Fréttablaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 10
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR10 Hollusta í hvelli! Gamli, góði hafragrauturinn í handhægu máli sem auðvelt er að grípa með sér hvert sem er. Þú bætir við heitu vatni og hann er tilbúinn á tveimur mínútum. 1 HRISTA 2 HELLA 3 HRÆRA 4 HINKRA 5 HRÆRA 2 E N N E M M / S ÍA / N M 5 2 3 2 3 Birgir Gilbertsson járnkarl veitir ráðgjöf Miðnætur- opnun í Smáralind í dag 20% afsláttur EVRÓPUMÁL „Við ætlum að rjúfa tengslin á milli bankakreppu og ríkisfjárlaga,“ sagði Michael Barnier, sem fer með innri markaðs mál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. „Við viljum ekki að skattgreiðendur þurfi að borga brúsann.“ Framkvæmdastjórnin kynnti í gær hugmyndir sínar um sam- hæfðar aðgerðir til bjargar bönkum sem lenda í fjárhags- vanda. Gert er ráð fyrir að stjórn- völd fái miklu víðtækari heimildir til að grípa inn í áður en í óefni stefnir og taka hreinlega að sér stjórn banka ef þeim verður ekki viðbjargandi nema með stuðningi úr ríkissjóði. Einnig er gert ráð fyrir að smærri bankar fái einfaldlega að fara á hausinn ef fall þeirra stofnar ekki bankakerfinu í heild í hættu, en hins vegar verði hlut hafar og aðrir ótryggðir lánardrottnar banka að taka á sig hluta tapsins ef ríkið neyðist til að grípa inn í. Drög framkvæmdastjórnarinnar að nýjum reglum verða rædd á næsta leiðtogafundi Evrópusam- bandsins, sem haldinn verður í lok mánaðarins. Einnig þarf samþykki Evrópu- þingsins, en jafnvel þótt bæði þingið og leiðtogaráðið samþykki þessar hugmyndir er ekki gert ráð fyrir að nýju reglurnar taki gildi fyrr en árið 2018. Þær koma því ekki að gagni á næstunni við að ráða fram úr brýnum vanda ríkja á borð við Spán, þar sem bankakerfið er sagt vera að riða til falls þessa dagana. Spænska stjórnin segir á hyggjur af bankakerfinu þar í landi þó vera óþarflega miklar. Að vísu séu þeir í alvarlegum vanda og fái ekki lengur lánsfé frá bönkum í öðrum Evrópulöndum, en Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur biðlað til leiðtoga Evrópusam- bandsins um aðstoð og hvetur að auki til þess að áformum um enn nánara fjárlagabandalag evru- ríkjanna verði hraðað. Búist er við því að á leiðtoga- fundi ESB eftir hálfan mánuð verði einnig ræddar hug myndir um svonefnt bankabandalag, sem væri partur af enn nánara fjárlagabandalagi en það sem leið togarnir samþykktu á fundi sínum fyrr í vor. Framkvæmdastjórnin og Seðla- banki Evrópusambandsins eru þessa dagana að leggja drög að slíku bankabandalagi, sem fæli meðal annars í sér sameiginlegt fjármálaeftirlit og sameiginlegan innistæðutryggingasjóð. gudsteinn@frettabladid.is Vilja ekki að skattgreiðend- ur þurfi að borga brúsann Framkvæmdastjórn ESB kynnti í gær hugmyndir um samhæfðar aðgerðir sínar til bjargar bönkum í vanda. Taka þó ekki gildi fyrr en 2018. Drög að nýju bankabandalagi lögð fyrir leiðtogafund ESB í lok júlí. JOSE MANUEL BARROSO OG ANGELA MERKEL Forseti framkvæmdastjórnar ESB og kanslari Þýskalands hafa haft margt að ræða undanfarið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP RANNSÓKNIR Íslenska söguþingið verður sett í kvöld og mun standa fram á sunnudag í húsakynnum Háskóla Íslands. Þetta er í fjórða sinn sem íslenska sögu- þingið er haldið, en síðast var það haldið árið 2006. Að því er segir í tilkynningu verða þar meðal annars kynntar niðurstöður í nýjum íslenskum rannsóknum í sagnfræði auk þess sem staða og framtíð íslenskra rann- sókna verður til umræðu. Dagskráin er mjög fjölbreytt þar sem yfir 90 fyrirlestrar verða í boði. Þá hefur Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands boðið þremur heimsþekktum sagnfræð ingum til þingsins, þeim Lindu Colley, prófessor við Princeton-háskóla, David Cannadine, prófessor við Prince ton-háskóla, og Geoff Eley, prófessor við háskólann í Michigan í Bandaríkjunum. Auk þess munu tveir erlendir fyrir- lesarar, þær Anne Katherine Isaacs, prófessor við háskólann í Písa, og Anne Deighton, prófessor við háskólann í Oxford, tala á opinni málstofu um Evrópumál, sem styrkt er af Evrópustofu. Þingið verður sett kl. 17 í dag, en nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna inni á heimasíðu Reykjavíkuraka- demíunnar, Akademia.is. - þj Fjölbreytt söguþing hefst í Háskóla Íslands í dag: Sagnfræðirannsóknir í brennidepli HÁSKÓLI ÍSLANDS Þrír heimsþekktir sagnfræðingar verða meðal þátttakenda á Söguþingi sem hefst í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Eftirspurn eftir hreinu vatni árið 2030 verður 40 prósent meiri en framboðið samkvæmt áætlunum Sameinuðu þjóðanna. Gríðarlegt magn vatns fer til spillis á hverjum degi. Sameinuðu Þjóðirnar efndu til samkeppni um bestu dagblaða- auglýsinguna til að vekja athygli á þessu vandamáli. Friðrik krón prins Dana afhenti sigurverð launin við sérstaka athöfn á þriðjudag. Sigurvegarinn er Ítalinn Daniele Gaspari með auglýsingu sem hann kallar „Drop by Drop – the Future we want“. Hún sýnir vatnsbyssu beint að barni og hefur yfirskriftina: „Vatnssóun drepur framtíðina“. Samkeppnin er haldin í aðdraganda Rio + 20, ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. „Ísland hefur mestu ferskvatns- birgðir allra Evrópulanda,“ segir Árni Snævarr upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum. „Það má ekki gleyma hversu mikið vatn hefur farið í að rækta inn- flutta kornið í brauðið okkar og kjötið.“ Auglýsing Gaspari mun birtast í fjölda dagblaða um allan heim. Fréttablaðið er í þeim hópi ásamt stórblöðum á borð við Le Monde, Guardian, Politiken, La Stampa og El Pais. - bþh Auglýsingasamkeppni SÞ um yfirvofandi vatnsskort: Sóun drepur framtíðina ÁHRIFARÍK Auglýsing Gasparis er áhrifarík og segir meira en þúsund orð um yfir- vofandi vanda. MYND/DANIELE GASPARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.