erfðafesturétti
þannig að Viktoría krón prinsessa
geti erft listaverkasafn og fé
sem aðeins karlar í konungsfjöl-
skyldunni hafa fengið í arf.
Listaverkasafnið samanstendur
af 60 verkum sem voru gjöf Napó-
leons Bonaparte Frakklandsfor-
seta til Jósefínu af Leuchtenburg
sem síðar giftist Óskari krónprinsi
Svíþjóðar. Gjöfinni fylgdi einnig
lítið ítalskt hertogadæmi, Galleria,
sem Jósefína seldi, að því er kemur
fram á vef Dagens Nyheter. - ibs
Breyting á erfðafesturétti:
Viktoría fái að
erfa málverk
Vill reglur um trampólín
Rósa Magnúsdóttir, fulltrúi Sjálfstæð-
isflokks í heilbrigðisnefnd Reykjavíkur,
vill að skipulagsráð borgarinnar skoði
hvort ástæða sé til að móta reglur
um staðsetningu leiktækja sem eru
umfangsmikil og fara yfir vissa hæð.
Þetta bókaði Rósa vegna fyrirspurnar
sinnar um öryggi við trampólín og
ónæði af þeim.
REYKJAVÍKURBORG
Hyggst þú spila golf í sumar?
JÁ 17,6%
NEI 82,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú til útlanda í sumar?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.
KJÖRKASSINN