Fréttablaðið - 07.06.2012, Síða 48

Fréttablaðið - 07.06.2012, Síða 48
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR40 bio@frettabladid.is > ÁSTFANGIN AF GEIMVERU Mila Kunis hefur tekið að sér að leika í spennutryllinum Jupiter Ascending en upp- haflega átti leikkonan Natalie Portman að fara með hlutverkið. Myndarinnar er beðið með nokkurri eftirvæntingu en þetta er fyrsta leikstjórnarverkefnið sem Lana og Andy Wachovski taka að sér síðan þau gerðu Matrix-myndirnar. Mikil leynd hvílir yfir söguþræðinum en Mila Kunis mun leika konu sem verður ástfangin af geimveru, sem Channing Tatum leikur. Það er margt um fína drætti þegar kemur að leikkonum í kvikmyndinni LOL, sem var frumsýnd í bíóhúsum í gær. LOL er alvöru gelgju- mynd þar sem líf unglings- stúlkunnar Lolu, alltaf kölluð LOL, hrynur þegar kærastinn hennar hættir með henni. Hún er þó ekki lengi að leita sér huggunar í örmum myndarlegs vinar síns en lendir í erfiðleikum með að blanda rómantík saman við vinasamband þeirra. Sem betur fer hlýtur hún þó hjálp vitra vinkvenna sinna sem benda henni á staðreyndir eins og þá að kyssi strákur hana á munninn sé hann að láta vita að hann sé tilbúinn í ástarsamband. Net- samskipti nútímans leika stórt hlutverk í myndinni sem gefur áhorfendum innsýn í flókinn, en þó svo einfaldan raunveruleika unglinga dagsins í dag. Demi Moore leikur móður Lolu, sem er leikin af ung- stirninu Miley Cyrus. Helsti keppinautur Lolu er svo leikinn af Twilight-stjörnunni fallegu Ashley Greene. Þetta er sannar- lega mynd sem engin alvöru gelgja má láta fram hjá sér fara. - trs Gelgjumyndin LOL í bíó LOL Unglingsstúlkan Lola tekst á við flókin ástamál í gelgjumyndinni LOL.. Danski leikarinn Mads Mikk- elsen hefur tekið að sér að leika mannætuna Hannibal Lecter í nýrri bandarískri sjónvarps- seríu. Mikkelsen fetar þar með í fótspor Anthony Hopkins sem gerði garðinn frægan sem fjöldamorðinginn. Það er banda- ríska sjónvarpsstöðin NBC sem ætlar að sýna seríuna á næsta ári en tökur hefjast í næsta mánuði. Breski leikarinn Hugh Dancy leikur FBI-fulltrúann Will Graham en ekki er vitað hvort Clarice Starling, sem Jodie Foster og Julianne Moore hafa leikið, verði með í sjón- varpsþáttunum. Mikkelsen vann nýlega verð- laun sem besti leikarinn á Can- nes-hátíðinni fyrir leik sinn í myndinni The Hunt. Mikkelsen í fótspor Anthony Hopkins Vísindatryllirinn Prome- theus í leikstjórn Ridleys Scott var heimsfrumsýnd á Íslandi í gær í þrívídd. Í myndinni uppgötva land- könnuðir vísbendingu um uppruna mannsins á jörð- inni og leggja upp í ferða- lag um myrkustu afkima alheimsins. Í Prometheus snýr Ridley Scott sér aftur að sérdeild sinni vísindaskáld- skap og er myndin sögð sjálfstæð forsaga kvikmyndarinnar Alien. Leikstjórinn er hvað þekktastur fyrir hana ásamt vísindatryllinum Blade Runner, sem kom út fyrir þrjátíu árum. Geimveran ógurlega úr Alien kemur þó ekki við sögu í þessari nýju mynd. Þvert á móti skapar Scott nýstárlega goðsögn þar sem hópur geimfara uppgötvar vísbend- ingu sem gæti leitt þá að uppruna mannsins á jörðinni. Vegna þessarar skyndilegu vitneskju sinnar verða þeir að ferðast um óhugnanlegustu staði alheimsins og heyja skelfilegan bardaga til að bjarga framtíð mann- kynsins. Kvikmyndin var frumsýnd í Bret- landi 31. maí við góðar undirtektir. Gagnrýnendur Hollywood Repor- ter og Time Out London