Fréttablaðið - 26.05.2012, Side 96
26. maí 2012 LAUGARDAGUR56
popp@frettabladid.is
STIG hafa frændur okkar í Danmörku fengið frá Íslandi í Eurovision síðan við hófum þátttöku
árið 1986. Svíar hafa fengið 124 stig frá okkur og Norðmenn 111 stig. Danir launa okkur hins
vegar ekki stigin því Ísland hefur fengið flest stig frá Svíþjóð og Noregi.
154
1. Það er mjög erfitt að segja því
það gengur svo mikið út á hvað
gerist á sviðinu. Mér finnst Svíar
mjög sannfærandi og svo erum við
að standa okkur rosalega vel líka.
2. Það eru þó nokkur lög sem eru
frekar slæm og það sýnir kannski
mismunandi tónlistarsmekk í
Austur- og Vestur-Evrópu. Mér
finnst til dæmis rosalega skrítið
að Tyrkland hafi komist í gegn.
3. Allavegana í topp tíu. Vonandi
vinna þau bara.
4. Ég vil ekki spá neinum svo
slæmum hlutum. Það er búið
að æfa allt svo vel að ég held að
enginn sé að fara að floppa.
5. Jónsi og einhver af rússnesku
ömmunum. Ég sá í sjónvarpinu að
hann er voða hrifinn af þeim.
6. Euphoria frá Svíþjóð.
7. Ég er alltaf rosa hrædd við það
þegar verið er að lyfta söngvar-
anum upp í loftið. Það eru alveg
nokkur svoleiðis atriði í keppninni
núna sem gætu endað illa.
8. Norðmenn held ég.
9. Mér finnst Greta í alveg klikk-
uðum kjól og svo fannst mér líka
heildarlúkkið á skvísunum frá
Kýpur svolítið töff.
10. Litháar. Það er strákur sem
er einn á sviðinu og byrjar með
bundið fyrir augun. Hann hélt mér
alveg allan tímann.
JÓHANNA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
söngkona og Eurovisionfari
1 Hver vinnur?
2 Hver fær fæst stig?
3 Hvar endar íslenska lagið?
4 Hver floppar?
5 Hvaða keppendur enda
saman uppi á hótelherbergi
að keppni lokinni?
6 Hvaða lag nær mestum
vinsældum eftir keppnina?
7 Hver lendir í hremmingum á
sviði og hvaða?
8 Hvaða þjóð gefur okkur 12
stig?
9 Hver er í flottustu búning-
unum?
10 Hver er með flottustu sviðs-
framkomuna?
SPURNINGAR
Það hefur líklegast farið fram hjá fæstum að lokakeppnin í Eurovision söngvakeppninni fer fram í Bakú í Aserbaídsjan í kvöld. Jónsi og Greta hafa
verið að gera góða hluti ytra og spennandi að sjá hvernig þeim farnast á sviðinu í kvöld. Fréttablaðið hafði samband við fjóra einstaklinga sem tengjast
Eurovision á einn eða annan hátt og fékk álit þeirra á ýmsum hlutum fyrir kvöldið.
Álitsgjafar óttast ýmsar hremmingar í kvöld
1. Svíþjóð held ég að vinni, en
lagið okkar gæti líka vel unnið.
2. Malta.
3. Ég myndi giska á fimmta sætið.
4. Lagið frá Tyrklandi er afleitt og
einnig kemur Írland sterklega inn
í þennan flokk.
5. Hún Eleftheria frá Grikklandi
og Roman Lob frá Þýskalandi.
6. Sænska lagið og það enska.
7. Írsku tvíburarnir sem fara í
sturtu á sviðinu. Það er eins gott
að míkrófónarnir séu jar ðtengdir
svo þeir fái ekki rafstuð. Svo vona
ég að ömmurnar komist heilar út
úr þessu, en mér finnst að fólk
ætti að taka sig saman og gefa
þeim kirkjuna sem þær eru að
safna fyrir og senda þær heim.
8. Ég vona að við fáum 12 stig frá
Norðurlöndunum.
9. Loreen frá Svíþjóð.
10. Það finnst mér líka vera sú
sænska. Hún er alveg frábær.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON,
tónlistarmaður og Eurovisionfari
1. Svíarnir taka þetta, hún er alveg
ótrúlega góð. En ég held samt með
okkur.
2. Að minnsta kosti helmingur
þessara laga er viðbjóður og á ekki
skilið að fá stig yfir höfuð.
3. Krakkarnir okkar eru með eitt
af svona fjórum lögum í þessari
keppni sem einhver alvara er í.
Klíkuskapslega séð endum við
kannski í svona 10.-15. en ef þetta
væri alvöru lagakeppni værum við
í svona þriðja eða fjórða.
4. Einu atriðin sem geta raunveru-
lega floppað eru góðu atriðin, hin
eru hvort sem er hörmuleg.
