Fréttablaðið - 26.05.2012, Síða 63
LAUGARDAGUR 26. maí 2012 17
Víkurbúðin ehf óskar eftir rekstraraðila að matvöruversluninni
Víkurbúðinni og veitingastaðnum Jóni Indíafara sem rekin er
sameiginlega í þjónustumiðstöðinni Álftaveri í Súðavík.
Til greina kemur að leigja reksturinn í heild sinni eða að aðili
yfirtaki lager og rekstur. Starfsemin fer fram í leiguhúsnæði og
eru tæki og búnaður til verslunar- og veitingareksturs innifalinn í
leigusamningi.
Víkurbúðin er með samning um rekstur skólamötuneytis, fyrir
leik- og grunnskóladeild Súðavíkurskóla, sem nýr aðili hefur
möguleika á að yfirtaka.
Frekari upplýsingar er að finna á vefslóðinni:
www.sudavik.is/ferdathjonusta/Jon_Indiafari
og á vefslóðinni:
www.sudavik.is/ferdathjonusta/Vikurbudin
Einn af stærstu vaxtasprotum svæðisins er fólginn í þjónustu við
ferðamenn og er hér um gott tækifæri að ræða fyrir dugmikinn
aðila sem langar að breyta til.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Már Þórisson stjórnarform.
í gsm síma 856-2021 eftir klukkan 16:00 eða tölvupósti á
netfangið doridraumur@internet.is
Viltu reka matvöruverslun
og veitingastað Í Súðavík
Lausar stöður
í Lágafellsskóla Mosfellsbæ
Viljum ráða til starfa:
Kennara í 100% starf í sérkennslu.
Æskilegt að viðkomandi sé með framhaldsmenntun í
sérkennslu fræðum og starfsreynslu. Leitað er eftir einstaklingi
með góða samskiptahæfni.
Skólaliða í 90% starfshlutfall.
Meðal verkefna eru gangbrautarvarsla, ræstingar, gæsla með
nemendum, aðstoð í matsal. Vinnutími frá kl. 07:45.
Ráðning frá 15. ágúst .
Frístundaleiðbeinendur í 40-50% starfshlutfall.
Frístundaleiðbeinendur taka þátttöku í skipulagningu faglegs
frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi. Vinnutími
frá kl. 13:00. Ráðning frá 21.ágúst.Upplýsingar veitir
Ágústa Andrésdóttir forstöðumaður í síma 8962682 eða
agusta@lagafellsskoli.is
Stuðningsfulltrúa í u.þ.b. 60% starf.
Meginverkefni er aðstoð við nemendur m.a. í búningsklefum
drengja. Sérstaklega er leitað eftir karlmanni til starfans.
Vinnutími frá kl. 08:00. Möguleiki á vinnu í frístundaseli e.h.
og þar með 100% starfshlutfalli. Ráðning frá 15.ágúst.
Umsjónarmann tölvumála í 100% starf.
Ráðið verður í starfið frá 1.ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Umsjón með tölvukerfi skólans, rekstur prentara og annarra
jaðartækja, fagleg yfirumsjón með heimasíðu
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi, þekking og reynsla af kerfisstjórnun
í Microsoft Windows/2008/XP/Win 7 umhverfi.
Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum, nákvæmni,
áreiðanleiki og skipulögð vinnubrögð.
Launakjör eru í samræmi við kjarasamning Launanefndar sveit-
arfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um störfin veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri, í
síma 5259200/8968230 eða johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðila berist með tölvupósti á netfangið
johannam@lagafellsskoli.is. Umsóknarfrestur er til 7. júní.
Vilt þú vinna með okkur?
Svalbarðsstrandarhreppur leitar að starfsfólki í eftirtalin störf:
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði.
Svalbarðsstrandarhreppur er blómlegt og vel stætt sveitarfélag við austanverðan Eyjafjörð. Íbúar eru um 400. Þéttbýli er á Svalbarðseyri sem
er í um 12 km fjarlægð frá Akureyri. Þar er að finna tónlistar-, leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttaaðstöðu og skrifstofu sveitarfélagsins.
Deildarstjóri í leikskólanum Álfaborg
Leikskólinn Álfaborg leitar eftir sjálfstæðum, jákvæðum
og skapandi deildarstjóra í fullt starf frá og með
7. ágúst n.k.
Umsækjandi þarf að hafa lokið leikskólakennaranámi
skv. 3. gr. laga nr. 87/2008*. Stjórnunarmenntun og/
eða reynsla af stjórnun í leikskóla er kostur. Mikilvægt
er að umsækjandi eigi auðvelt með samskipti, hafi
frumkvæði og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt
starf með börnum.
Staðsetning leikskólans býður upp á fjölbreytta starf-
semi í tengslum við umhverfi og samfélag. Lögð er
áhersla á umhyggju, jákvæða snertingu, útiveru og
hreyfingu.
Umsóknir berist til Leikskólans Álfaborgar, Svalbarðs-
eyri, 601 Akureyri eða í tölvupósti fyrir 20. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Ragna Erlingsdóttir, s. 4624901
/ netfang: alfaborg@svalbardsstrond.is.
*Ef ekki berast umsóknir frá leikskólakennurum sem
uppfylla hæfniskröfur er heimilt að ráða leiðbeinanda í
stöðuna tímabundið til eins árs.
Tónlistarkennari við Tónlistarskóla
Svalbarðsstrandar
Tónlistarskóli Svalbarðsstrandar óskar eftir að ráða
tónlistarkennara í hlutastarf á næsta skólaári.
Við leitum að metnaðarfullum, sjálfstæðum og
skapandi tónlistarkennara sem getur kennt á a.m.k.
tvö hljóðfæri, ásamt kennslu bóklegra greina og tón-
menntar í grunnskóla.
Tónlistarskóli Svalbarðsstrandar er lítill skóli með ríka
áherslu á samvinnu við grunn- og leikskóla.
Umsóknir berist Tónlistarskóla Svalbarðsstrandar,
Valsárskóla, 601 Akureyri eða í tölvupósti fyrir 20. júní
nk. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Helga Kvam,
s. 865 8052 / netfang: tonlist@svalbardsstrond.is.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Húsvörður Upplýsingar veitir:Kristín Guðmundsdóttir
kristin@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 4. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út
á www.hagvangur.is.
Húsfélagið Aflagranda 40 óskar eftir að ráða
húsvörð til starfa.
Starfinu fylgir 90m2 íbúð og er búseta þar skilyrði.
Leitað er að einstakling sem er:
• Handlaginn og lipur í samskiptum
• Reglusamur og samviskusamur
• Þjónustulundaður og reyklaus
Íbúar hússins eru 60 ára og eldri. Húsvörður heyrir undir hússtjórn.
Helstu verkefni hans eru þrif, umsjón og eftirlit með húseigninni,
umhirða lóðar, minniháttar viðhald ásamt aðstoð við íbúa hússins.