Fréttablaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 6
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR6
VÍSINDI Um 1.500 manns komu
saman við Perluna í Öskjuhlíð
til að fylgjast með þvergöngu
Venusar á þriðjudagskvöld. Það
var Stjörnuskoðunarfélag Sel-
tjarnarness sem stóð fyrir upp-
ákomunni og gaf fólki tækifæri á
að skoða þvergönguna í sjón aukum
eða með myrkvagleraugum. Þá
söfnuðust félagsmenn stjörnuskoð-
unarfélagsins og aðrir áhugamenn
saman á Þingeyri, í Fjallabyggð,
á Akureyri, Húsavík og í Vest-
mannaeyjum. Fyrir norðan var
veður þó ekki hagstætt.
Þverganga er þegar reiki-
stjarna gengur þvert fyrir sólina
frá jörðu séð. Það er frekar sjald-
gæft og Venus gengur fyrir sólina
á 105,5 ára eða 121,5 ára fresti.
Hún gengur þá tvisvar þvert fyrir
sólu á átta árum, samkvæmt upp-
lýsingum af Stjörnufræðivefnum.
Síðast gekk Venus fyrir sólina svo
sæist í Reykjavík árið 2004, en
mun færri fylgdust með sjónar-
spilinu þá en nú.
Reykjavík var eina borgin í
heiminum þar sem sólin settist
og kom upp aftur á meðan þver-
gangan stóð yfir á þriðjudag, í
um sex klukkustundir. Hún hófst
þegar Venus snerti vinstri rönd
sólar klukkan 22.04 á þriðjudags-
kvöld og lauk klukkan 4.54 á mið-
vikudagsmorgun.
Þvergangan sást þó frá rúmum
helmingi jarðar, best frá vestan-
verðu Kyrrahafi og í austanverðri
Asíu og Ástralíu.
Þetta var síðasta þverganga
Venusar fyrir sólu á þessari öld.
Næsta þverganga verður árið 2117
og mun ekki sjást frá Íslandi, en
þverganga mun aftur sjást hér á
landi árið 2247.
thorunn@frettabladid.is
Um 1.500 manns fylgdust
með þvergöngu Venusar
Mikill fjöldi fólks kom saman til að fylgjast með þvergöngu Venusar fyrir sólina á þriðjudagskvöld og
aðfaranótt miðvikudags. Einstæður viðburður, því næsta þverganga sem sést frá Íslandi verður árið 2247.
hópkaup.is
HÓPKAUP.IS Í DAG
Kappakstur fyrir tvo í Go-Kart höllinni
Bíladagar þessu viku á Hópkaup.is
Go-kart er skemmtilegur kappakstur
fyrir 10 ára og eldri.
Upphitun, 7 mín. tímataka og
10 mín. kappakstur.
í krafti fjöldans
3.990 kr.
9.000 kr.
Verð
56%
Afsláttur
5.010 kr.
Afsláttur í kr.
GILDIR 24 TÍMA
SÓLSETUR Sólin sest á bak við Ljósufjöll á Snæfellsnesi. MYND/ANDRI ÓMARSSON
BIÐRÖÐ EFTIR SJÓNAUKA Stjörnuskoðunarfélagið var meðal
annars með þennan tíu tommu SkyWatcher Dobson-sjónauka
og myndaðist löng biðröð. MYND/ANDRI ÓMARSSON
FYLGST MEÐ Á ÞINGEYRI Stjörnuáhugafólk var ekki bara í
Reykjavík heldur fylgdist þessi hópur fólks á Þingeyri vel með
þvergöngu Venusar. MYND/JÓN SIGURÐSSON
Ætlar þú að heimsækja Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn í
sumar?
JÁ 34,6%
NEI 65,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú í veiði í sumar?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.
UMHVERFISMÁL Tvöfalt meira
kadmíum en leyfilegt er reyndist
vera í áburðinum Garðabláma hjá
Húsasmiðjunni. Þetta kom fram
við reglubundið eftirlit Matvæla-
stofnunar.
Niðurstöður efnagreiningar
bárust 4. þessa mánaðar, að því er
fram kemur á vef MAST. „Húsa-
smiðjan hefur tekið áburðinn úr
sölu í verslunum sínum í samræmi
við kröfur Matvæla stofnunar,“
segir þar jafnframt, en um 50 tonn
af þessum áburði voru flutt inn í
vor. „Þeir sem keypt hafa þennan
áburð geta skilað honum til Húsa-
smiðjunnar.“ - óká
Garðablámi innkallaður:
Kadmíum var
yfir mörkum
FERÐAÞJÓNUSTA Ríflega 45 þúsund
ferðamenn fóru frá Íslandi um
Leifsstöð í maímánuði, um átta
þúsundum fleiri en í maí 2011 sem
þó var metmánuður. Samkvæmt
tölum Ferðamálastofu hefur ferða-
mönnum um Leifsstöð fjölgað um
20,7 prósent frá áramótum miðað
við sama tíma í fyrra.