5. Fyrir hönd vina Péturs Jesú þá
óska ég þess innilega að það verði
hann og Loreen.
6. Sænska lagið er búið að ná
gríðar legum vinsældum nú þegar
og mun halda því áfram.
7. Það er rosalega margt sem gæti
farið úrskeiðis. Ömmurnar gætu
til dæmis ofbakað kökurnar, það
væri geðveikt vandræðalegt.
8. Ég held að við fáum nokkrum
sinnum 12 stig. Við krefjumst
þess að sjálfsögðu af frændþjóðum
okkar en svo held ég að við fáum
alveg nokkur 12 stig úr óvæntum
áttum líka.
9. Ofvirku írsku tvíburarnir.
10. Sænska Loreen. Það er alveg
ótrúlegt öryggi í gangi hjá henni.
MAGNI ÁSGEIRSSON,
tónlistarmaður og Eurovisionkeppandi
1. Ég geri frekar ráð fyrir því
að Svíþjóð vinni, Ísland á samt
ágætan séns.
2. Ég ligg á bæn og vona að írsku
tvíburarnir fái ekkert stig því
annars væru Írarnir vísir með
að senda þá þriðja árið í röð.
3. Á topp fimm.
4. Flestir koma til með að floppa
held ég.
5. Nú írsku tvíburarnir, eru þeir
ekki annars síams?
6. Rússnesku ömmurnar. Það
verða hins vegar skammtímavin-
sældir eins og yfirleitt í kjölfar
Júróvisjón.
7. Uhh, eru ekki flest atriðin
hremmingar í sjálfu sér?
8. Svíar. Fáum svo 8-10 stig að auki
frá Noregi, Danmörku, Finnlandi
og Lettlandi.
9. Ömmurnar.
10. Þessi sænska.
SIGMAR GUÐMUNDSSON,
fjölmiðlamaður og Eurovisionaðdáandi
Íslenski hópurinn verður sá
sjöundi á svið í kvöld sem er gott
að mati flestra. Það verða Bretar
sem hefja leikinn, en uppröðunin
er svohljóðandi:
1. Bretland
2. Ungverjaland
3. Albanía
4. Litháen
5. Bosnía
6. Rússland
7. Ísland
8. Kýpur
9. Frakkland
10. Ítalía
11. Eistland
12. Noregur
13. Aserbaídsjan
14. Rúmenía
15. Danmörk
16. Grikkland
17. Svíþjóð
18. Tyrkland
19. Spánn
20. Þýskaland
21. Malta
22. Makedónía
23. Írland
24. Serbía
25. Úkraína
26. Moldóva
UPPRÖÐUN KEPPENDA
1. Álitsgjafarnir voru einróma um
að Svíar væru líklegastir til sigurs,
en vildu þó ekki útiloka okkur frá
fyrsta sætinu.
2. Allt stefnir í að botnbaráttan
verði töluvert harðari en topp-
baráttan.
3. Never Forget þykir álitsgjöfunum
vænlegt til árangurs og óhætt að
láta sig dreyma um eitt af efstu
fimm sætunum.
4. Það má augljóslega búast við því
að nokkur atriði fari út af brautinni
á sviðinu í kvöld.
5. Líklegt þykir að Sigmar hafi hitt
naglann á höfuðið og að bræðurnir
komi til með að enda saman uppi
á herbergi. Hvernig fer með aðra
spádóma verður spennandi að
sjá. Fréttablaðið mun fylgjast
sérstaklega vel með hvort Magna
verði að ósk sinni um að Pétur og
Loreen finni hamingjuna í örmum
hvors annars, en eftir því sem við
komumst næst eru þau bæði laus
og liðug.
6. Sænska lagið á eflaust eftir að
halda áfram að slá í gegn, en ef
marka má álitsgjafana megum
við eiga von á að heyra meira af
ellismellunum frá Rússlandi og Eng-
landi líka.
7. Það er greinilega margt sem þarf
að huga að á sviðinu og fjöldi hluta
sem gætu farið úrskeiðis. Vonum
að allir komist heilir og sáttir frá
kvöldinu.
8. Að sjálfsögðu ætlumst við til þess
að fá 12 stig frá Noregi, Danmörku
og Svíþjóð, annað er ekki í boði. Svo
vonumst við til þess að Magni hafi
rétt fyrir sér og að tólfurnar streymi
úr öllum áttum svo hún Hrafnhildur
kynnir fái ástæðu til að æsa sig í
beinni.
9. Engir álitagjafanna voru sammála
um hver væri best til fara. Baráttan
um besta klæðnaðinn er því greini-
lega harðari en um besta lagið.
10. Einföld og falleg framkoma er
greinilega það sem heillar álits-
gjafana þar sem Svíar og Litháar voru
ein um að fá stig í þessum flokki.
NIÐURSTÖÐUR ÁLITSGJAFA