Fréttablaðið - 07.06.2012, Side 28
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR28
timamot@frettabladid.is
„Það má segja að þetta sé drauma-
verkefni fyrir mig að takast á við.
Bæði vegna þess að ég er nýútskrifuð
úr myndlist í Listaháskólanum og líka
því ég er frá Rifi og ólst þar upp. Þess
vegna finnst mér frábært að geta boðið
listamönnum og gestum á staðinn til
að vinna að verkefnum og njóta þeirra.
Það verður gaman að sjá hvernig fólk
tekur í þetta,“ segir Helga Páley Frið-
þjófsdóttir, stjórnandi farandlistahá-
tíðarinnar Ærings sem í ár fer fram á
Rifi í Snæfellsbæ.
Þetta er í fyrsta sinn sem Helga
Lárey stjórnar hátíðinni, en Æring-
ur var fyrst haldinn á Stöðvarfirði
sumarið 2010 og árið síðar í Bolungar-
vík. Efnt var til þessarar farand-
hátíðar af ungu listafólki sem langaði
til að skapa og sýna myndlist utan
höfuðborgarsvæðisins. Eitt af ein-
kennum hátíðarinnar hefur verið vilji
stjórnenda til þess að lista mennirnir
sem sýna hverju sinni vinni sem
mest á staðnum sem valinn er og
verkin tengist því bænum sem hýsir
hátíðina. Æringur hlaut nýlega tvo
styrki, frá Menningar sjóði Vestur-
lands og Kultur kontakt Nord, eða Nor-
rænu menningar gáttinni, sem gerir
aðstandendum hægara um vik að bjóða
erlendum listamönnum að taka þátt í
hátíðinni og stendur meðal annars
straum af flugferðum og uppihaldi.
„Í ár taka til dæmis finnski danshöf-
undurinn Simo Kellokumpu og franski
dansarinn Vincent Roumagnac þátt.
Þeir hafa verið að ferðast um heim-
inn og vinna að verki út frá staðsetn-
ingarpunktum og einn þessara punkta
er einmitt Snæfellsnes, svo þeir voru
fljótir að sækja um að vera með á
hátíðinni þegar þeir fréttu að eitthvað
væri að gerast þar. En annars er þetta
virkilega fjölbreyttur hópur af fólki,
myndlistarfólk, nemar úr Fræði og
framkvæmd í Listaháskólanum, forn-
leifafræðingur og ýmsir fleiri,“ segir
Helga Lárey, en í ár var yfirlýst mark-
mið hátíðarinnar að leiða saman mynd-
listarfólk og sviðslistafólk með það að
markmiði að búa til skemmtilegar og
lifandi sýningar. Æringur er haldinn
í samstarfi við Snæfellsbæ og Frysti-
klefann á Rifi, leikhús sem var stofnað
árið 2010 af Kára Viðarssyni.
Opnun Ærings fer fram þann 7. júlí
næstkomandi og stendur hátíðin yfir út
júlímánuð. Listamennina fer að drífa
að á Rifi í kringum 27. júní og ljóst að
Æringur mun lífga upp á bæjarlífið í
nokkrar vikur í sumar.
kjartan@frettabladid.is
HELGA PÁLEY FRIÐÞJÓFSDÓTTIR: STJÓRNAR FARANDLISTAHÁTÍÐ Á RIFI
Æringur er draumaverkefnið
Þennan dag árið 1954 kynnti Dwight Eisenhower
Bandaríkjaforseti til sögunnar dómínókenninguna
svokölluðu, sem gekk út á að ef kommúnistar
kæmust til valda í Indókína (síðar Víetnam)
myndu önnur ríki í Suðaustur-Asíu einnig falla
þeim í skaut. Kenningin átti eftir að verða pól-
stjarnan í bandarískri utanríkisstefnu næsta áratug.
Árið 1954 var ljóst að Frakkar gætu ekki endur-
heimt nýlendustjórn sína í Indókína, sem þeir
höfðu tapað í hendur Japana í seinni heims-
styrjöld. Víetnömskum þjóðernissinnum hafði vaxið
ásmegin undir handleiðslu Ho Chi Minh og voru
á barmi þess að vinna sigur á Frökkum. Banda-
ríkjamenn óttuðust afleiðingar þess ef kommúnistar
kæmust til valda og til að ná hylli almennings hélt
Eisenhower frægan blaðamannfund hinn 7. júní
árið 1954. Þar talaði hann um dómínókenninguna
í fyrsta sinn og sagði að hvert ríkið á fætur öðru í
Suðaustur-Asíu myndi falla eins og dómínókubbar
kommúnistum í skaut.
ÞETTA GERÐIST: 7. JÚNÍ 1954
Eisenhower setur fram dómínókenninguna
ÆRINGI Helga Páley Friðþjófsdóttir stýrir farandlistahátíðinni Æringi sem hefst á Rifi í Snæ-
fellsbæ þann 7. júlí næstkomandi.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KJARTANS ÞÓRS INGVARSSONAR
Ásbraut 3, Kópavogi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjartadeildar
14E og blóðskilunardeildar Landspítalans
við Hringbraut fyrir hlýhug og góða umönnun.
