Fréttablaðið - 16.06.2012, Side 32

Fréttablaðið - 16.06.2012, Side 32
16. júní 2012 LAUGARDAGUR32 K ristján Eldjárn tilkynnti á nýárs- dag 1980 að hann yrði ekki aftur í kjöri til forseta um sumarið. Þrjú kjörtímabil fundust honum duga. Ákvörðun Kristjáns kom ekki á óvart og reyndar hafði Albert Guðmundsson, sá kunni stjórnmála- maður, heildsali og knattspyrnuhetja, þegar lýst yfir að hann hann hygðist gefa kost á sér. Um miðjan janúar bættust við tveir frambjóð- endur, Pétur J. Thorsteinsson sendiherra og Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari. Þá sömu daga var jafnframt skorað í ríkum mæli á Vigdísi Finnbogadóttur, leikhússtjóra Leik- félags Reykjavíkur, að bjóða sig fram. Undir lok mánaðarins ákvað hún að láta slag standa. Ekki bættust fleiri við. Konan og herstöðvaandstæðingurinn Fljótt virtist ljóst að valið stæði milli Guð- laugs og Vigdísar. Guðlaugur var þjóðþekkt- ur fyrir störf sín við lausn kjaradeilna og ekki tengdur einum flokki frekar en öðrum þótt hann hefði hneigst til hægri skoðana á yngri árum. Aftur á móti naut Pétur J. Thorsteins- son ekki alþýðuhylli. Hann var lítt kunnur utan stjórnkerfisins og örlítið tileygður sem fólk freistaðist því miður til að henda gaman að. Albert Guðmundsson var víðfrægur sem „vinur litla mannsins“. Hann kvaðst ekki gera mannamun eftir stjórnmálaskoðunum en var umdeildur innan flokks síns sem utan. Þar að auki þótti hann hafa „þjófstartað“ og van- virt embættið með því að lýsa yfir áhuga á því áður en Kristján Eldjárn tilkynnti að hann hygðist hverfa á braut. Allmikil helgi hvíldi yfir stöðu þjóðhöfð- ingja, kannski of mikil. Þannig óx undiralda smáborgaranna gegn Vigdísi Finnbogadóttur þegar leið á því hún var fráskilin og átti unga ættleidda dóttur. Gæti einstæð móðir setið í embætti forseta? Sá hneykslunartónn sást í lesendabréfum og heyrðist á mannamótum. Í ofanálag hafði Vigdís unnið fyrir Samtök herstöðvaandstæðinga og leyndi því ekki að hún væri friðarsinni sem vildi helst að ekk- ert herlið væri á landinu. Sumum kjósendum fannst ekki koma til greina að kona, sem hafði þrammað í Keflavíkurgöngum, vildi nú leggja lykkju á þá leið sína og halda til Bessastaða. Forseti fótar sig Sunnudaginn 29. júní 1980 kusu Íslendingar forseta og úrslitin urðu söguleg. Vigdís Finn- bogadóttir vann nauman sigur, fékk 33,8% gildra atkvæða. Guðlaugur Þorvaldsson hlaut 32,3%, Albert Guðmundsson tæp 20% og Pétur J. Thorsteinsson rúm 14%. Munur- inn milli hinna tveggja efstu hefði vart getað verið minni og líklega hefði stuðningsfólk Alberts og Péturs frekar valið Guðlaug hefði það átt þess kost í seinni umferð. Á þessum árum voru konur í algerum minnihluta í íslenska stjórnkerfinu, um 5-6% fulltrúa á þingi og í bæjar- og sveitarstjór- num. Forsetinn nýi þurfti að fóta sig í þessum karlaheimi. Innan leikhússins hafði Vigdís tjónkað við prímadonnur af báðum kynjum og sú reynsla kom eflaust að gagni. Annars áttu embættis- og stjórnmálamenn ágætis samstarf við hana þegar fram liðu stundir. Þó kastaðist í kekki í október 1985 þegar rétt tíu ár voru liðin frá kvennafrídeginum mikla. Svo gráglettin voru örlögin, með hjálp nokkurra þingmanna sem fóru í málþóf, að nákvæm- lega þennan dag fékk ríkisstjórnin samþykkt lög um að banna verkfall flugfreyja, þeirrar miklu kvennastéttar. Vigdísi var meinilla við að staðfesta lögin umsvifalaust með undirskrift sinni. Henni fannst það vanvirðing við konur, jafnvel sig sjálfa, og vildi að beðið yrði fram yfir mið- nætti. Því léðu ráðherrar hins vegar ekki máls á. Um skeið þennan dag virtist stjórn- arkreppa í aðsigi og því heyrðist fleygt að kannski myndi stjórnin líta svo á að forseti hefði synjað lögum staðfestingar þannig að þau gengju engu að síður í gildi en yrðu lögð í þjóðaratkvæði við fyrstu hentugleika. Á þetta reyndi ekki. Vigdís Finnbogadótt- ir lét undan, vonsvikin út af óbilgirni ráð- herranna þó að hún hefði aldrei ætlað sér að ganga gegn vilja