Fréttablaðið - 07.06.2012, Page 54
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR46
sport@frettabladid.is
ÍSLAND VERÐUR MEÐ BOÐSUNDSVEIT Á ÓL Í LONDON en það fékkst staðfest í
gær. Árangur kvennaliðsins í 4x100 metra fjórsundi á EM skilaði liðinu til London. Í sveitinni eru Eygló
Ósk Gústafsdóttir, Sarah Blake Bateman, Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eva Hannesdóttir.
Traust og framsækið fyrirtæki leitar af duglegum
og heiðarlegum söluráðgjafa, með einstaka hæfni
í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði , drifkraftur og skipulögð vinnubrögð
eru góðir eiginleikar. Þarf að geta unnið í hóp á
vandkvæða.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir ásamt Starfsferilsskrá sendist á
trausti@sparnadur.is
BIFREIÐASTJÓRAR ÓSKAST!
Vegna aukinn verkefna þurfum við að bæta við
okkur bifreiðastjórum í sumarafleysingar.
Umsóknarfrestur er til 17. júní 2012.
Senda skal inn umsóknir á tölvupóstfangið
runar@allrahanda.is.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Rúnar Garðarsson
í síma: 540 1303. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Rútupróf
• Góð framkoma og rík þjónustulund
• Góð tungumálakunnátta æskileg
• Stundvísi og öguð vinnubrögð
HANDBOLTI „Liðið var tíu sekúndum
frá því að falla. Þetta leit hræði-
lega út en hafðist sem betur fer,“
segir Róbert sem fylgdist með
gangi mála í lokaumferð frönsku
deildarinnar á netinu í síðustu
viku. Parísarliðið tapaði sínum
leik og því mátti Istres ekki vinna
sigur á Ivry í lokaumferðinni.
Annars félli Parísarliðið í næst
efstu deild.
„Við getum þakkað þjálfara
Ivry fyrir að hafa tekið byrjun-
arliðsmennina út af og sett vara-
mennina inn á því þeir jöfnuðu
leikinn,“ sagði Róbert en Ivry
var tveimur mörkum undir þegar
mínúta lifði leiks og hafði að engu
að keppa. Engu að síður jöfn-
uðu sprækir varamenn metin og
Róbert gat andað léttar.
„Við þurfum að splæsa á þá
kampavíni,“ segir Róbert hæst-
ánægður með frammistöðu vara-
manna Ivry.
Tveir fyrir einn tilboð
Auk Róberts gekk landsliðs-
maðurinn Ásgeir Örn Hallgríms-
son til liðs við Parísarliðið og
Róbert segir að það hafi ekki verið
nein tilviljun.
„Ég sagði við þá að ég kæmi
ekki nema Konni kóngur (Ásgeir
Örn) kæmi og hann sagðist ekki
koma nema þessi feiti kæmi. Þetta
var tveir fyrir einn pakki,“ segir
Róbert og nýtir tækifærið til að
skjóta viðurnefni á liðsfélaga
sinn og gera grín að sjálfum sér
um leið.
Katar Sport Investment, sömu
aðilar og tóku yfir knattspyrnu-
félagið Paris Saint-Germain,
tryggðu sér um helgina 100 pró-
senta eignarhlut í handboltalið-
inu. Reiknað er með því að nýju
eigendurnir dæli fjármagni í
handboltaliðið líkt og þeir hafa
gert með PSG.
„Við vissum það svo sem þegar
við skrifuðum undir í febrúar að
til stæði að það kæmu inn sterkir
aðilar. Við vissum reyndar ekki
nákvæmlega hverjir það voru en
það kom í ljós á sunnudaginn,“
segir Róbert og reiknar með því
að Paris Handball taki upp nafnið
PSG og allt verði undir sama hatti.
„Þetta er allt saman á sama
svæðinu og ég held þeir ætli að
byggja upp íþróttaveldi eins og
eru á Íslandi. Eitt lið með margar
íþróttagreinar,“ segir Róbert sem
telur að liðið muni aðallega styrkja
sig með frönskum leikmönnum.
„Það finnst mér mjög jákvætt,
svipað og AG Kaupmanna-
höfn gerir. Byggja liðið á kjarna
heimamanna og svo útlend-
ingum í kring,“ segir Róbert en
auk Íslendinganna hefur Serbinn
Mladen Bojinovic gengið til liðs
við félagið. Þá er hinn örvhenti
Luc Abalo þrálátlega orðaður við
Parísar liðið.
„Bojinovic hefur spilað lengi í
Frakklandi svo hann telst varla
sem útlendingur. Fyrir utan mig
og Ásgeir Örn eru þetta bara
Frakkar.“
Margir færir þjálfarar hafa
verið orðaðir við franska félagið.
Róbert telur að það muni skýrast
á allra næstu dögum hver taki við
liðinu. Róbert hefur litlar skoðan-
ir á þjálfaramálunum. Aðalatriðið
sé að fá að spila.
