Fréttablaðið - 26.05.2012, Síða 103

Fréttablaðið - 26.05.2012, Síða 103
LAUGARDAGUR 26. maí 2012 63 HÁMARKS ÁRANGUR Grunnpakkinn frá NOW inniheldur þau lykil næringarefni sem flestir fá ekki nóg af. Dreifingaraðili: Yggdrasill ehf. GRUNNPAKKI NOW G æ ð i H r e i n l e i k i V i r k n i „Til að ná hámarks árangri þarf ég að gera miklar kröfur til sjálfrar mín og þess sem ég læt ofan í mig. Ég vel bætiefnin frá NOW vegna þess að þau tryggja að líkaminn fái þau næring- arefni sem hann þarfnast og eru unnin úr hágæða, að miklu leyti, lífrænt vottuðum hráefnum sem eru framleidd og prófuð samkvæmt ströng- ustu gæðastöðlum. Ég vel NOW!“ Kári Steinn Karlsson, hlaupari og ólympíufari. Grunnpakki NOW Frábær viðbót SUND Hrafnhildur Lúthers dóttir setti nýtt Íslandsmet og náði fimmta sætinu í 200 metra bringu- sundi kvenna á EM50 í Ungverja- landi þegar hún synti á 2:27,92 mínútum í úrslitasundinu. Hrafn- hildur bætti sitt eigið Íslandsmet frá síðasta mánuði. Hrafnhildur bætti Íslands metið um sekúndu en náði samt ekki Ólympíulágmarkinu sem er 2:26,89 mínútur. Hrafnhildur mun keppa í þessari grein á Mare Nostrum mótaröðinni sem hefst í næstu viku og á því enn möguleika á því að tryggja sér farseðil til London. „Ég er mjög ánægð með þetta en þegar ég kom í bakkann þá hugsaði ég með mér: Bara ef að ég hefði klárað aðeins betur því þá hefði ég kannski komist á pall,“ sagði Hrafnhildur eftir sundið. Ingibjörg Kristín Jóns dóttir komst ekki í úrslitasundið í 50 metra baksundi en hún synti á 29,14 sekúndum í undanúrslita- sundinu og var 30/100 frá því að komast í úrslitin. Ingibjörg varð í 10. sæti af 16 keppendum í undan- úrslitum. Ingibjörg Kristín bætti sig frá því í undanriðlinum í morgun en hún synti þá á 29.23 sekúndum og varð tólfta inn í undanúrslitin. - óój Hrafnhildur Lúthersdóttir í miklu stuði á EM í sundi: Náði fimmta sætinu á EM HRAFNHILDUR Hefur staðið sig best Íslendinganna í Ungverjalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KÖRFUBOLTI Kobe Bryant, leik- maður Los Angeles Lakers, var valinn í lið ársins í NBA-deildinni í tíunda sinn á ferlinum en hann er í hópi fimm bestu leikmanna deildarinnar að mati blaðamanna sem skrifa um NBA- deildina. Með Bryant í úrvalsliðinu eru þeir LeBron James, Kevin Durant, Chris Paul og Dwight Howard. Bryant komst þar með í hóp manna eins og Kareem Abdul- Jabbar, Elgin Baylor, Bob Cousy, Michael Jordan, Bob Pettit, og Jerry West en þeir voru allir tíu sinnum í úrvalsliði ársins. Karl Malone á hins vegar metið en hann var ellefu sinnum valinn í lið ársins. LeBron James var kosinn besti leikmaður deildarinnar og hann fékk líka atkvæði frá 118 af 120 blaðamönnum í fyrsta úrvalsliðið. - óój Kobe Bryant í liði ársins: Valinn í liðið í tíunda sinn KOBE Átti enn og aftur frábært ár í búningi Lakers. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Dave Whelan, stjórnar- formaður Wigan, hefur stað- fest það við Sky-fréttastofuna að Liverpool hafi boðið Roberto Martinez stjórastöðuna á Anfield en eigendur Liverpool leita enn að nýjum stjóra eftir að Kenny Dalglish var látinn fara. Martinez, sem er enn stjóri Wigan, fékk leyfi félagsins til þess að tala við Liverpool en hann hitti eigendur Liverpool í Miami í gær. Whelan lak niður- stöðu fundarins í Sky og talaði um að ákvörðun um framhaldið yrði tekin á næstu dögum. „Ég var að tala við Roberto. Hann fór í gær til Miami og átti mjög uppbyggilegan fund með eiganda Liverpool. Þeir ætla að hittast aftur á þriðjudaginn. Þeir buðu Roberto starfið og hann féllst á það að skoða til boðið,“ sagði Dave Whelan við Sky Sports. Whelan segir að Roberto Mart- inez vinni 12 tíma á dag alla daga vikunnar og að hann sé harður á því að fá fulla stjórn á öllum því sem viðkemur liðinu. „Ég veit ekki hvort að hann vilji fara þangað þar sem hann hefur ekki fulla stjórn,“ sagði Whelan. - óój Roberto Martinez: Boðið að taka við Liverpool FÓTBOLTI Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, stýrði liðinu í síðasta sinn í gær þegar Barcelona mætti Athletic Bilbao í úrslita- leik spænsku bikarkeppninnar. Guardiola tilkynnti á dögunum að hann ætlaði að taka sér hvíld frá þjálfun. „Ég mun fagna því að heyra í áhugasömum félögum en ekki fyrr en eftir nokkra mánuði því fyrst þarf ég að hlaða batteríin og endurhlaða heilann,“ sagði Pep Guardiola á blaðamanna- fundi fyrir bikarúrslitaleikinn. „Ég ætla að hvíla mig og síðan mun ég bara bíða rólegur. Ef eitt- hvert félag vill fá mig þegar ég er búinn að hlaða batteríin og ef þeim tekst að tæla mig þá mun ég þjálfa á ný,“ sagði Guardiola. - óój Pep Guardiola: Til í að hlusta á önnur félög
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.