Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 8

Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 8
26. maí 2012 LAUGARDAGUR8 1. Hvað heitir formaður Landssam- bands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ)? 2. Hvað nýtur Ólafur Ragnar Grímsson mikils fylgis til áfram- haldandi setu sem forseti Íslands í nýrri könnun Fréttablaðsins? 3. Hvað missa margir vinnuna í Lands- bankanum um næstu mánaðamót vegna hagræðingaraðgerða bankans? SVÖR EFNAHAGSMÁL Tólf mánaða verð- bólga lækkaði úr 6,4 prósentum í 5,4 prósent í maímælingu Hagstof- unnar. Var það talsvert meiri lækk- un en búist hafði verið við en grein- ingardeildir bankanna höfðu spáð verðbólgumælingu upp á 5,9 til 6 prósent. Lækkunin var einnig tals- vert meiri en Seðla bankinn virðist hafa gert ráð fyrir í nýjustu hagspá sinni sem hljóðaði upp á 5,9 prósent verðbólgu á öðrum ársfjórðungi. Til að stemma stigu við versnandi verðbólguhorfum hækkaði pen- ingastefnunefnd Seðlabankans stýrivexti um 0,5 prósentustig 16. maí síðastliðinn. Þessi nýja mæling Hagstofunnar felur því í sér góð tíðindi fyrir Seðla bankann. Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra skuldabréfa á markaði lækkaði nokkuð í gær sem bendir til þess að markaðsaðilar séu nokkru bjart- sýnni á verðbólguhorfur eftir mæl- inguna en þeir voru fyrir hana. Styrking krónunnar á síðustu vikum er einn af áhrifa þáttum lækkunarinnar en verðlag inn- fluttra vara lækkaði um 0,7 pró- sent í maí. Þá var talsverð lækkun á eldsneytisverði í mánuðinum. - mþl Ánægjuleg tíðindi fyrir peningastefnunefndina í Seðlabankanum: Verðbólga lækkaði merkjanlega HÓTEL REYKJAVIK CENTRUM Augljóst er að ferðamannatímabilið er farið á fullt en gistikostnaður hækkaði um 15 prósent milli mánaða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIÐSKIPTI Eimskip hagnaðist um 98 milljónir króna eftir skatta á fyrstu þremur mánuðum ársins 2012. Heildarvelta félagsins var 15,3 milljarðar króna sem var um milljarði króna meira en á sama tíma í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta var 1,1 milljarður króna og dróst saman um milljarð króna á milli ára. Heildareignir Eimskips í lok mars námu 48,1 milljarði króna og eiginfjárhlutfallið var 62,1 pró- sent. Stefnt er að því að skrá Eim- skip á markað síðar á árinu. - þsj Uppgjör fyrsta ársfjórðungs: Eimskip græddi 98 milljónir VIÐSKIPTI MP banki mun rukka þá viðskiptavini sína sem eru ekki með tvær milljónir króna eða meira í formi innlána, séreigna- sparnaðar, eignastýringar eða útlána hjá bankanum um nýtt 750 króna viðskiptagjald á mánuði frá 1. september næstkomandi. Þeir viðskiptavinir sem eiga eða skulda tvær milljónir króna eða meira þurfa ekki að greiða umrætt gjald. Þetta kemur fram í bréfi sem MP banki sendi viðskiptavinum sínum á miðvikudag. Í bréfinu kemur fram að bankinn hafi í apríl kynnt breyttar áherslur. Í þeim felst meðal annars að „ bankinn muni einbeita sér að bankaþjónustu sem eflir atvinnu- lífið og að nýtt kjörorð bankans er banki atvinnulífsins. Þjónusta bankans mun því taka breytingum til að styðja við nýjar áherslur bankans.“ Í tengslum við þessar breytingar hefur MP banki nú ákveðið að umfangsviðmið einstaklingsvið- skipta verði skilgreint að lágmarki tvær milljónir króna. Þeir einstak- lingar sem eru í viðskiptum hjá bankanum sem uppfylla ekki nýju umfangsviðmiðin verða rukkaðir um 750 krónur á mánuði frá 1. sept- ember næstkomandi. Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, segir gjaldið fyrst og fremst vera lagt á til að standa straum af auknum gjöldum og sköttum. Um leið er verið að draga mörkin um umfang viðskiptavina. „Þetta er hluti af stefnu bankans og sýnir hvar við erum að reyna að staðsetja okkur gagnvart okkar helstu markhópum. Við erum að verðleggja þessa þjónustu þannig að það endurspegli það sem kostar að veita hana.“ Hann segir MP banka ekki leggja mikla áherslu á mjög almennan og dreifðan neytendamarkað í bankaviðskiptum. „Við þurfum að Hentar ekki öllum að vera viðskiptavinir MP MP Banki mun leggja nýtt gjald á viðskiptavini sem annað hvort eiga eða skulda minna en tvær milljónir. Forstjórinn segir bankann vera að staðsetja sig gagnvart helstu markhópum. Það henti mögulega ekki öllum að vera hjá MP. FORSTJÓRINN „Ef við höfum ekki það sem fólk er að sækjast eftir þá eru margir á markaðnum sem eru að bjóða þessa þjónustu líka. Það er ekki þannig að fólk þurfi að vera bankalaust. Það hentar bara kannski ekki akkúrat að vera hér miðað við það sem við erum að gera,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka. Nýr eigendahópur kom að MP banka í apríl 2011 og keypti innlenda starfsemi bankans og starfsemi hans í Litháen. Hópurinn, sem saman- stendur af 49 hluthöfum, lagði MP banka til nýtt eigið fé upp á 5,5 milljarða króna. Stærsti einstaki hluthafinn er Títan fjárfestingafélag, sem er í eigu Skúla Mogensen, með 17,3 prósenta eignarhlut. Það er eini eigandinn sem á meira en tíu prósenta hlut í bankanum. Á meðal annarra eiganda MP banka eru Tavistock Group, fjárfestingafélag sem er m.a. í eigu Joe Lewis, og Rowland-fjölskyldan, sem á m.a. Banque Havilland í Lúxemborg. Skúli er stærsti eigandi MP banka ÁRÓSA- SAMNINGURINN tæki til áhrifa í umhverfismálum P O K A H O R N IÐ Málþing á vegum umhverfisráðuneytisins í Þjóðminjasafninu, 30. maí 2012 Fjallað verður um upplýsingagjöf, þátttöku almennings og samráð í umhverfismálum. Þá verður fjallað um hverju Árósasamningurinn breytir fyrir stjórnvöld, almenning og hagsmunasamtök, s.s. á sviði útivistar, umhverfisverndar og atvinnulífs. Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara er að finna á www.umhverfisraduneyti.is Málþingið hefst kl. 13.00 og stendur til kl. 16.30. Aðgangur ókeypis – allir velkomnir Save the Children á Íslandi Það hentar bara kannski ekki akkúrat að vera hér miðað við það sem við erum að gera. SIGURÐUR ATLI JÓNSSON FORSTJÓRI MP BANKA beina kröftum okkar að þeim við- skiptavinum sem við teljum að við höfum eitthvað fram að færa til. Ef við höfum ekki það sem fólk er að sækjast eftir þá eru margir á markaðnum sem eru að bjóða þessa þjónustu líka. Það er ekki þannig að fólk þurfi að vera bankalaust. Það hentar bara kannski ekki akkúrat að vera hér miðað við það sem við erum að gera.“ Sigurður Atli segir viðskipta- vini bankans hafa sýnt viðskipta- gjaldinu mikinn skilning. Fáir þeirra hafi ákveðið að flytja við- skipti sín annað og margir nýir séu að færa sig til bankans. Hann minnir á að viðskiptavinir sem uppfylli ekki umfangsvið miðin geti aukið viðskipti sín við bankann og þannig komist hjá gjaldheimtunni. thordur@frettabladid.is 1. Adolf Guðmundsson. 2. Tæplega 54 prósenta. 3. Um fimmtíu manns. VEISTU SVARIÐ?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.