„Ég vona að nýr þjálfari geti
notað mig. Ég fagna nýju ævin-
týri og er virkilega spenntur eins
og Konni að fara til Parísar. Við
hlökkum til að spila, prófa eitt-
hvað nýtt og nýjustu fregnir af
félaginu skemma ekki fyrir,“
segir Róbert sem brosir í kampinn
spurður hvort hann hefði kvatt
Rhein Neckar-Löwen með sökn-
uði eða ekki.
Róbert hefur mátt sætta sig við
mikla bekkjarsetu í vetur enda
hörð samkeppni við Norð manninn
Bjarte Myrhol. „Ég felldi ekki
mörg tár,“ svaraði línumaðurinn
og hló.
kolbeinntumi@365.is
ÉG FELLDI EKKI MÖRG TÁR
Eftir mikla bekkjarsetu hjá Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi hefur Róbert
Gunnarsson gengið til liðs við franska félagið Paris Handball. Minnstu munaði
að Parísarliðið félli úr efstu deild en það ætlar sér stóra hluti næsta vetur.
HOLLENDINGAR HANDAN VIÐ HORNIÐ Róbert og félagar í íslenska landsliðsinu
mæta Hollendingum í undankeppni HM. Fyrri leikurinn fer fram í Laugardalshöll á
sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
IÐNAÐARRYKSUGUR
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Ryk/blautsuga Drive ZD10-
50L 1000W, 50 lítrar
27.900,-
Ryk/blautsuga Drive ZD98A-
2B 2000W, 70 lítrar
42.890,-
Drive Bískúrsryksugan
1200W, 20 lítrar
6.990,-
Arges HKV-100GS15
1000W, 15 lítrar
21.900,-
BOLTAVAKTIN
Staða og úrslit leikja í beinni
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
FÓTBOLTI Kári Árnason veltir fyrir
sér næsta áfangastað en samn-
ingur landsliðsmannsins við
skoska félagið Aberdeen rann út
um mánaðamótin. Kára var vel
tekið í Skotlandi og þótti standa sig
afar vel. Stuðningsmenn Aberdeen
vildu ólmir halda Kára en félagið
hafði ekki fjárráð til þess.
„Aberdeen mætti ekki þeim
launakröfum sem ég gerði í janúar.
Þeir reyndu þó að halda mér og
buðu mér besta samning sem þeir
gátu boðið,“ segir Kári og bætir við
að félagið hafi reynt eftir fremsta
megni að klára samninginn en það
hafi á endanum dottið upp fyrir.
„Í örvæntingu sinni fékk knatt-
spyrnustjórinn tvær gamlar kemp-
ur til liðsins í janúar til að leysa
okkur af hólmi ef við skyldum fara.
Svo var ráðstöfunarfé stjórans
skorið við nögl og ekkert eftir til
að halda mér,“ segir Kári og skilja
má orð hans þannig að hann hafi
lækkað launakröfur sínar þegar
leið að lokum keppnistímabilsins.
„Ég er með eitt tilboð á borðinu
og veit af áhuga hjá öðru félagi en
þetta er spurning um að stökkva á
það sem er í hendi eða bíða og sjá.
Þetta er erfið staða,“ segir Kári
sem dvelur á Íslandi þessa dagana
og slakar á.
Kári segir margt spennandi við
tilboðið sem býðst honum. Félagið
sé ekki það stærsta en hafi byggt
nýjan leikvang og ætli sér stóra
hluti á skömmum tíma.
„Þetta er verkefni sem gæti
verið mjög skemmtilegt,“ segir
Kári sem segir málið skýrast á
næstu dögum.
„Svo eru strákar að fara til Kína
og það er deginum ljósara hvers
vegna. Mér hefur ekki boðist
að fara til Kína en ef það byðist
myndi ég vafalítið taka því,“ segir
Kári og hlær.
Kári stóð vaktina í vörn íslenska
landsliðsins í æfingaleikjunum
gegn Frökkum og Svíum í lok maí.
Kári hefur þó að mestu spilað sem
miðjumaður undanfarin ár líkt og
lengst af ferlinum.
„Það hafa allir þjálfarar, allt
frá því Sigurður Jónsson þjálfaði
mig hjá Víkingi, sagt mér að þeir
vildu nota mig sem miðvörð. Það
hefur hins vegar ævinlega þróast
þannig að liðin hafa verið í basli á
miðjunni og ég hafnað þar líkt og
hjá Plymouth og Aberdeen,“ segir
Kári sem segist munu enda sem
miðvörður. - ktd
Landsliðsmaðurinn Kári Árnason er án félags og skoðar sína möguleika:
Gæti vel hugsað mér að spila í Kína
HVAÐ NÆST? Kári Árnason verður ekki
áfram hjá Aberdeen og framtíðin er
óráðin. NORDICPHOTOS/GETTY