Bjarndís Helgadóttir
Helga Kjartansdóttir Ármann Snjólfsson
Yngvi Þór Kjartansson Vedrana Kjartansson
Héðinn Kjartansson Margrét Þráinsdóttir
Kolbrún Kjartansdóttir Friðþjófur Í. Sigurðsson
Ingveldur Kjartansdóttir Kolbeinn Reginsson
afa- og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
HLÍF ÓLAFSDÓTTIR
Bollagötu 3, Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 30. maí verður
jarðsungin frá Háteigskirkju í dag,
fimmtudaginn 7. júní kl 15.00.
Magnús Hallgrímsson
Hörður Magnússon Hallgrímur Magnússon
Linda Björk Þórðardóttir Elín Sig. Sigurðardóttir
Óskar Magnús Harðarson Snædís Hallgrímsdóttir
Ásta Hlíf Harðardóttir Magnús Snær Hallgrímsson
Halldís Ylfa Hallgrímsdóttir
Tvöfalt
áttræðisafmæli
Hjónin Ása Árnadóttir
og Guðlaugur Atlason
Egilsgötu 11, Vogum,
eru áttræð um þessar mundir.
Af því tilefni hafa þau opið hús í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla,
Vogum, laugardaginn 9. júní frá kl. 15.00 – 18.00 og vonast
til að sjá sem flesta af fjölskyldumeðlimum, frændfólki og
vinum. Afmælisg jafir eru vinsamlegast afþakkaðar en
söfnunarkassi fyrir „Ljósið“ verður á staðnum.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA FRIÐRIKSDÓTTIR
(DÚDDA)
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 8. júní klukkan 13.30.
Anna Lilja Sigurðardóttir
Inga Hrönn Sigurðardóttir Eiríkur Óskarsson
barnabörn og langömmubörn.
Skúli mennski heldur tón-
leika á Café Rosenberg í
kvöld, fimmtudaginn 7. júní.
Skúli kemur fram með
hljómsveit sem er skip-
uð þeim Eiríki Rafni Stef-
ánssyni á trompet, Hall-
dóri Smárasyni á píanó,
Kristni Gauta Einarssyni
á trommur og Valdimar
Olgeirssyni á bassa, en
sjálfur leikur Skúli á gítar
og syngur.
Þeir félagar eru með
bæði gamalt og nýtt efni á
dagskrá, bæði af plötunum
Skúli mennski og Grjót og
búgí!, auk þess sem ný og
áður óspiluð lög fá að líta
dagsins ljós. Þar eru á ferð-
inni lög í blúsaðari kantin-
um sem stendur til að taka
upp í sumar og gefa út með
haustinu.
Næst á dagskrá hjá Skúla
mennska og félögum er að
spila á tónlistarhátíðinni
Við Djúpið á Ísafirði þann
21. júní næstkomandi og
búgídansleik á Flateyri
tveimur dögum síðar.
Skúli mennski á
Café Rosenberg
BÚGÍ Skúli mennski og hljóm-
sveit leika meðal annars ný lög á
Café Rosenberg í kvöld.
MYND/JULIA STAPLES
1654 Lúðvík fjórtándi er krýndur konungur Frakklands.
1904 Íslandsbanki, hinn eldri, tekur til starfa og hefur einkarétt á
seðlaútgáfu. Bankanum var lokað 1930.
1945 Hákon Noregskonungur snýr heim til Óslóar eftir fimm ára
útlegð.
1951 Minnismerki um 212 breska hermenn sem féllu hér í síð-
ari heimsstyrjöldinni er afhjúpað í Fossvogskirkjugarði í
Reykjavík.
1975 Sony kynnir til sögunnar Betamax-vídeókassettuna.
1992 Nýr Herjólfur kemur til Vestmannaeyja, 70 metra langur,
með getu til að flytja 480 farþega og 62 fólksbíla.
Merkisatburðir
AFMÆLISBÖRN
TOM JONES
söngvari er 72
ára í dag.
ANNA
KOURNIKOVA
tenniskona er 31
árs í dag.
LIAM NEESON
leikari er
sextugur í dag.
ALLEN IVERSON
körfuboltamaður
er 37 ára í dag.
Margrét Bóasdóttir og Chalumeaux-tríóið koma fram á
Gljúfrasteini sunnudaginn 10. júní klukkan 16.
Á efnisskrá tónleikanna eru þrjú stutt verk eftir bar-
okktónskáldin
Bach, Graupner
og Heinichen í
umritun fyrir
klarínettutríó
auk íslenskra
sönglaga við ljóð
Jónasar Hall-
grímssonar og
Halldórs Lax-
ness.
Margrét Bóas-
dóttir söngkona
hefur áður komið
fram með Chalumeaux-tríóinu á tónleikum víða um
landið en tríóið skipa Ármann Helgason, Kjartan Óskars-
son og Sigurður Ingvi Snorrason.
Heildardagskrá stofutónleika sumarsins má sjá á
heimasíðunni Gljúfrasteinn.is.
Bach, Graupner
og Heinichen
TÓNLEIKAR Margrét Bóasdóttir kemur fram
með Chalemeux-tríóinu á Gljúfrasteini á
sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TÓNLISTARMAÐURINN PRINCE á afmæli í dag.
„Þegar ég vil heyra góða tónlist þá sem ég
hana sjálfur.“
54