Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 110

Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 110
26. maí 2012 LAUGARDAGUR70 HVAR HAFNAR ÍSLAND? „Ég held að þau eigi eftir að gera góða hluti og spái þeim ofarlega. Að minnsta kosti í topp tíu.“ Selma Björnsdóttir, söngkona og tvöfaldur Eurovisionfari. „Mig langar að gera gúrmevöru aðgengilegri fyrir almenning,“ segir kokkurinn Hrefna Rósa Sætran en sósur úr hennar smiðju eru væntanlegar í verslanir í júlí. Hrefna Rósa er komin í samstarf við matvæla- fyrir tækið ORA um að hefja framleiðslu á eigin vörulínu og fyrstu vörurnar sem koma á markaðinn eru kaldar sósur. Hrefna Rósa er ánægð með að loksins sé að verða af þessu en verkefnið hefur verið í bígerð lengi. „Mig hefur lengi langað að gera þetta og það hefur alltaf verið á langtímaplönunum að búa til eigin vöru- línu. Þegar ORA hafði samband ákvað ég að slá til,“ segir Hrefna en línan verður skírð í höfuðið á henni. Um fjórar tegundir af sósum er að ræða, eina sem passar vel við grísakjöt og hamborgara, eina fyrir steikur, eina fyrir fisk og eina sem passar með græn- meti. „Sósurnar eiga að passa allan ársins hring og margir ættu að kannast við þær frá Fiskmarkaðnum. Þetta eru ekki beint framandi sósur heldur góður grunnur með smá tvisti,“ segir Hrefna Rósa sem býr til allar uppskriftirnar sjálf. Hrefna segir sósurnar bara vera upphafið að stærri línu. „Það er markmiðið að gera matvælalínu með fjölbreyttu úrvali af vörum í nánustu framtíð.“ -áp Hrefna Rósa blandar sósur VÖRULÍNA Í sumar verður hægt að kaupa matvæli frá kokknum Hrefnu Rósu Sætran sem sendir frá sér vöru- línu undir eigin nafni. Hér er hún ásamt manni sínum Birni Árnasyni og syninum Bertram Skugga. Fleiri popp- og rokktónleikar hafa verið haldnir í Hörpunni en klass- ískir síðan húsið var opnað í maí í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hörpunni um þá tónleika sem þar hafa verið haldnir á fyrsta starfsári hennar. Popp- og rokktónleikar voru flestir, eða 94 talsins, og skammt á eftir þeim komu 87 klassískir tón- leikar. Tónleikar með léttri tónlist af ýmsu tagi voru 78, tónleikar með nútímatónlist voru 42, söng- leikir voru 28, óperur 19, barna- tónleikar 18, djasstónleikar voru 16 og nemendatónleikar 12. Aðspurð segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpunnar, að þessi skipting sýni fjölbreytnina í húsinu í hnotskurn. „Þetta kveður endanlega niður allar grunsemdir um að hér halli á einhverja ákveðna tegund tón- listar. Það stóð alltaf til að hafa þessa fjölbreytni þó að það væru einhverjir sem bjuggust við að hér yrði kannski öðruvísi verkefnaval. Þessar áherslur okkar hafa gengið eftir og það er mjög gleðilegt,“ segir Steinunn Birna. Samanlagt sóttu 249.381 manns alls 394 tónlistarvið- burði í Hörpunni á fyrsta starfs- ári hennar. „Þetta er talsvert umfram það sem lagt var af stað með í allri áætlanagerð og spám. Við renndum svo sem blint í sjóinn enda var þetta í fyrsta skipti sem svona hús reis á landinu,“ segir Steinunn Birna. „Við erum alltaf að finna betur og betur hvað það var uppsöfnuð þörf fyrir húsið. Við vissum að því yrði tekið fagnandi af tónlistarmönnum en það sem er svo gleðilegt er að almenningur og gestir hafa tekið húsinu svo vel, sem sýnir sig í þessum aðsóknar- tölum.