Fréttablaðið - 07.06.2012, Qupperneq 18
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR18
Umsjón: nánar á visir.is
MILLJARÐAR KRÓNA var afgangur af vöru-
skiptum á fyrstu fimm mánuðum ársins.28,2
Litlir tappar
eru varasamir
... fyrir litla tappa
Ung börn, sérstaklega yngri en 3 ára, eiga það til að setja hluti
upp í munninn. Skrúftappi á Fjörmjólk, D-vítamínbættri mjólk og á
Stoðmjólk er af þeirri stærð að hann gæti verið varasamur
ungum börnum.
Við viljum biðja forráðamenn smábarna að hafa þetta hugfast.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
52
46
4
Áhætta íslenska fjármálakerfisins
hefur minnkað frá því í fyrra.
Helstu áhættuþættir sem steðja að
því eru losun hafta, staða alþjóð-
legs efnahagsástands, yfirvofandi
endurfjármögnun erlendra skulda
annarra aðila en ríkissjóðs, laga-
áhætta vegna gengislánadóma
og hugsanlega áhrif stjórnmála-
ákvarðana á fjármálafyrirtækin
og lánasöfn þeirra. Þetta kom fram
í máli Más Guðmundssonar seðla-
bankastjóra þegar Fjármálastöðug-
leiki 2012 fyrra hefti, sem Seðla-
bankinn gefur út, var kynnt í gær.
Sigríður Benediktsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjármálastöðug-
leikasviðs Seðlabankans, kynnti
helstu niðurstöður ritsins á kynn-
ingarfundi í gær. Í máli hennar
kom fram að hagvöxtur, kaup-
máttur ráðstöfunartekna, einka-
neysla og atvinna hefðu aukist
í fyrra á sama tíma og atvinnu-
leysi dróst saman. „Þetta eru allt
jákvæð teikn og má segja að efna-
hagsbatinn sé hafinn, en ekki að
hefjast,“ sagði Sigríður. Hins vegar
hafi verðbólguhorfur versnað og
skuldsetning heimila og fyrirtækja
sé enn mikil.
Sigríður benti einnig á að van-
skilahlutföll séu mjög há hérlendis,
þó þau hafi dregist töluvert saman
frá árslokum 2009.
Skuldir heimila hafa minnkað
um átta prósent af landsfram-
leiðslu frá lokum fyrsta ársfjórð-
ungs 2011. Þrátt fyrir að lang-
stærstur hluti lána landsmanna sé
verðtryggður kemur fram í ritinu
að hlutur óverðtryggðra lána hafi
aukist verulega. Þau eru nú um
15 prósent allra lána sem heimili
landsins hafa tekið en voru um
sex prósent þeirra í upphafi árs
2009. Þá eru gengisbundin lán
nær horfin, enda annaðhvort búið
að dæma flest þeirra ólögmæt eða
breyta þeim yfir í annars konar
lán. Sigríður sagði að búið væri að
afgreiða nánast alla þá sem eiga
rétt á að fara í gegnum 110 prósent
leiðina og einungis fjórðungur sé
eftir af þeim sem eiga rétt á sér-
tækri skuldaaðlögun. Auk þess tvö-
faldaðist fjöldi þeirra mála sem er
lokið hjá Umboðsmanni skuldara
frá áramótum og fram í apríl.
Skuldir íslenskra heimila sem
hlutfall af ráðstöfunartekjum eru
þó enn með því hæsta sem gerist í
heiminum. Það hlutfall lækkaði þó
í fyrra og Seðlabankinn gerir ráð
fyrir því að það lækki enn frekar
í ár vegna hækkandi ráðstöfunar-
tekna.
Skuldir fyrirtækja lækkuðu um
30 prósent á milli ára og afskriftir
af skuldum þeirra hafa aukist gríð-
arlega frá árslokum 2010. Sigríður
sagði íslensk fyrirtæki þó enn mun
skuldsettari en gerist í löndunum í
kringum okkur. thordur@frettabladid.is
Efnahagsbati
og áhætta
dregst saman
Áhætta fjármálakerfisins að minnka. Enn stórir
áhættuþættir sem geta haft neikvæð áhrif. Seðla-
bankinn kynnti Fjármálastöðugleikarit sitt í gær.
SEÐLABANKASTJÓRI Már Guðmundsson sagði áhættu fjármálakerfisins í heild hafa
minnkað frá því á sama tíma á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Samkvæmt gildandi lögum á að afnema fjármagnshöft á Íslandi í lok árs
2013. Í Fjármálastöðugleikaritinu segir að ein helsta hindrun í vegi þess
að hægt sé að afnema þau skjótt séu hinar svokölluðu aflandskrónur.
Seðlabankinn áætlar að þær nemi um 425 milljörðum króna um þessar
mundir. Seðlabankinn áætlar að útgreiðslur úr þrotabúum föllnu bankanna
til erlendra aðila í íslenskum krónum geti aukið þá stöðu um 190 milljarða
króna. Miðað við það næmi stofn aflandskróna um 615 milljörðum króna.
Til viðbótar er óvíst með hvaða hætti verður greitt fyrir 170 milljarða króna
hlut erlendra kröfuhafa í nýju bönkunum þremur. Síðan höftin voru sett á
hafa 182 milljarðar króna af aflandskrónum skipt um hendur. Þar af voru
120 milljarðar króna hluti af hinu svokallaða Avens-samkomulagi. Seðla-
bankinn hefur auk þess, með gjaldeyrisútboðum og beinum viðskiptum,
haft milligöngu um að 62 milljarðar aflandskróna hafa skipt um hendur. Már
Guðmundsson sagði bankann ekki hafa miklar áhyggjur af því að þessar
leiðir væru ekki að skila nægilega miklum árangri. „Við erum ekki að fara á
taugum yfir því hvernig þau [útboðin] eru að ganga.“
Ekki að fara á taugum vegna útboða
Í starfskjarastefnu Íslandsbanka, sem var samþykkt á síðasta
aðalfundi bankans, er liður sem veitir honum heimild til
að setja upp árangurskerfi fyrir starfsmenn sína. Það kerfi
er ekki eiginlegt kaupaukakerfi þar sem beinn eignarhlutur
í bankanum myndar stofn að kaupaukakerfi, líkt og er hjá
Landsbankanum, en það gerir Íslandsbanka kleift að tengja
greiðslur til starfsmanna sinna við starfsárangur þeirra.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram að Íslandsbanki væri ekki
með neitt kaupaukakerfi á teikniborðinu.
Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi bankans,
segir það rétt að bankinn sé ekki með sambærilegt
kaupaukakerfi í pípunum og Landsbankinn. „Hins vegar var
starfskjarastefna bankans samþykkt á síðasta aðalfundi en
undir henni er liður sem veitir bankanum heimild til að setja
upp árangurskerfi. Það kerfi er að fullu í samræmi við reglur
sem FME hefur sett í þeim málum en enn sem komið er
hafa engar ákvarðanir verið teknar um innleiðingu slíks kerfis
hjá bankanum.“ -þsj
Starfskjarastefna Íslandsbanka
heimilar bónusgreiðslur