Þá hefur Hagstofan birt tölur
um gistinætur á hótelum landsins
í apríl sem reyndust um 120.700
samanborið við 109.300 í apríl
2011. Á fyrstu fjórum mánuðum
ársins voru gistinætur ríflega 26
prósentum fleiri en í fyrra. - mþl
Nýjar hagtölur birtar:
Ferðamönnum
fjölgar áfram
FERÐAMENN Erlendir ferðamenn hafa
verið ríflega fimmtungi fleiri það sem af
er ári en í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NOREGUR Anders Behring Breivik
neitaði að svara í dómsal í Ósló í
gær, þegar til stóð að spyrja hann
um tölvuleikinn World of War-
craft, sem hann spilaði í gríð og
erg meðan hann var að undirbúa
fjöldamorðin síðastliðið sumar.
Hann hefur heldur ekki viljað
ræða erfiðleika sína í barnæsku.
Bæði hann og móðir hans hafa
tekið til baka heimild sem þau
höfðu veitt geðlækni til að bera
vitni fyrir rétti um kynni sín af
fjölskyldunni þegar Breivik var
fjögurra ára. Geðlæknirinn átti
á þeim tíma viðtöl við fjölskyld-
una og mælti með því að Anders
Breivik yrði fengið annað heim-
ili vegna geðrænna vandamála,
sem væru byrjuð að þróast með
drengnum.
Norska dagblaðið Verdens
Gang hefur hins vegar birt seinni
skýrsluna, sem geðlæknar tóku
saman um andlegt ástand Brei-
viks í vor, áður en réttarhöldin
hófust.
Blaðið hafði áður birt fyrri
skýrsluna sem gerð var síðast-
liðið haust, en niðurstöður þess-
ara tveggja skýrslna stangast á.
- gb
Norska dagblaðið Verdens Gang hefur birt báðar skýrslur geðlækna um Breivik:
Vildi ekkert ræða tölvuleikina
ANDERS BEHRING BREIVIK Norski
fjöldamorðinginn fyrir rétti í Ósló í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn um
tvítugt voru handteknir á hátíð-
inni Sjóaranum síkáta í Grindavík
síðustu helgi. Mennirnir eru grun-
aðir um stórfelldar líkamsárásir.
Í tilkynningu frá Suðurnesja-
lögreglunni var annar maðurinn
grunaður um að hafa barið mann
á sextugsaldri með glerflösku.
Í hinu tilvikinu var átján ára
piltur stunginn í handlegginn með
brotinni flösku. Mennirnir voru
báðir fluttir á lögreglustöð eftir
atvikin, en þeim var sleppt eftir
yfirheyrslu. - sv
Grunaðir um alvarlegar árásir:
Einn barinn og
annar stunginn
HEILBRIGÐISMÁL Mikill munur er á fjölda barna í
ofþyngd eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu,
samkvæmt könnun sem gerð var fyrir nokkrum
árum á sextán þúsund börnum á grunnskólaaldri.
Þetta kom fram í þætti Ingu Lindar Karlsdóttur,
Stóru þjóðinni, á Stöð 2 í gærkvöldi.
Þannig voru 33 prósent barna í Fellaskóla yfir
kjörþyngd og 30 prósent í Hjallaskóla og Kársnes-
skóla í Kópavogi, en þrettán prósent í Fossvogs-,
Húsa- og Valhúsaskóla. 26 prósent barna í Hóla-
brekku- og Ártúnsskóla voru í yfirþyngd.
Inga Lind segir tölurnar frá árinu 2006, en
henni þyki ámælisvert að þær hafi ekki verið
notaðar og birtar opinberlega, en þær hafi aðeins
verið sýndar á einni ráðstefnu. „Mér finnst það
vera með ólíkindum, að þetta sé svona mikið
leyndarmál, vegna þess að á meðan þetta er ofan í
skúffu hjá einhverjum þá er ekkert verið að gera í
málinu. Unglingarnir okkar eru sérstakt áhyggju-
efni.“
Í tengslum við könnunina var félagsleg staða
foreldra einnig skoðuð, að því er fram kom í þætt-
inum í gær. „Í hverfunum þar sem tala of þungra
og of feitra barna er hæst, er fjöldi háskólamennt-
aðra foreldra um 11 til 22 prósent. Í hverfunum
þar sem minnstur hluti barnanna glímir við
ofþyngd og offitu eru um 30 til 34 prósent foreldr-
anna háskólamenntaðir.“ - þeb
Tölur um þyngd barna eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu sýna mismun:
Þriðjungur of feitur í Fellaskóla
FITA 33 prósent barna í Fellaskóla voru í yfirþyngd en þrettán
prósent í Fossvogs-, Húsa- og Valhúsaskóla. NORDICPHOTOS/GETTY
KJÖRKASSINN