létu keim- lík ummæli falla. Þeir sögðu hana myndrænt áhrifamikla og magnaða tæknilega séð en kvörtuðu yfir fyrir sjáanlegum söguþræði. Flestir fóru fögrum orðum um leikarana og þá sérstaklega frammistöðu Michaels Fassbender. Hann er þó ekki eina stjarna kvik- myndarinnar en þau Noomi Rapace, Charlize Theron, Guy Pearce, Pat- rick Wilson og Idris Elba fara með önnur aðalhlutverk. Haft var eftir Theron að með þessari kvikmynd hefði langþráður draumur orðið að veruleika. „Alla leikara dreymir um að vinna með ákveðnum leikstjóra og hjá mér var það Ridley,“ sagði hún. hallfridur@frettabladid.is MYRKUSTU AFKIMAR ALHEIMSINS ÍSLAND Í PROMETHEUS Íslensk náttúra á stóran þátt í sjónarspili Prometheusar. 200 manna tökulið kom til landsins í júlí í fyrra og var við tökur á Suðurlandi, þar á meðal við Heklu, og við Dettifoss fyrir norðan í rúmar tvær vikur. ● Mikið var um stjörnufans á tökustað en Charlize Theron, Michael Fassbender og Noomi Rapace heimsóttu Ísland ásamt leikstjóranum þekkta. ● Ridley Scott sagði íslenska náttúru hafa sérstæðan karakter og vera villtari en annars staðar og að það hefði skipt sköpum. ● 160 Íslendingar fengu vinnu við myndina og nam framleiðslukostn- aður hér á landi hundruðum milljóna íslenskra króna. ● Leikstjórinn sagðist reikna með að íslenskt umhverfi kæmi áhorfend- um myndarinnar fyrir sjónir í sirka 15 mínútur. ÓGNVEKJANDI Charlize Theron og Idris Elba í hlut- verkum land- könnuðanna í Prometheus. VERÐUR HANNIBAL Mads Mikkelsen leikur Hannibal í nýrri bandarískri seríu um mannætuna. ★★★★★ PROMETHEUS „Umgjörðin er glæsileg og andrúms- loftið þrælmagnað. Þess vegna á Prometheus skilið svo miklu vandaðra handrit.“ ★★★★★ TYRANNASAUR „Erfið en hrikalega eftirminnileg mynd.“ ★★★★★ MEN IN BLACK III „Afbragðs tímaflakk. Svartklæddu mennirnir hafa engu gleymt.“ ★★★★★ SAFE „Aðdáendur órakaða ólátabelgsins verða himinlifandi, en realistar ættu að halda sig fjarri.“ ★★★★★ DARK SHADOWS „Nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp.“ - hva KVIKMYNDARÝNI Tónlistarkonan Janet Jackson er að framleiða heimildarmynd um transfólk og líf þess. Myndin ber heitið Truth þar sem trans- fólki úti um allan heim er fylgt eftir og staða þess í samfélaginu skoðuð. Jackson verður ekki bara framleiðandi því hún tekur líka viðtöl í myndinni. Sjálf segir Jackson að myndin eigi eftir að breyta viðhorfi fólks til kynjanna að eilífu. „Við viljum stöðva alla fordóma og minna fólk á að sýna öðrum skilning.“ Tökur á mynd- inni hefjast í sumar. Heimildar- mynd um transfólk FRAMLEIÐIR Janet Jackson framleiðir heimildarmynd um transfólk. NORDICPHOTOS/GETTY Borgartún 31 - 105 Reykjavík - www.fjarfesting.is - fjarfesting@fjarfesting.is Pétur Þ. Sigurðsson hrl. löggiltur fasteignasali Óskar Þór Hilmarsson L ggilt r fasteignasali BREKKUHÚS 3 – Endaraðhús Opið hús í dag á milli 17 og 17:30 Sérlega fallegt lítið endarað- hús með sérverönd að Brekkuhúsum 3 í Grafarvogi. Glæsilegar hvítlakkaðar sér- smíðaðar innréttingar og gran- ít borðplötur. Falleg gólfefni; eikarparket og flísar. Skipulag; Anddyri, hol, eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/vinnuherbergi. Sameiginlegt þvottahús og sameiginleg geymsla. Verð 19,9 millj. Óskar sýnir húsið í dag, fimmtudag, á milli 17 og 17:30. Uppl. í síma 822-8750. OP IÐ H ÚS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.