Fréttablaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 52
44 7. júní 2012 FIMMTUDAGUR
Gary Barlow er sannfærður um
að hann og félagar hans í stráka-
bandinu Take That verði vinir að
eilífu, jafnvel þótt þeir muni ekki
alltaf starfa saman.
Með honum í bandinu eru Mark
Owen, Howard Donald, Jason
Orange og Robbie Williams.
Hljómsveitin hætti árið 1996 en
sneri aftur 2005 við góðar undir-
tektir. „Ég spjalla við strákana
svona einu sinni í viku, þar á
meðal Rob. Já, við hættum að
talast við en hann er öðruvísi
náungi núna,“ sagði Barlow, sem
er höfundur lagsins Back For
Good. „Við höfum reyndar allir
breyst og vonandi verðum við
vinir að eilífu.“
Verða alltaf
góðir vinir
Hljómsveitin múm hefur sent frá
sér plötuna Early Birds. Það er
þýska fyrirtækið Morr Music sem
gefur hana út bæði á geisladiski og
tvöfaldri vínylplötu.
Um er að ræða safn laga sem
voru samin undir lok tuttugustu
aldarinnar en komu ekki út á
breiðskífum sveitarinnar. Lögin
urðu öll til áður en sú fyrsta,
Yesterday Was Dramatic – Today
is OK, kom út. Þarna eru týnd lög,
hugmyndir, umhverfisupptökur,
lög úr leikgerð leikritsins Bláa
hnattarins og fleira í einum pakka.
Á fimmtán ára ferli sínum hefur
múm spilað víða um heim, gefið út
sex breiðskífur og fjölmargar smá-
skífur og stuttskífur. Um þessar
mundir vinnur hljómsveitin að
sinni sjöundu breiðskífu og er hún
væntanleg á næsta ári.
Lagasafn frá múm
MÚM Hljómsveitin múm hefur sent frá sér plötuna Early Birds. MYND/JAMES KENDALL
VINIR Gary Barlow og
Robbie Williams eru orðnir
góðir vinir aftur.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 www.bioparadis.is / midi.is Hluti af Europa Cinemas
FIMMTUDAGUR: SUMARTÍÐ (SUMMER HOURS) 17:50,
20:00, 22:10 TYRANNOSAUR 20:00, 22:00 I AM SLAVE
18:00 CORIOLANUS 20:00, 22:10 JANE EYRE 17:30
IRON SKY 20:00 SVARTUR Á LEIK (ENG. SUBS) 17:40,
22:00
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
SAMI AFSLÁTTUR FYRIR ÖRYRKJA OG ELDRI BORGARA.
“Létt og
ánægjuleg.”
-The Guardian
“Einstök mynd.”
-The New York Times
13. JÚNÍ: UNG (Goodbye Young Love) eftir Mia Hansen-Löve!ALLT Á SÉR SÍNA TÍÐ
SUMARTÍÐ
JULIETTE
BINOCHE
í L’Heure d’été
eftir Olivier
Assayas
Moonrise
Kingdom
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
PROMETHEUS KL. 5.50 - 8 - 10.15 16
SNOW WHITE AND THE... KL. 8 - 10.15 12
MIB 3 3D KL. 6 10
SLAY MASTERS KL. 6
PROMETHEUS 3D KL. 6 - 9 16
MOONRISE KINGDOM KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 9 12
MIB 3 3D KL. 9 10
GRIMMD:SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 10
MBL
PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.40 16
PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 16
PROMETHEUS 2D KL. 5.20 - 8 - 10.40 16
SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 8 - 10.40 12
MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
MIB 3 2D KL. 5.30 10
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 L
LEITIN AÐ UPPRUNA OKKAR GÆTI LEITT TIL ENDALOKANNA
„SCOTT ... TEKST AÐ SKAPA RAFMAGNAÐA
STEMNINGU Í PROMETHEUS“
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS
EGILSHÖLL
16
16
V I P
12
12
12
12
12
12
L
10
10
ÁLFABAKKA
ÞÉTRYGGÐU R MIÐA Á
12
L
10
AKUREYRI
16
16
16
16
16
YFIR 50 ÞÚS.
BÍÓGESTIR !
MÖGNUÐ SPENNUMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA
V FOR VENDETTA
JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE
EMPIRE
EMPIRE
JOHNNY DEPP
FRÁ MEISTARA TIM BURTON
KEFLAVÍK
16
16
16
16
KRINGLUNNI
12
12
10
Total film Variety
„Scott ... tekst að skapa rafmagnaða
stemningu í Prometheus“
-V.J.V., Svarthofdi.is
PROMETHEUS 3D 4, 7, 10(P)
SNOW WHITE 4, 7, 10
MEN IN BLACK 3 3D 5.45, 8
THE FIVE-YEAR ENGAGEMENT 10.15
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
POWERSÝNING
KL. 10
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
5%
Hafdís Huld sendi á dögun-
um frá sér plötuna Vöggu-
vísur sem er að hennar sögn
ekki beint barnaplata.
„Barnið hlýtur að kannast vel við
þessa tónlist þegar það fæðist,“
segir söngkonan Hafdís Huld
Þrastardóttir sem gaf út geisla-
diskinn Vögguvísur í síðustu viku
og á von á barni eftir mánuð.
„Þetta er ekki beint barnaplata.
Það er enginn sérstakur gestur og
allir að klappa í takt. Þetta er mjúk
plata sem hentar fólki á öllum aldri
en efnistökin eru mjög barnvæn.“
Hafdís leitaði til margra for-
eldra við lagavalið og fann út
hvaða lög væru ómissandi. Úr varð
fimmtán laga plata með nokkrum
íslenskum þjóðlögum í bland við
frumsamdar eða erlendar vöggu-
vísur með íslenskum textum eftir
Hafdísi.
„Ég bætti við uppáhalds erlendu
vögguvísunum mínum því barnið
mitt verður hálfútlent og kannski
langaði mig að hafa einhverja
tengingu við það,“ segir Hafdís en
plötuna vann hún í samvinnu við
mann sinn Alisdair Wright í stúdíói
þeirra hjóna í Mosfellsdalnum.
„Sem dæmi endurútsettum við
og sömdum nýjan texta við lagið
You Are My Sunshine sem er
mikið notað sem vögguvísa úti
en hefur aðallega verið sungið af
skátum hér heima.“
Hafdís hélt mjög frjálslega tón-
leika í Grasagarðinum annan í
hvítasunnu og voru þeir vel sóttir
af börnum og fullorðnum sem
hlýddu á vísurnar úti í sólinni.
Því miður hefur hún þó frestað
öllu frekara tónleikahaldi vegna
erfingjans tilvonandi.
„Við vonumst samt til þess að
ferðast í kringum landið og heim-
sækja mömmumorgna í haust.“
hallfridur@frettabladid.is
Fékk hjálp frá mörgum
foreldrum við lagavalið
ÓLÉTT Hafdís Huld hefur nýtt meðgönguna til þess að syngja vögguvísur sem hún mun eflaust halda áfram að syngja næstu árin.