þeirra. Rétt eins og aðrir for- setar fyrr og síðar fannst Vigdísi ekki að for- seti gæti beitt synjunarvaldi sínu eftir eigin geðþótta. „Forsetinn hafinn yfir stjórnmál“ Í kosningabaráttunni hafði Vigdís Finnboga- dóttir sagt að andúð hennar á her í landi skipti ekki máli vegna þess að embætti for- seta Íslands væri ópólitískt. Á Bessastöðum var hún áfram þeirrar skoðunar. Því til vitnis er afstaða hennar í deilunni um flugfreyju- verkfallið og sumarið 1982, þegar deilt var um hvort umdeild bráðabirgðalög nytu meirihluta á Alþingi eða ekki, neitaði forseti að tjá sig um eigin sjónarmið „því samkvæmt stjórnar- skránni væri forsetinn hafinn yfir stjórnmál“. Vigdís gerði sér þó vel grein fyrir því að við stjórnarmyndanir gæti hún þurft að láta til sín taka, rétt eins og fyrri forsetar höfðu fengið að reyna. Treglega gekk að mynda ríkisstjórn eftir alþingiskosningar 1983 og enn verr fjórum árum síðar. Vigdís þurfti að stýra löngum stjórnarmyndunarviðræðum og kappkostaði að vera hlutlæg og sanngjörn. „Ég hugsaði alltaf, hvað hefði Kristján gert,“ sagði hún seinna. Þeim tveimur var fjarri að ýta undir eitt stjórnarmynstur frekar en annað. Að þessu leyti voru þau ólík forverum sínum, Sveini Björnssyni og Ásgeiri Ásgeirs- syni, sem vildu aftra því að sósíalistar settust í ríkisstjórn. Eftir alþingiskosningar vorið 1991 höfðu Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, hraðar hendur og mynduðu Viðeyjarstjórnina svonefndu. Hún sat fram að kosningum 1995 þegar stjórnarskipti urðu jafn fumlaus og áður. Nánast í skjóli nætur skiptu sjálfstæðismenn Alþýðuflokknum út fyrir Framsóknarflokk og Davíð festist í sessi sem einn áhrifamesti stjórnmálamaður seinni tíma á Íslandi. Á þessum árum birtist afstaða Vigdísar til stjórnmálaafskipta meðal annars í því að hún þvertók fyrir að fjalla um Atl- antshafsbandalagið í ræðum sínum þótt Davíð Oddsson forsætisráðherra færi þess á leit við hana. Mun Davíð því hafa fundist hún fara „út fyrir sitt hlutverk á stundum“. Landkynningarforsetinn Kjör Vigdísar Finnbogadóttur sumarið 1980 vakti athygli um víða veröld enda hafði kona í fyrsta sinn verið kjörin þjóðhöfðingi í lýð- ræðisríki. Árið eftir fór Vigdís í sína fyrstu opinberu heimsókn, til Danmerkur eins og hefð var fyrir, og þótti hún glæsilegur fulltrúi þjóðarinnar ytra. Í hinum litla og lokaða heimi þjóðhöfðingja var einstæð móðir á besta aldri sjaldgæf sjón og hressandi. Vigdís var líka vel mælt á margar tungur og bauð af sér góðan þokka. Fleiri opinberar heimsóknir fylgdu og þegar upp var staðið urðu þær á þriðja tug, mun fleiri en í tíð forveranna. Vitaskuld voru tímarnir breyttir en sá vilji forsetans að beita embættinu á þennan hátt í þágu landsins skipti einnig miklu. Fljótt sáu forsvarsmenn fyrirtækja í útflutningi og ferðamennsku að Vigdís Finnbogadóttir var gulls ígildi. Hvar sem hún fór kviknaði áhugi á Íslandi. Blessunarlega var útrásin þó ekki komin í algleyming og aldrei freistaðist for- seti til að gera íslenskum athafnamönnum persónulega greiða. Slíkt þótti ekki hæfa þjóð- höfðingja. „Land, þjóð og tunga“ Í innsetningarræðu sinni 1984 gerði forseti orð Snorra Hjartarsonar að sínum: „Land, þjóð og tunga, þrenning sönn og ein.“ Eindreg- inn áhugi Vigdísar á landvernd og skógrækt fór ekki framhjá neinum í stjórnkerfinu og sama má segja um áhyggjur hennar af aukn- um áhrifum ensku í íslensku máli. Forsetinn réð örugglega nokkru um það að danska var lengur fyrsta erlenda tungumálið sem kennt var í íslenskum skólum en ráðamenn höfðu ætlað. Þannig fór hún að minnsta kosti inn á jaðar hins pólitíska sviðs. Fögur orð um land, þjóð og tungu geta nálg- ast rembu og dramb. Það vildi Vigdís forðast. Nær alltaf náði hún að slá hinn rétta streng. Fólk var ánægt með störf hennar og sá í henni sameiningartákn, ofar baráttu stjórnmálanna. Að vísu gerðist það sumarið 1988 þegar Vig- dís bauð sig fram í þriðja sinn að hún þurfti, fyrst forseta, að glíma við