Fréttablaðið - 07.06.2012, Side 44

Fréttablaðið - 07.06.2012, Side 44
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR36 Tónlist ★★★★ ★ Amen séð í hugsýnum eftir Olivier Messiaen Anna Guðný Guðmundsdóttir og Tinna Þorsteinsdóttir léku á píanó. Listahátíð í Reykjavík í Norðurljósum í Hörpu 3. júní Söngur engla Tveggja turna tal er frasi sem er ættaður úr Hringadróttinssögu. Hann hefur verið notaður um forsetaframboðið. Líka mætti nota hann um tónleika tveggja píanó- leikara á Listahátíð á sunnudaginn var. Flygill er stórt og voldugt hljóðfæri. Tónleikar þar sem spilað er á tvo flygla eru eins konar tveggja turna tal. Þetta voru þær Anna Guðný Guð mundsdóttir og Tinna Þor- steinsdóttir. Þær fluttu stórvirki eftir Olivier Messiaen, Visions de l’Amen, eða Amen séð í hug- sýnum. Verkið var samið árið 1943. Messiaen var strangtrúaður kaþólikki, og fá tónskáld hafa náð að opinbera dýpri hliðar kaþólskrar trúar jafnvel með list sinni. Hljómarnir eru ótrúlega sérstakir, laglínurnar framandi en ávallt hrífandi fagrar. Tónlistin skapar einstaka stemningu sem maður finnur hvergi annars staðar. Nema kannski í kaþólskri kirkju! Orðið amen hefur nokkrar merk- ingar. Það getur verið staðfesting á áætlun eða trú, „verði svo“ og þar fram eftir götunum. Kaflar verksins eru sjö og í þeim eru þessar mismunandi merkingar tengdar við nokkrar hliðar kaþólskrar guðfræði. Í mjög einfölduðu máli eru þetta sköpunin, þjáning Jesú, englar, fuglasöngur, dýrlingar, dómurinn o.s.frv. Hlutverk píanóleikaranna tveggja er mismunandi. Rödd flygils A er skrautið og birtan, flóknar tónhendingar sem gera miklar tæknikröfur. Flygill B er grunnurinn, þráðurinn sem heldur öllu saman. Anna Guðný var í fyrrnefnda hlutverkinu, leikur hennar var skær og öruggur, tær og kraftmikill. Tinna sá um hina röddina, og hún spilaði prýðilega, af krafti og öryggi. Samspilið var gott, flyglarnir tveir hljómuðu oftar en ekki sem einn ofurflygill. Tónlistin er margbreytileg. Sköp- unin í upphafi er ekki neinn Mikli hvellur. Messiaen birtir manni sýn af veröld sem smám saman kemur upp úr djúpinu. Svo tekur við ofsafenginn dans pláneta og stjarna, og síðan gríðarlega sterkt tónmál sem gefur manni innsýn í þjáningu Jesú. Innhverfur, háleitur söngur dýrlinga og engla er sömuleiðis fegurri en orð fá lýst. Og fullkomnun sköpunarinnar er hrein flugeldasýning. Allt þetta var að finna í leik píanó- leikaranna. Túlkunin var sérlega fjölbreytileg, full af skáldlegri inn- sýn, dreymandi og andaktug þegar við átti, en gædd sprengikrafti á öðrum stöðum. Lokakaflinn var yfirgengilegur, stórglæsilegur endir á skemmtilegum tónleikum. Jónas Sen Niðurstaða: Magnaður flutningur á einu helsta píanóverki Oliviers Messiaen. Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, úthlutaði starfsstyrkjum til rúmlega 30 verkefna í gær. Þar af fengu 16 verkefni hæsta styrk, 600 þúsund krónur. Rúmlega 80 styrkumsóknir bárust. Hagþenkir veitir árlega styrki til rit- starfa. Fjórtán milljónir voru til ráð stöfunar í ár, auk 600 þúsund króna sem runnu til handritsgerðar fræðslu- og heimildar- mynda og runnu þær til þriggja verkefna. Verkefni styrkhafa í ár eru af ýmsum toga. Í hópi þeirra sem fengu hæsta styrk eru Árni Heimir Ingólfsson fyrir rit um tón- list í íslenskum handritum frá 1400 til 1800; Gunnar Þór Bjarnason fyrir bók um upp- kastið 1908; Jónína Einarsdóttir fyrir rann- sóknir á þeim sið að senda börn í sveit; Kristinn Schram fyrir bók um þjóðfræði rekaviðar og strandmenningar; Kristín Atladóttir fyrir hugverkarétt í stafrænu umhverfi og Sigríður Dögg Arnardóttir fyrir bók fyrir foreldra til að fræða börn sín um kynlíf. Ólafur Rastrick sagnfræðingur hlaut styrk að upphæð 450 þúsund krónur fyrir bók um íslenska menningu og samfélagslegt vald en Harpa Björnsdóttir fékk 350 þúsund krónur fyrir bók um Sölva Helgason. Fjórtán verkefni fengu styrk að upphæð 300 þúsund krónur, þar á meðal Jón Viðar Jónsson fyrir sögu íslenskrar leiklistar 1925 til 1960 og Kristín Þorleifsdóttir fyrir fræði- rit um gæði almenningsrýma í borgarum- hverfi. Hagþenkir veitir hátt í 15 milljónir króna í styrki Á FERÐINNI UM LANDIÐ 9. JÚNÍ Kótelettan á Selfossi 16. JÚNÍ Sólstöðuhátíð Víkinga á Fjörukránni í Hafnarfirði 23. JÚNÍ Hveragerði - Blóm í bæ 30. JÚNÍ Bylgjan á Bolungarvík 7. JÚLÍ Goslokahátíð í Vestmannaeyjum 14. JÚLÍ Bylgjuhátíð á Flúðum 21. JÚLÍ Húnavaka á Blönduósi BYLGJULESTIN Í SUMAR 28. JÚLÍ Síldardagar á Siglufirði og Franskir dagar á Fáskrúðsfirði 11. ÁGÚST Fiskidagurinn mikli á Dalvík 18. ÁGÚST Menningarnótt í Reykjavík ÆVINTÝRAEYJAN MEÐ HEMMA GUNN OG SVANSÍ Á laugardaginn verður Ævintýraeyjan með Hemma Gunn og Svansí á Bylgjunni. Boðið verður upp á frábær tónlistaratriði og uppákomur fyrir alla fjölskylduna. Vertu með Bylgjunni og Olís um helgina. BYLGJULESTIN verður á ferð og flugi út um allt land í sumar. Hlökkum til að sjá ykkur! VIÐ VERÐUM Á SELFOSSI UM HELGINA á bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhátíðinni Kótelettan RETRO STEFSON INGÓ VEÐURGUÐ STUÐLABANDIÐ FRÁ STYRKVEITINGUNNI Af rúmlega 80 umsóknum hlutu yfir 30 verkefni starfsstyrk frá Hagþenki í ár, þar af 16 hæsta styrk að upphæð 600 þúsund krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.