Fréttablaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 29
Þrátt fyrir að aðaláhugamál lög-fræðinemans Önnu Gyðu Sigur-gísladóttur séu mannréttindi þá
hefur hún einnig áhuga á fötum. „Ég
hef áhuga á fötum en ég veit ekki hvort
ég hafi áhuga á tísku þar sem ég fylgist
ekki beinlínis með því sem gerist í
tískuheiminum.“
Spurð um fatastíl segist Anna Gyða
ekki trú einum stíl heldur taka þá í
syrpum. „Stundum líða margar vikur
þar sem mig langar bara til að vera í
rifnum málningarbuxum og stutterma-
bol og síðan allt í einu tekur við tímabil
þar sem ég vil bara vera í fínum kjólum
og á hælum.“ Hún segist ekki versla
mikið á Íslandi en ef svo ber við fer
hún oftast í Topshop. Nýlega tók hún
þó ástfóstri við verslunina Nostalgíu á
Laugaveginum. „Þar er ótrúlega mikið
af fallegum flíkum á sanngjörnu verði,“
segir Anna Gyða og bætir við að hún sé
mikill fatasafnari og hendi helst engu
sem hún kaupir sér. „Enda er ég aftur
farin að klæðast fatnaði sem ég notaði
fyrir sjö árum.“
Anna Gyða fékk fyrir stuttu boð um
að taka þátt í verkefni í Brussel á vegum
samtaka sem kalla sig Global Change-
makers. Þar verður hún í tíu daga
ásamt fjórtán öðrum ungmennum frá
Evrópu og fimmtán frá Afríku að vinna
að ýmsum samfélagsverkefnum, deila
reynslu og hugmyndum. Þegar hún
kemur heim heldur verkefnið svo áfram
og hún vonast til að geta miðlað reynslu
sinni og haft áhrif á meðvitund fólks hér
á landi um mannréttindi. Nánar má lesa
um verkefnið á vefsíðunni www.global-
changemakers.net. ■ halla@365.is
MEÐ ÁHUGA Á FÖTUM
OG MANNRÉTTINDUM
MEÐVITAÐUR LÖGFRÆÐINEMI Anna Gyða Sigurgísladóttir lauk nýverið
fyrsta ári í lögfræði í Háskóla Íslands. Hún stefnir á framhaldsnám erlendis í
framtíðinni og vonast til að geta nýtt námið í baráttunni fyrir mannréttindum.
TEKUR TÍMABIL
Anna Gyða er óhrædd
við að breyta reglulega
um fatastíl.
MYND/ANTON
SUNDBOLIR Í TÍSKU
Sundbolir eru að ryðja sér til rúms á ný þótt bikiníin
séu langt frá því að vera á undanhaldi. Þessi hressi-
legi sundbolur var til sýnis á „We Are Handsome“,
tískuvikunni í Sydney á dögunum, en þar sýndu 75
ástralskir og asískir hönnuðir vor- og sumarlínur sínar.
HENDIR
ENGU
„Ég er mikill fata-
safnari og hendi
helst engu enda
er ég aftur farin
að klæðast fatnaði
sem ég notaði fyrir
sjö árum.“
teg. Summer Sky - saumlaus og vel fylltur
í A,B,C,D skálum á kr. 8.680,-
Súperflottur
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Gerið gæða- og
verðsamanburð
Sofðu vel - heilsunnar vegna
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
*3,5% lántökugjald
VORTILBOÐ Á ÖLLUM STILLANLEGUM HEILSURÚMUM
Með okkar bestu heilsudýnu.
Verð frá kr. 339.900 á hjónarúmi.
MIKIÐ ÚRVAL AF
SVEFNSÓFUM
12 má
naða
vaxtal
ausar
greiðs
lur*
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
NoseBuddy
nefskolunarkannan
Mælt er með nefskolun til að draga úr líkum á kvefi og ofnæmi
– og til að auka skýrleika í hugsun!