Fréttablaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 12
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR12 12 hagur heimilanna Þjófar brjótast inn jafnt að degi sem nóttu. Með ein- földum aðgerðum er hægt að draga úr líkunum á því að þeir geti látið greipar sópa um heimilið. Ekki er skynsamlegt að tilkynna á samskiptasíðum hvenær allir í fjölskyldunni eru að heiman. Góðir grannar geta veitt mikilvæga aðstoð. Hörður Jóhannesson aðstoðarlög- reglustjóri segir allan gang á því hvenær brotist sé inn. „Það fer alveg eftir því hverjir eru á ferð á hverjum tíma. Hins vegar er ástæðulaust að auka áhættuna með því að hafa allt opið þegar farið er að heiman.“ Hann leggur áherslu á að verðmæti séu ekki höfð á glám- bekk, hvorki inni á heimilum né í bílum. Innbrotsþjófar reyna oft að kom- ast leiðar sinnar í gegnum garðinn og þess vegna þurfa gluggar og dyr þeim megin að vera læst innan frá með krækjum. Þjófar leita í skápum og skúffum í öllum her- bergjum og jafnvel í þvottakörfum telji þeir sig hafa nægan tíma til leitarinnar. Verðmæta skartgripi og mikilvæg skjöl ætti þess vegna að geyma í bankahólfi. Þau verð- mæti sem höfð eru heima ætti að skrá og mynda og geyma listann og myndirnar í bankahólfi eða á öðrum öruggum stað utan heim- ilisins. Auk þess að hafa auga með dularfullum mannaferðum geta nágrannar, sem eiga fleiri en einn bíl, hjálpast að með því að leggja í heimkeyrsluna hjá þeim sem fer í sumarfrí. Það má jafnvel biðja nágrannana um að nota rusla- tunnuna til þess að tóm tunna gefi ekki þjófum vísbendingu um að húsráðendur séu að heiman. Skynsamlegt er að fá einhvern til þess að fjarlægja póst frá bréfa- lúgunni og slá grasið. Það vekur grunsemdir séu ljós látin loga allan sólarhringinn. Með tímarofa er hins vegar hægt að stjórna því hvenær ljós eru kveikt og slökkt. Ekki er óalgengt að menn greini frá því á Facebook að öll fjöl- skyldan sé á leið í sumarfrí. Slíkar tilkynningar geta borist til þeirra sem ekki ættu að frétta af þeim. Góð þjófavörn er auðvitað að bjóða þeim sem maður treystir að búa í íbúðinni þegar maður er að heiman. ibs@frettabladid.is Komið í veg fyrir innbrot í sumarfríinu Í SUMARFRÍI Heimkoma úr góðu sumarfríi er óskemmtileg fyrir húsráðendur þegar þeir komast að því að brotist hefur verið inn á heimili þeirra. Verslanir Tiger vara við fylgihlutum með trékubbum í fötu með vörunúmerinu 1701073, að því er segir á vef Neytendastofu. Kubbarnir eru í poka ofan í fötunni og er pokinn bundinn saman. Tiger varar við því að bandið og lokunin/klemman á pokanum geti verið varasöm fyrir lítil börn og valdið hættu á köfnun. Tiger biður þá sem hafa keypt þessa vöru að fjarlægja pokann strax og setja kubbana beint í fötuna eða skila vörunni og fá endurgreitt. ■ Leikföng Verslanir Tiger vara við fylgihlutum með leikfangi Ef sólarvarnarkremið frá því í fyrra hefur skipt um lit þarf það ekki að þýða að það sé ónothæft. Þetta er haft eftir norskum húð- sjúkdómalækni á vef norska ríkisútvarpsins. Læknirinn, Bjørn E. Bondevik, tekur það hins vegar fram að ef vond lykt er komin af sólar- varnarkreminu sé það ónothæft því að þá sé fitan í því yfirleitt orðin þrá. Hafi kremið skilið sig veitir það ekki jafna vörn og þá þarf að fleygja því. Brenni maður í sólinni þrátt fyrir notkun sólarvarnarkrems sem maður telur ekki of gamalt er ástæða til þess að kaupa nýtt. ■ Húðvörur Kanna þarf hvort gamalt sólarvarnarkrem er nothæft HÆKKUN HEFUR orðið á verði brauðs og kornvara frá maímánuði 2008 samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands.47% PI PA R\ TB W A \ S ÍA 1 21 55 5 Moderators: Professor Guðmundur Þorgeirsson and Professor Tómas Guðbjartsson 10.00–10.10 Welcome. Dr. Kristín Ingólfsdóttir, Rector of the University of Iceland. 10.10–10.20 Address by the Minister of Education, Science and Culture, Katrín Jakobsdóttir. 10.20–10.35 The first recipient of a tissue engineered synthetic tracheal transplant. Case presentation and follow-up. Tómas Guðbjartsson, MD, PhD, Professor, Department of Surgery, Faculty of Medicine University of Iceland. 10.35–11.15 Lessons learned from stem-cell based airway transplantation. Paolo Macchiarini, MD, PhD, Professor, Advanced Center of Translational Regenerative Medicine (ACTREM), Karolinska Institutet, Division of Ear, Nose, and Throat (CLINTEC), University Hospital, Stockholm, Sweden. 11.15–11.35 Coffee break. 11.35–11.50 The epithelial stem cell. Role in regeneration and cancer. Þórarinn Guðjónsson, PhD, Associate Professor, Department of Anatomy & Stem Cell Research Unit, Faculty of Medicine, University of Iceland. 11.50–12.05 Modeling human airway development in vitro. Magnús K. Magnússon, MD, Professor, Department of Pharmacology and Toxicology, Stem Cell Research Unit, Faculty of Medicine, University of Iceland. 12.05–12.25 Panel discussions. Stem Cells and Surgery Symposium hosted by the University of Iceland on June 9th at 10AM – The Main Aula of the University of Iceland Rúgbrauð er ríkt af næringarefnum og trefjum sem metta vel og lengi, að því er danski læknirinn Bente Klarlund segir á vef danska blaðsins Politiken. Læknir- inn vísar í rannsókn sem leiddi í ljós að rúgur mettar betur en hveiti. Þátttakendur í rannsókninni sem borðuðu rúgbrauð í morgunmat borðuðu 16 prósentum minna af mat yfir daginn en þeir sem ekki gæddu sér á rúgbrauði á morgnana. Á vefnum er greint frá rannsóknum sem gáfu til kynna að dagleg neysla rúgbrauðs verndaði gegn krabbameini í blöðruhálskirtli. Jafnframt er greint frá því að aðrar rannsóknir hafi gefið til kynna að rúgbrauð væri vörn gegn brjóstakrabbameini. ■ Heilsa Rúgbrauð á morgnana dregur úr áti yfir daginn GÓÐ HÚSRÁÐ Veljið box með glugga Hvernig geyma á matarafganga Fátt er betra en að sleppa við eldamennsku kvöldsins og gæða sér á afgöngum. Afgangar vilja þó gleymast inn í ísskáp. Gott ráð er því að geyma afganga í íláti með glæru loki, því þannig blasa krásirnar frekar við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.