Fréttablaðið - 26.05.2012, Blaðsíða 76
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012128
ÖRUGGUR FERÐAMÁTI
Flughræðsla angrar marga
ferðalanga og suma meira en
aðra. Til að draga úr hræðslunni
má reyna eftirfarandi:
Ekki pakka niður á síðustu stundu.
Þér líður betur ef allt er tilbúið á
sínum stað í tíma.
Hafðu með þér afþreyingu.
Sökktu þér ofan í skemmtilega
bók eða horfðu á notalega
kvikmynd. Forðastu bæði les- og
myndefni sem eykur á spennu
og ótta.
Hafðu með þér nasl. Það veitir
vellíðan að borða í flugi. Mundu
eftir að drekka vel, helst vatn.
Ef kvíðatilfinning læðist að í flugi
má minna sig á að flug er marg-
falt öruggari ferðamáti en að aka
bíl.
ÞÆGINDI Í
LÖNGUM FLUGFERÐUM
Í löngum flugferðum skal reyna
að standa upp öðru hvoru og
hreyfa sig meðan á flugi stendur.
Í sætinu er gott að teygja létt á
hálsvöðvum og herðum, kálfum
og rist og snúa ökklum og úln-
liðum til að liðka liðina. Þá er gott
að drekka vatn í flugi en minna af
kaffi og áfengum drykkjum.
Athugið að klæðn-
aður sé þægilegur. Þá
gæti verið sniðugt að
hafa með mjúka sokka
til að
smeygja
sér í
eftir að
hafa farið
úr skónum í löngu
flugi.
Gosflöskur og
dósir rúma flestar
meira en 100
ml og því ekki
leyfilegar inn fyrir
öryggishlið.
HVAÐ MÁ FARA
MEÐ AF VÖKVA Í FLUG?
Vökva má ferðast með í hand-
farangri að eftirfarandi skilyrðum
uppfylltum, samkvæmt upp-
lýsingum á síðunni www.caa.is:
Hver eining umbúða má að há-
marki rúma 100 millilítra af vökva.
Allar umbúðirnar verða að rúmast
í gegnsæjum eins lítra plastpoka
sem hægt er að loka með plast-
rennilás. Hverjum farþega er
heimilt að hafa
með sér einn
poka. Með
umbúðum er
átt við flöskur,
túpur, hylki
og annað sem
getur inni-
haldið vökva.
Gosflöskur
og dósir rúma
flestar meira
en 100 ml og
eru því ekki
leyfðar inn fyrir
öryggishlið.
EKKI TAKA ALGJÖRT FRÍ
Hjá mörgum þýðir það að fara í frí að taka líka frí frá ræktinni eða þeirri skipulögðu hreyfingu sem þeir stunda
í daglega lífinu. Farið er í fríið með því hugarfari að slaka algjörlega á og „gera ekki neitt“ og leyfa sér það sem
hugurinn girnist í mat og drykk.
Þetta er eflaust ekki mjög sniðugt því mjög erfitt getur verið að koma sér aftur í hefðbundna rútínu þegar fríinu
er lokið. Það eru ýmsar leiðir til að setja æfingar og skipulagða hreyfingu inn í dagsskipulagið í fríinu. Þó má ekki
setja markið of hátt og ætla að æfa eins og venjan er heima. Einhver hreyfing er alltaf betri en engin.
Ef stefnan er sett á að gista á hóteli er ágætt að kanna aðstöðuna áður en haldið er af stað. Sum hótel og
gististaðir bjóða upp á heilsurækt, skipulagða tíma eða gönguferðir. Einnig má athuga hvort einhverjar góðar
hlaupaleiðir séu í nágrenninu. Ef förinni er heitið í sumarbústað má einfaldlega skella hlaupaskónum eða
gönguskónum (eða jafnvel báðum pörunum) ofan í tösku og fara út að hlaupa og njóta þess sem fyrir augu ber.
Varðandi mat og drykk er allt í lagi að leyfa sér meira en venjulega en það er óþarfi að fara offari og standa á
blístri eftir hvert mál. Það er eflaust best að halda sig við hið fornkveðna, í fríi jafnt sem heima við; allt er best í
hófi.
Það getur verið erfitt að koma sér aftur í
hefðbundna rútínu eftir að fríi lýkur og fara
að hreyfa sig reglulega. NORDIC PHOTOS/GETTY
NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT.
ÞÚ KEMST ÞANGAÐ
MEÐ OKKUR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
Kauptu miða núna á www.flugrutan.is
Alltaf laus sæti.
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
101 Reykjavík
580 5400
Frí þráðlaus internet-
tenging í öllum bílum