“ freyr@frettabladid.is STEINUNN BIRNA RAGNARSDÓTTIR: SÝNIR FJÖLBREYTNINA Í HÚSINU Poppið fyrirferðarmeira en klassíkin í Hörpunni FRAMAR VONUM Tæplega 250 þúsund manns sóttu tónlistarviðburði í Hörpunni fyrsta starfsárið. Steinunn Birna Ragnarsdóttir segir það framar vonum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Milljónasti gesturinn sem stígur fæti inn í Hörpuna frá því húsið var opnað í fyrra mætti þangað í gær. Hann heitir Hallgrímur Jónasson og varð mjög hissa þegar Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpunnar, tilkynntu honum þetta. Hallgrímur hefur verið áskrifandi að tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands lengi og var staddur í Hörpunni um hádegisbilið til að skipta miðum. Hann fékk í verðlaun blómvönd, gjafakort frá Hörpu á við- burð að eigin vali fyrir tvo, veglega úttekt í versluninni 12 Tónum, gjöf frá Epal, gjafabréf á Kolabrautina og gjafabréf í Munnhörpuna. MILLJÓNASTI GESTUR HÖRPUNNAR NÚMER MILLJÓN Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Hallgrímur Jónasson og Halldór Guðmundsson glöð á svip í Hörpunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Rauði þráðurinn í gegnum sýn- inguna er okkar upplifun af umhverfinu sem við erum í,“ segir ljósmyndarinn Jóhannes Kjartans- son sem stendur að sýningunni You´reavision í Ósló ásamt kærustu sinni Hildi Hermannsdóttur og Ernu Einarsdóttur. Sýningin verður opnuð í júní og verður til húsa í Galleri Schaeffers Gate 5. Eigandinn, Mark Steiner, er mikill Íslandsað dáandi og þegar hann kynntist þre menningunum, sem öll eru búsett í Ósló, bað hann þau um að sjóða saman sýn- ingu fyrir sig. Sýningin fjallar um hvernig er að vera Íslendingur í Noregi og um þá tilhneigingu fólks að gera hluti til að passa inn í fyrir fram ákveðinn ramma. „Mark fannst við áhugaverð þar sem við skerum okkur úr hópnum. Við vorum alltaf á sömu bylgjulengd með hvað við vildum gera. Þar sem við erum útlendingar í útlöndum fórum við sjálfkrafa að bera saman hegðunarmunstur samfélagsins sem við ölumst upp í og það sem við búum í núna,“ segir Jóhannes, betur þekktur sem Jói, en hann og Hildur hafa verið búsett í Ósló í eitt ár og Erna í tæp þrjú. Plakat sýningarinnar hefur vakið athygli en þar má sjá þre- menningana án fata og málaða í rauðum, hvítum og bláum lit, sameigin legum fánalitum Noregs og Íslands. Þeim fannst ekki hægt að útfæra plakatið á myndrænni hátt. „Við erum nakin vegna þess að þannig erum við eins hlutlaus og hægt er að vera. Það er ekki hægt að sjá hvernig við klæðumst og þá er kannski erfiðara að setja okkur í þennan fyrir fram ákveðna ramma. Þar sem klæðnaður er ekki bara til að halda á okkur hita í nútímanum,“ segir Jói en nafn sýningarinnar lýsir hugsuninni á bak við hana ásamt því að vera vísun í sameigin- legt skemmtiefni beggja landa. -áp Pósa nakin fyrir sýningu í Ósló NAKIN Jói, Hildur og Erna setja upp sýn- ingu um hvernig er að vera Íslendingur í Noregi sem verður opnuð í Ósló í júní. Styrking • Jafnvægi • Fegurð CC Flax Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum aldri og einkennum breytingaskeiðs Heilbrigðari og grennri konur Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Fæst í apótekum, heilsubúðum og Krónunni. www.celsus.is Slegið í gegn í vinsældum, frábær árangur ! Mulin hörfræ – Lignans Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS Sunnudaga á Stöð 2 Golden Globe - Besti dramaþáttur ársins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.