Fréttablaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 30
FÓLK|TÍSKA
■ EINFALT
Algengara verður að konur - eða menn - láti ekki einfalt naglalakk
duga til að lífga upp á fingurna. Fyrir þá sem vilja skreyta neglurnar
með mynstri er hægt að nota eftirfarandi aðferð: Grunnið neglurnar
með ljósum lit, til dæmis hvítum. Klippið gervitattú niður í stærð
naglanna (fæst meðal annars í Hagkaupum) og festið á neglurnar
þegar grunnurinn er þornaður. Lakkið svo eina umferð með glæru
naglalakki svo allt haldist á sínum stað.
FLÚRAÐAR NEGLUR
Sumarlegt skraut á neglurnar
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flottar
sumarvörur
fyrir
flottar konur
st. 40 – 58
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220
50-70% afsl.
af völdum sumarkjólum
Kjólasprengja
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
BIKINÍ Á STRÖND-
INNI Það þótti áræðið
hjá Zaragosa, borgar-
stjóra Benidorm, þegar
hann leyfði bikiní á
ströndinni árið 1952.
Íbúarnir eru stoltir yfir því að Beni-dorm var fyrsta ströndin á Spáni og víðar sem viðurkenndi þessi litlu tví-
skiptu sundföt. Það tók þó sex ár fyrir
bikiníið að komast til Spánar. Fyrsta
bikiníið kom nefnilega á markað 5. júlí
1946 og er því 66 ára.
Jafnvel þó að Franco væri við völd og
Spánverjar á þeim tíma strangtrúaðir
kaþólikkar gerðust yfirvöld á Benidorm
svo huguð að leyfa útlendum ferða-
mönnum að klæðast þessari tísku sem
þegar var orðin heimsfræg. Eftir að
bikiníið var leyft þar tóku aðrir við sér,
enda jókst ferðamannastraumur umtals-
vert frá Norður-Evrópu til Benidorm.
Ári síðar tók erkibiskupinn af Valencia
í taumana og vildi setja strangt bann
á litlu baðfötin. Hann leitaði til Franco
með áhyggjur sínar en einræðisherrann
sá að ekki var aftur snúið og samþykkti
lögin um bikiní á baðströndum Spánar.
Borgarstjóri Benidorm, Pedros
Zaragosa, hafði séð í tískublöðum að
tvískipt baðföt væru það heitasta í
tískuheiminum og hann þótti framúr-
stefnulegur. Á Spáni voru breskar konur
sektaðar um 40 þúsund peseta ef þær
sátu á strandbar klæddar bikiní. Það var
ekki vinsælt hjá breskum ferðamönnum
sem þá flykktust til Spánar. Zaragosa
varð frægur fyrir að leyfa bikiníið en
ekki síður fyrir að breyta 1700 manna
fiskiþorpi í 70 þúsund manna bæjar-
félag þar sem skýjakljúfar minna á Man-
hattan. ■ elin@365.is
BIKINÍ Í SEXTÍU ÁR
Á BENIDORM
AFMÆLI Íbúar á Benidorm á Spáni fagna því um þessar mundir að sextíu ár
eru frá því að bikiní var leyft á ströndinni.
LITLA MANHATTAN Zaragosa breytti
Benidorm úr litlu fiskiþorpi í einn vin-
sælasta ferðamannastað á Spáni þar sem
skýjakljúfar minna á Manhattan.