Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.06.2012, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 07.06.2012, Qupperneq 50
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR42 popp@frettabladid.is - Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 6 00 05 0 6. 20 12 S L E N S K A S IA .I S L Y F 6 00 05 0 6. 20 12 ÍS Sothys húðgreiningartækið á staðnum Fótavörur og sokkar Kvöldið er okkar Komdu á miðnæturopnun Lyfju í Smáralind í kvöld, fimmtudagskvöldið 7. júní, og nýttu þér frábær tilboð fram að miðnætti. Sérfræðingar okkar kynna þér allt það nýjasta fyrir húðina, sumarförðunina og heitasta sumarilminn. Láttu það eftir þér að dekra svolítið við þig! Allir sumarilmir og sólarvarnir verða með 25% afslætti í kvöld! Oroblu all colors Nagla- og handameðferðir 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 50% afsláttur Klassískt brúðkaup Leikkonan Drew Barrymore gekk í það heilaga með unnusta sínum Will Kopelman á laugardaginn. Athöfnin fór fram á heimili þeirra í Montecito en fimm mánuðir eru síðan parið trúlofaðist. Samkvæmt heimildum People Magazine var brúðkaupið einfalt, klassískt og látlaust úti í garði. Barrymore á von á sínu fyrsta barni en hún klæddist kjól frá Chanel sem kemur ekki á óvart því tengdafaðir hennar er stjórnarmaður í tískuhúsinu. Gestir brúð kaupsins voru meðal annarra Reese Witherspoon, Jimmy Fallon og Cameron Diaz. Tónlist ★★★★ ★ Kiriyama Family Kiriyama Family Alþjóðlegt fjölbragðapopp Kiriyama Family er í flokki ungra íslenskra hljómsveita í popp- geiranum sem hafa mjög alþjóð- legan hljóm. Eins og aðrar sveitir í þessum flokki, t.d. Tilbury og Of Monsters and Men þá heitir hún erlendu nafni og syngur allt á ensku. Tónlist Kiriyama Family er samt auðvitað ekkert sérstaklega lík tónlist Tilbury og enn síður tónlist Of Monsters and Men. Kiriyama Family spilar poppblöndu sem sækir í ýmis gæðapoppafbrigði tónlistar- sögunnar, t.d. 70‘s bönd eins og Steely Dan og Doobie Brothers, 80‘s bönd á borð við Talk Talk og svo er smá 90‘s britpop fílingur í einhverjum lögum líka og áhrif frá rafpoppi 21. aldarinnar. Og fleira mætti tína til … Þetta er óvenju mótuð tónlist miðað við fyrstu plötu hljómsveitar. Platan er frekar stutt. Hún er níu-laga. En á móti kemur að hún er heilsteypt. Öll lögin eru góð. Platan er mixuð þannig að eitt lag tekur strax við af öðru sem eykur á heildarsvipinn. Tónlist Kiriyama Family er mjög skemmtilegt sambland af tónlist ólíkra áhrifavalda, en í henni felst líka ný nálgun á við- fangsefnið. Þetta er tækifærissinnuð tónlist í bestu merkingu þess orðs. Ég er strax farinn að hlakka til að heyra meira! Trausti Júlíusson Niðurstaða: Vönduð og fjölbreytt plata frá nýrri íslenskri popphljómsveit. ÁR fyllir tónlistarmaðurinn Prince í dag en hann fagnar því eflaust með kærustu sinni Briu Valente. Þó er víst að hann fær sér ekki steik því Prince er grænmetis- æta og var valinn kynþokkafyllsta grænmetisæta í heimi árið 2006. 54 Fyrsta lag Loftskeyta- manna, Gott að búa á Íslandi, er komið út. Það er titillag heimildarþátta um íslenska lífeyrissjóðakerfið. Hljómsveitin Loftskeytamenn hefur sent frá sér sitt fyrsta lag, Gott að búa á Íslandi. Það er titil- lag nýrra heimildarþátta Gunnars Sigurðssonar og félaga um lífeyris sjóðakerfið á Íslandi sem verða líklega sýndir í Sjónvarpinu á þessu ári. „Ég gerði hljóðheiminn og tón- listina við þessa nýju þætti. Þegar ég var að byrja að vinna tónlistina kom þetta lag upp í hausinn á mér og þessi texti,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson Loftskeyta maður. „Við erum öðrum þræði í þessum heimildarmyndum að kanna þessa mýtu, „Er allt best í heimi á Íslandi?“. Maður heyrir svo oft þennan söng um að við séum með besta lífeyrissjóðakerfið, besta heilbrigðiskerfið, besta vatnið og fallegasta kvenfólkið. Svo heyrir maður hinum þræði að hér sé allt í rúst, en við viljum ekki heyra það.“ Tónlist Loftskeytamanna er í gamla stílnum og ef hún er eftir aðra þurfa að hafa liðið fimm- tíu ár frá útkomu hennar. „Ég er alinn upp við að spila með pabba mínum og afa mínum og alinn upp í mikilli virðingu við þessa tónlist og íslenska tónlistarsögu,“ segir Guðmundur Ingi. „Mér finnst þetta svo spennandi tími, þegar íslenska þjóðin er að verða fullþroska.“ Nýja lagið var tekið upp á einn hljóðnema eins og gert var fyrir fimmtíu árum og í myndbandi við lagið var þess gætt að sá andi svífi yfir vötnum. -fb Loftskeytamenn í gamla tímanum NÝTT LAG Loftskeytamenn hafa sent frá sér sitt fyrsta lag, Gott að búa á Íslandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.