Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 93

Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 93
LAUGARDAGUR 26. maí 2012 53 Tónlist ★★ ★★★ Orchestronics Raftónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur, remix eftir Mike Gao Kaldalón í Hörpu á Listahátíð í Reykjavík 23. maí Ógn en ekkert gerðist Tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir hefur verið áberandi undanfarið. Um jólin kom t.d. út frábær geisladiskur með verkum hennar. Mikið af tónlist hennar er líka flutt á tónleikum, bæði af Sinfóníuhljómsveit Íslands og minni hópum. Ástæðan er skýr: Tónlist Önnu er einfaldari og aðgengilegri en margra kollega hennar. Stemningin er grípandi, óhugnaðurinn bókstaflega lekur út úr hljóðfærunum. Allir vita að óhugnaður er spennandi. Annars væru glæpasögur og hryllingur ekki vinsæl. Tónlist Önnu er þó ekki banal. Þótt andrúmsloftið í henni sé auðfundið, er þar að finna framvindu og dýpt. Það eru engin ódýr trix sem halda stuðinu gangandi. Nema á tónleikum á Listahátíð í Hörpu á mið- vikudagskvöldið. Í þetta sinn sat Anna við tölvu og flutti vídeóverk og raftónsmíðar sem hún hafði unnið úr verkum sínum. Maður heyrði alls konar brot úr þeim, en undir lá djúpur hljómur sem breyttist ekki mikið. Slíkur hljómur er kallaður drone á ensku, drónn á íslensku. Drónn er einfalt stílbrigði til að skapa andrúmsloft, og er oft notaður í kvikmyndatónlist með prýðilegum árangri. Hann segir áhorfandanum að það sé eitthvað svakalegt að fara að gerast. Á tónleikunum í Hörpu fékk maður hvað eftir annað þessi skilaboð. Það var ógn og skelfing handan við hornið. En svo gerðist aldrei neitt. Sennilega var endurtekningin og kyrrstaðan bara of mikil. Það var of lengi staldrað við það sama. Drónninn var ofnotaður. Vídeóverkið kom ekki heldur nógu vel út. Það var lengi fyrst og fremst síbreytilegt mynstur. Auðvitað er það allt í lagi í sjálfu sér, en þarna var ekkert tjald. Myndinni var varpað beint á vegginn fyrir aftan sviðið, og hann er fóðraður með spýtum. Spýturnar trufluðu upplifunina. Nokkru síðar í vídeóverkinu mátti sjá stillimynd af manneskju. Hún stóð fyrir framan eitthvað sem helst líktist bílskúrshurð, næstum því lokaðri. Á bak við hurðina var ljós. Tónlistin undir var svo ógnvænleg að manni datt helst í hug að verið væri að gera einhverja hryllilega tilraun í skúrnum. Þetta hefði getað svínvirkað. En spýturnar á veggnum breyttu myndinni í flatneskjulegt veggfóður. Gestur á tónleikunum var bandarískur raftónlistarmaður og plötusnúður, Mike Gao. Hann flutti eigin remix sem voru unnin úr tónlist Önnu. Remixin voru ekki sérlega bitastæð. Þau samanstóðu aðallega af flóknum takti sem virkaði fljótt yfirborðslegur. Það vantaði stígandina; tónlistin komst aldrei á flug. Hægt hefði verið að gera miklu meira úr henni. Jónas Sen Niðurstaða: Fremur óspennandi raftónleikar sem einkenndust af tilbreyt- ingarleysi, auk þess sem hið sjónræna hefði mátt vera betur hugsað. HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK ER FYRSTI ÍSLENSKI SKÓLINN TIL AÐ HLJÓTA ALÞJÓÐLEGA VIÐURKENNINGU Á VIÐSKIPTANÁMI ALÞJÓÐLEGA VIÐURKENNT MBA-NÁM Í HJARTA REYKJAVÍKUR Kynntu þér námið á www.ru.is/mba Bókaðu fund með verkefnastjóra; mba@ru.is Háskólinn í Reykjavík er í hópi 186 háskóla sem hlýtur AMBA viðurkenninguna, en meðal annarra sem hafa fengið hana eru IESE í Barcelona, CBS í Danmörku, IMD í Sviss, London Business School og Oxford háskóli. Hvað er AMBA? AMBA viðurkenninguna veita samtökin Association of MBA‘s (AMBA), ein virtustu samtök sinnar tegundar í heiminum. www.mbaworld.com Söngkonurnar Hulda Björk Garð- arsdóttir sópran, Þóra Einars- dóttir sópran, Auður Gunnars- dóttir alt ásamt píanóleikaranum Helgu Bryndísi Magnús dóttur koma fram á tónleikum í Hömrum á Ísafirði á annan í hvítasunnu klukkan 15, undir yfirskriftinni Prímadonnur Íslands. Þær flytja óperutónlist og ýmis fræg sönglög ýmist allar saman, í dúettum eða sem einsöngvarar. Meðal annars verða atriði úr Töfraflautunni og Brúðkaupi Figarós, Il Trovatore og fleiri óperum en tónleikarnir enda á hinum fræga Kattadúett Rossinis. Tónleikarnir eru áskriftar- tónleikar á vegum Tónlistarfé- lags Ísafjarðar og áskriftarkort gilda en einnig eru seldir miðar við innganginn á 2.000 krónur og á 1.500 fyrir eldri borgara en ókeypis er fyrir skólafólk 20 ára og yngra. -gun Prímadonn- ur Íslands PRÍMADONNURNAR Auður, Hulda, Þóra og hin ísfirskættaða Helga Bryndís munu koma fram í Hömrum á Ísafirði á mánudaginn. MUNDU AÐ EFNI SEM ÞÚ SETUR Á NETIÐ ER ÖLLUM OPIÐ, ALLTAF! www.saft.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.