annan frambjóð- anda. Úrslitin voru fyrirséð. Sigrún Þorsteins- dóttir hlaut rúm 5% gildra atkvæða, Vigdís tæp 95%. Árið 1992 var Vigdís Finnbogadóttir þjóð- kjörin án atkvæðagreiðslu. Hún lét þá svo um mælt að líklega gæfi hún ekki kost á sér til endurkjörs að fjórum árum liðnum. Það var rétt metið og eftir á að hyggja hefði Vigdís átt að láta gott heita eftir 12 ár á forsetastóli. Í hönd fór erfiðasta skeiðið í embættistíð henn- ar, að nokkru markað þreytu, átökum og mis- skilningi. „Drottningarbragur“, EES og afstæð mann- réttindi Þrír leiðtogar settu einna mestan svip á stjórnmálin þann tíma sem Vigdís Finnboga- dóttir sat á Bessastöðum. Þetta voru Stein- grímur Hermannsson, Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson. Þegar fram liðu stund- ir fannst þeim öllum sem nokkur „drottning- arbragur“ hefði færst yfir embættið og stund- um gætti þess einnig í samfélaginu. Aukinn áhugi innlendra og erlendra fjöl- miðla á verkum forseta réð nokkru um þetta en pólitísk átök höfðu líka sitt að segja. Í ársbyrjun 1993 samþykkti Alþingi lög um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæð- inu. Mikið hafði verið deilt um málið og um 34.000 manns skoruðu á forseta að synja lög- unum staðfestingar. Vigdís íhugaði um skeið að segja af sér en afréð svo að skrifa undir lögin. Helstu rökin voru þau að íslensk æska myndi njóta aukins samstarfs í menntamálum og auk þess hefði hún „átt gríðarlega erfitt með að fara gegn þjóðkjörnu þingi“ eins og hún komst síðar að orði. Virðing Alþingis var mun meiri þá en nú. Síðla árs 1995 fór Vigdís Finnbogadóttir í opinbera heimsókn til Kína. Í samtölum við fréttafólk eftir fund með Li Peng forsætis- ráðherra sagði hún þau hafa rætt mann- réttindi og hvort frelsi væri afstætt hug- tak. Þessi ummæli vöktu gremju eða jafnvel reiði á Íslandi. Sjaldan eða aldrei hafði for- seti Íslands sætt viðlíka gagnrýni. Sjálf viður- kenndi Vigdís síðar að hafa komist óheppilega að orði en benti um leið á að hún hefði staðið fast á hugmyndum um frelsi hvers einstak- lings í samtali sínu við Li Peng. Síðasta sameiningartáknið? Vigdís Finnbogadóttir var ekki „skrautdúkka“ eða „puntudúkka“. Sú lýsing heyrist þó stund- um um okkar daga þegar upplausn ríkir í stjórnmálalífinu og þráin eftir „sterkum“ leið- toga setur svip sinn á umræður um forseta- embættið. Vigdís gegndi starfi sínu með sóma og sannaði að fleiri en miðaldra körlum var treystandi til að gegna starfi þjóðhöfðingja. Hún var líka óumdeilt sameiningartákn þótt það þýði auðvitað ekki að allir hafi alltaf verið sammála um öll hennar verk. Um leið og hún hugleiddi að staðfesta ekki lögin um Evrópska efnahagssvæðið sýndi Vigdís í hvaða átt emb- ætti forseta gæti þróast. Hin hörðu viðbrögð við orðum hennar í Kína gáfu líka til kynna að komin væri þreyta í samband hennar og þjóðarinnar. Þegar Vigdís sagði við setningu Alþingis haustið 1995 að hún yrði ekki fram- ar í framboði virtist víst að næsti þjóðhöfð- ingi yrði örugglega af öðru tagi. Framhaldið þekkja allir. Getur kona verið forseti? Árið 1980 vakti kjör forseta á Íslandi heimsathygli. Vigdís Finnbogadóttir var vinsæll forseti landkynningar og menningar. Guðni Th. Jóhannesson segir frá þjóðhöfðingja á friðarstóli sem vildi forðast pólitísk átök. Stundum urðu þau þó ekki umflúin. SIGURVEGARI Vigdís Finnbogadóttir heilsar stuðningsfólki sem safnaðist saman við heimili hennar að Ara- götu þegar úrslit í kosningunum voru ráðin og ljóst mátti vera að hún væri nýr forseti Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vigdís Finnbogadóttir var ekki „skrautdúkka“ eða „puntudúkka“. Sú lýsing heyrist þó stundum um okkar daga þegar upplausn ríkir í stjórnmálalífinu og þráin eftir „sterkum“ leiðtoga setur svip sinn á umræður um forseta- embættið.útrásin þó ekki komin í algleyming og aldrei freistaðist forseti til að gera íslenskum athafnamönnum persónulega greiða
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.